07.04.1937
Efri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í C-deild Alþingistíðinda. (2188)
96. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Jón Baldvinsson:
Ég hefi fundið hér nokkur atriði, sem ég hefi ritað hjá mér af umr. í fyrradag, og álít ég rétt að segja nokkur orð um ýmislegt af því. Flm. talaði alllangt mál um frv. og síldarmálin í heild, svo að ekki verður komizt hjá að fara dálítið lengra út í málið en stranglega er fyrirskipað í þingsköpum. Hv. þm. gat um þá ókyrrð, sem var í stjórn verksmiðjanna, áður en bráðabirgðal. voru gefin út. Má segja, að síðan núverandi skipulag komst á, hafi hvorki heyrzt stuna né hósti, nema úr einu horni. Það eru kannske 2 persónur, sem eru óánægðar með þetta stjórnarfyrirkomulag, vegna þess að þar hefir borið raun vitni með það. hve stjórn verksmiðjanna hefir farið vel úr hendi á síðasta sumri, og er það ólíkt því, þegar stjórnarmeðlimir lágu í blaðadeilum um stjórn verksmiðjanna. Það, sem mér finnst, að hefði getað gefið hv. þm. Eyf. tilefni til að bera fram þetta frv., var það, ef verið hefði einhver brestur á stjórn verksmiðjanna. Ég vil benda hv. 1. þm. Eyf. á, að þetta mál kom til umr. á þingmálafundi á Siglufirði og að till. um að fella niður bráðabirgðal. var þar felld, og aðeins 5 eða 7 af fundarmönnum greiddu atkv. með henni. Þannig líta Siglfirðingar sjálfir á málið, og þeir munu manna kunnugastir störfum stjórnarinnar og hvernig henni tekst. Ég get ekki skilið þá afstöðu hv. 1. þm. Eyf. og hv. 2. þm. S.-M., að þeir berjast svo mjög fyrir því, að koma sjálfstæðismanni í verksmiðjustjórnina. Þeir berjast harðar fyrir því en sjálfstæðismenn sjálfir. Mitt álit er, að vel hafi tekizt að mynda þessa stjórn og engin ástæða sé til að fara að breyta um þetta, heldur að lofa þeirri stj., sem hefir stýrt vel, að halda áfram, og að það fyrirkomulag, sem flokkarnir komu sér saman um í fyrra, eigi að haldast. Í fyrra virtist hvaða sjálfstæðismaður sem var mega koma í verksmiðjustjórn nema Sveinn Benediktsson; það var gert að skilyrði. En það var vitað, að ef sjálfstæðismenn tilnefndu mann í stjórnina, mundi það verða Sveinn Benediktsson.
Ég held, eins og hæstv. atvmrh. hefir tekið fram, að það verði betra fyrirkomulag, að ráðh. skipi stj. verksmiðjanna, heldur en að þingið kjósi hana. Getur og verið, að finna megi fyrirkomulag til þess að tilnefna fulltrúa fyrir þá, sem helzt eiga hlut að máli, sjómenn, útgerðarmenn og verkamenn. Ef svo fer, að þetta frv. gangi fram, eru það beinlínis brigður á því hjá framsóknarmönnum, sem samþ. var í fyrra. Ef þessi lög verða samþ., vil ég taka mér í munn orð gamals manns, sem sagði, að þá mundi fleirum skemmt verða, ef á að knýja þetta mál fram, og láta bráðabirgðal. falla úr gildi.