10.04.1937
Efri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í C-deild Alþingistíðinda. (2205)
96. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Magnús Jónsson:
Ég vil geta þess út af orðum hæstv. forseta, að ég heyrði hann ekki lýsa forföllum ráðherranna í upphafi fundar. vissi, að hæstv. atvmrh. hafði forföll. En mér var ekki kunnugt um nein forföll hjá hæstv. forsrh., enda gat hæstv. forseti ekki um forföll hans, er hv. 2. þm. Rang. lýsti eftir honum áðan, heldur var hans leitað um öll herbergi.
Hv. 4. landsk. var að tala um einhverja stofnun hér í bænum, þar sem allir starfsmennirnir væru glæpamenn. (JBald: Flestir afbrotamenn, sagði ég. Það er ekki vert að gera þá verri en þeir eru). Það væri sanngjarnt, að hann nefndi þessa stofnun utan þinghelgi, svo að einhverjir starfsmannanna gætu hreinsað sig af þessum áburði.
Þá vildi hann fara að bera saman hæfileika formanns stjórnar síldarverksmiðjanna og Kveldúlfs í útvegsmálum. Ég held, að hv. þm. ætti nú ekki að hætta sér út á þann ís. Samvinnuútgerð Ísfirðinga var studd af hinu opinbera í upphafi og hefir ávallt notið velvildar þess, en hefir þó stöðugt tapað. En Kveldúlfur hefir af eigin rammleik unnið sig upp mest allra fyrirtækja hér á landi og fitjað upp á flestum þeim nýjungum, sem sjávarútveginum hafa komið að haldi. Ég held því, án þess að fara lengra út í þessa sálma, að þessi samanburður sé fulldjarfur hjá hv. þm.