09.04.1937
Efri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í C-deild Alþingistíðinda. (2122)

71. mál, búfjársjúkdómar

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég ætla ekki að tala um frv. í heild eða nauðsyn þess. Það hefir hv. frsm. þegar gert.

Frv. er, eins og hv. þdm. er sennilega kunnugt, samið af dýralæknum landsins, vegna þess að hér er augsýnilega mikil vöntun á skýrslum um veikindi í búpeningi. Þetta finnum við nú, þegar þessi skæði sjúkdómur hefir brotizt út í sauðfénu. En þessar skýrslur eru ekki til, svo að fræðimennirnir deila um það, hvort þessi veiki hafi í raun og veru geisað hér í mörg ár áður. Um þetta þarf að koma skýrslugerð, þannig að alltaf sé hægt að fylgjast með því, hvernig við stöndum á þessu sviði, og getum gert þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar kunnu að vera til þess að koma í veg fyrir, að illa fari.

Ég sé ekki ástæðu til að svara miklu þessum gamanyrðum hv. 4. landsk. En það voru aðallega ákvæði 7. gr., sem hann vitnaði í, þar sem hann talaði um, að gefin væri ótakmörkuð heimild til fjárútláta úr ríkissjóði, sem gæti jafnvel skipt milljónum. Hv. 4. landsk. hlýtur að vita, að þó að um þetta stæði ekki einn einasti stafur í lögum eða bráðabirgðalögum, þá hefði hvaða ráðh. sem er leyfi til þess að gera það, sem talað er um í þessu frv. Og heldur hann, að nokkur ráðh. myndi láta þetta ógert, þó að það kostaði milljónir? Nei, sannleikurinn er sá, að þó að ekkert stæði um þetta í þessum l., þá væri heimildin jafn opin og sjálfsögð fyrir ráðh., og honum væri skylt að nota þá heimild. Hér er því ekki nokkur heimild gefin frá því, sem verið hefir.