07.04.1937
Efri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í C-deild Alþingistíðinda. (2153)

77. mál, sauðfjárbaðanir

*Þorsteinn Þorsteinsson:

Við 1. umr. þessa máls minntist ég á nokkur atriði í frv., er ég taldi betur fara á annan hátt, en yfirleitt ætla og þó ekki að gera sérstakan ágreining vegna þeirra atriða að þessu sinni. Það getur verið, að það fyrirkomulag, sem frv. gerir ráð fyrir, reynist nokkurnveginn, en eitt atriði er það þó, sem ég vil leggja eindregið til, að breytt verði. Ég hefi ég fengið góðar undirtektir um það hjá hv. landbn. Þar sem sú venja hefir verið, að bændur hafa tvíbaðað fé sitt og fengið til þess styrk, virðist ekki réttlátt að svipta þá þeim styrk þótt sérstakar ástæður séu fyrir því, að útrýmingarböðunin geti farið fram eins og Alþingi hefir ákveðið. Það, sem hér er um að ræða, er ekki mikið, sennilega 1000—2000 kr. Brtt. mín á þskj. 222 er aðeins um heimild fyrir landbrh. og nær aðeins til eins árs. Ég vil sérstaklega taka það fram, að skilríki fyrir því, að styrkur þessi veitist, eru þau, að hreppstjóri gefi vottorð um, að tvær baðanir hafi farið fram og um fjártöluna.