12.04.1937
Efri deild: 37. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 851 í C-deild Alþingistíðinda. (2225)

97. mál, verðlag á almennum nauðsynjavörum

Guðrún Lárusdóttir:

Ég er ein af þeim, sem tel ávextina nauðsynjavöru, sérstaklega eplin. Og ég álít, að við hér í okkar langa skammdegi höfum fulla þörf fyrir að fá meira af þessari voru. Eins og menn muna, þá fluttust epli hingað til landsins í vetur, en verðið á þeim var óhæfilega hátt; þau kostuðu þá 3 kr. kg. Ástæðan til þessa óhæfilega verðs á eplunum er 25% tollurinn, sem á þeim er. Eins og hv. þm. muna, þá bar ég hér fram í d. till. um að heimila fjmrh. að fella niður þennan toll, og var þetta samþ. Fjmrh. hafði því fulla heimild til að fella niður þennan 25% toll, en hann var ófáanlegur til þess. Það var send n. kvenna á fund hæstv. ráðh. nokkru fyrir jólin. N. fór fram á, að ráðh. felldi niður tollinn, sem álitið var, að hann hefði þingleyfi til, en þar var þvert nei. Hann vann ekki svo mikið til, að íslenzku börnin fengju að smakka epli um jólin, því að það er undantekning, ef menn hafa ráð á að kaupa epli fyrir 3 kr. kg. Þegar maður ber þetta saman við þær ráðstafanir, sem sænska stj. gerði í svipuðu máli í haust sem leið og sagt var frá í ríkisútvarpinu, ekki alls fyrir löngu, þá sest, að þar var farið að dálítið öðruvísi en hér. Sænska stjórnin lét flytja mörg vagnhlöss af eplum norður til Lapplands til þess að láta börnin þar nyrðra njóta hinna hollu sumarávaxta. Sem ástæða var það borið fram, að þar væri svo sólskinslaust vetrarmánuðina, að börnin þyrftu að fá þá næringu, sem helzt gæti komið í stað sólskinsins. Ég vildi láta þessa getið hér í d., ef það gæti orðið til þess, að þetta mál væri athugað nokkru nánar en gert hefir verið hingað til, ef vera kynni, að þessi rangláti tollur yrði felldur niður.