05.04.1937
Efri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 807 í C-deild Alþingistíðinda. (2175)

96. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Flm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):

Svo sem nál. bera með sér, hefir sjútvn. ekki getað orðið sammála um frv. þetta. 2 nm., ég og hv. þm. N-Ísf., leggja til, að frv. nái fram að ganga, en við leggjum þó til, að á því verði gerðar breyt. við leggjum til sameiginlega á þskj. 194 nokkrar breyt. En svo flytur hv. þm. N.-Ísf. sérstaka brtt. á þskj. 189.

Ég held, að það sé öllum hv. þm. kunnugt, að um stj. síldarverksmiðjanna frá því fyrsta hefir verið nokkur ókyrrleiki. Það er búið að breyta skipun stjórnar síldarbræðslanna a. m. k. þrisvar sinnum, tvisvar með l. frá Alþ. og einu sinni með bráðabirgðal. Þetta virðist benda til þess, að það sé rétt, sem ég sagði, að um stjórn þessara fyrirtækja hafi ríkt nokkur ókyrrleiki. Og mér virðist, að svo langt hafi það gengið á árinu 1935 og árið 1936, að þessi ókyrrleiki hafi komizt inn í stj. verksmiðjanna og valdið því, að 2 af stjórnarnm. sögðu af sér, svo að atvmrh. varð að grípa til þess úrræðis að setja bráðabirgðal., til þess að verksmiðjurnar hefðu þó lögformlega stjórn.

Nú virðist mér, að Alþ. hafi alltaf verið að leita eftir leiðum til þess að skipa á sem heppilegastan hátt stj. þessara fyrirtækja og betur en áður hefir átt sér stað. Og þetta frv. hendir einmitt í sömu átt: Fyrir flm. þess vakir það, að þær leiðir, sem farnar hafa verið, hafi ekki gefizt þannig, að búast megi við, að sú nauðsynlega rót geti komizt á um stj. þessara fyrirtækja með því að fara þær leiðir áfram. Og ég hygg, að við, sem skipum meiri hl. sjútvn. og höfum fallizt á, að frv. gangi fram, höfum einnig litið þannig á. Þessi fyrirtæki eru svo mikill þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar, að reyna verður til hins ýtrasta að fá það skipulag á stj. þeirra, að um þau geti orðið nokkurnveginn kyrrt, en ekki standi sífelldur styrr um þau. Og ég álít, að sérstaklega þyrfti að fyrirbyggja það, ef hægt væri, að í stj. þeirra væri jafnvel hið megnasta ósamkomulag. Það er náttúrlega engin reynsla fyrir því hvernig það fyrirkomulag, sem gert er ráð fyrir í frv., gefst. En þetta er þó tilraun til þess að reyna að fjarlægja stj. síldarbræðslanna nokkuð hinum daglega pólitíska styr. Mér dettur þó ekki í hug að halda fram, að þó að þetta fyrirkomulag verði tekið upp, verði stj. þessara fyrirtækja skipuð alveg ópólitískt. En ég held, að með því að fara þessa leið, þá verði frekar möguleikar fyrir því, að stj. þeirra geti staðið fyrir utan hinar pólitísku erjur. A. m. k. er það tilraun til þess að reyna að færa þessi fyrirtæki út úr hinum pólitíska eldi. Auk þess er ég þeirrar skoðunar, að með því að stj. fyrirtækjanna verði skipuð aðeins 3 mönnum, tilnefndum af sérstöku verksmiðjuráði, þá hnigi það og í þá átt, að skapa meiri ró um fyrirtækin en verið hefir.

Það kom fram við 1. umr. þessa máls hér í d., að hæstv. atvmrh. taldi það ekki vera í samræmi við bráðabirgðal. frá síðastl. vori. Ég skal játa, að ef einhver tilraun hefði verið gerð til þess að afgreiða þessi umræddu bráðabirgðalög, sem nú liggja fyrir Nd., þá hefði mátt tala um þetta, en þar sem það hefir ekki verið gerð minnsta tilraun til þess, þá var vitanlega ekki annað fært en koma með þetta frv. Og upp í það eru tekin öll aðalatriði bráðabirgðalaganna. mér og fleirum hefir vist aldrei dottið í hug, enda þótt þessi 3 manna stjórn verksmiðjanna væri skipuð í vor samkv. bráðabirgðal., að það út af fyrir sig væri framtíðarlausn þessa máls. Það var aðeins bráðabirgðaúrræði, sem varð að hverfa að, eftir því sem þá stóð á.

Sökum þess að því hefir allmjög verið haldið hér á lofti, að bráðabirgðal. frá í vor hafi verið selt með samþykki beggja stjórnarflokkanna, vil ég taka það fram, að það er rétt, að hæstv. atvmrh. talaði um þetta við þann flokkinn, sem ég heyri til. En um hitt var aldrei rætt, og mun a. m. k. ekki hafa verið ætlun okkar framsóknarmanna, að það yrði framtíðarskipulag, að atvmrh. skipaði stjórn síldarverksmiðjanna. Ég fæ því ekki séð, að þetta frv., sem hér liggur fyrir til umræðu nú, komi í bága við það, þó að stjórnarflokkarnir hafi báðir staðið að bráðabirgðal. Af þessu hefði mátt vænta, að bráðabirgðalögin, sem nú liggja fyrir n., hefðu fengið einhverja afgreiðslu, var að sjálfsögðu hægt að ræða um þetta frv. í sambandi við þau, en nú bólar bara ekkert á þeim, svo að um neitt slíkt getur því ekki verið að ræða. En geri þingið aftur á móti ekki neitt í þessu máli, þá fæ ég ekki annað séð, en að það lendi í sama öngþveitinu og áður, því að þá gilda aðeins hin fyrri lög um skipun síldarverksmiðjustjórnarinnar. (PM: Það koma þá bara bráðabirgðalog). Það má vel vera, að sú yrði raunin á, en ég teldi samt réttara, að þingið afgreiddi þetta á þinglegan hátt; annað myndi leiða til vandræða ástands. Ég held t. d., að það yrði ekki til þess að skapa ró um þetta stóra fyrirtæki, ef farið yrði að bæta 2 mönnum í stjórn fyrirtækisins eftir hinum eldri lögum.

Að sjálfsögðu má margt tala um þetta mál fram og aftur, en hvað sem menn kunna að segja, þá verður því aldrei neitað, að mikill ókyrrleiki hefir jafnan verið um þetta fyrirtæki, — svo mikill ókyrrleiki, að ég held, að það sé fyllilega forsvaranlegt af Alþingi, þó að það verji nokkrum dögum af þeim tíma, sem það á eftir að sitja, til þess að reyna að finna einhverja lausn á þessu máli.

Um brtt. þær, sem fyrir liggja, mun ég ekki verða margorður. Brtt. okkar hv. þm. N.-Ísf. eru ekki veigamiklar, og ég tel, að þær muni verða til bóta. — 1. brtt. gengur út á það, að ráðh. skuli því aðeins tilnefna form. verksmiðjustj. að samkomulag um val hans náist ekki innan stj. 2. brtt. er um það, að stj. verksmiðjanna skuli setja framkvæmdastjórunum erindisbréf. Verði frv. samþ. og framkvæmdastjórarnir verði tveir, hljóta allir að vera sammála um, að nauðsynlegt sé að setja þeim erindisbréf. — 3. brtt. er um það, að í stað þess, sem frv. gerir ráð fyrir, að fjmrh. skuli úrskurða um verð á hráefnum, sem verksmiðjurnar kaupa, ef ágreiningur verður um það milli verksmiðjustjórnar og verksmiðjuráðs, þá skuli það vera sá ráðh., sem mál þessi heyra undir. Það má vel vera rétt, að það sé fjármál, að ákveða verð á síld, sem verksmiðjurnar kaupa, og eigi því samkv. eðli sínu að heyra undir fjmrh., en okkur finnst eðlilegra, að það eigi að síður heyri undir þann ráðh., sem rekstur verksmiðjanna heyrir undir.

Um brtt. hv. þm. N.-Ísf. á þskj. 189 mun ég ekki heldur verða fjölorður. Hv. flm. þessara brtt. leggur mikla áherzlu á, að verksmiðjuráðið sé eingöngu tilnefnt af alþingi. Hvað mig snertir, þá tel ég, að það veiki allmjög þann tilgang, sem með skipun verksmiðjuráðsins á að nást. Um þetta hefi ég áður rætt við hv. þm. og skal því ekki fara inn á umræður um það nú, áður en hann hefir a. m. k. talað fyrir brtt. sínum.

Ég mun svo ekki hafa þessi orð mín öllu fleiri nú. Ég get rætt kalt og rólega um þetta verksmiðjumál; það snertir hvorki mig persónulega eða mína kjósendur, og færi betur, ef fleiri gætu sagt slíkt. En í þessu tilfelli mun það verða svo, sem jafnan vill verða, þegar um er að ræða fyrirtæki, sem gefur mikla atvinnu, að tilhneiging vakni hjá mönnum um að nota það til hagsbóta sér og skjólstæðingum sínum. Að endingu vil ég svo fullyrða það, að komist skipulag það a, sem í frv. felst, þá muni það skapa meiri kyrrð um þessi fyrirtæki, og á því er sízt vanþörf. Ég get búizt við, að hv. flm. frv. taki til máls hér á eftir og skýri málið eitthvað frekar en ég hefi gert, því að hann er að sjálfsögðu kunnugri en ég, hvernig spilin liggja í þessu efni. Það, sem fyrir honum vakir, mun aðallega vera það, að reyna að koma stj. þessa mikla fyrirtækis inn á þær leiðir, sem heppilegri eru en þær, sem farnar hafa verið.