08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í C-deild Alþingistíðinda. (2239)
114. mál, stuðningur við togaraútgerðina
Flm. (Jón Baldvinsson):
Herra forseti! Þegar rætt er um frv. á þskj. 161, um ráðstafanir til stuðnings togaraútgerðinni, sem við tveir Alþfl.menn flytjum í Ed., verður ekki hjá því komizt að drepa einnig á önnur þingmál, sem eru í nánu sambandi við þetta mál, eins og t. d. frv., sem Alþfl.mennirnir í Nd. flytja um ýmsar ráðstafanir til viðreisnar sjávarútveginum. Frv., sem er hér til 1. umr., er í raun réttri framhald hins, og því þykir mér rétt í örfáum orðum að skýra frá aðaldráttum frv. um ýmsar ráðstafanir til viðreisnar sjávarútv., vegna þess, að það er til þess að auka skilning á málinu, sem fyrir liggur.
Frv. til viðreisnar sjávarútveginum gerir ráð fyrir að efla fiskimálasjóð á tvennan hátt: Í fyrsta lagi með því að láta útflutningsgjald af saltfiski renna þangað, og með heimild til allt að 3 millj. kr. lántöku. — Þetta fé er atvmrh. heimilt að ákveða, að fiskimálasjóður láni til byggingar eða kaupa á 6 nýtízku botnvörpuskipum, er Reykjavík eða önnur bæjarfélög, hreppsfélög eða einstakir menn eða hlutafélög kaupa, með ýmsum nánari skilyrðum um það, hversu mikið megi hvíla á skipunum á undan láni fiskimálasjóðs. — Þá er gert ráð fyrir því, að á árinu 1937 verði rannsakað, hvar sé nauðsynlegast að reisa hraðfrystihús, er annazt geti hraðfrystingu og geymslu til útflutnings, og er ætlazt til, að lagður verði fram úr fiskimálasjóði 1/4 hluti stofnkostnaðar. Þá er ráðgerður stuðningur við að koma upp fiskimjöls-, síldar- og karfavinnsluverksmiðjum, er þó eigi séu stærri en svo, að þær vinni úr 600 málum síldar á sólarhring. Loks er um fjárhagslegan stuðning að ræða til niðursuðuverksmiðju, er annast geti niðursuðu á hverskonar fiski, fiskiafurðum, kampalampa og öðrum sjávarafla. Að síðustu er gert ráð fyrir láni og styrk til kaupa þeirra veiðarfæra, sem lítið eru þekkt eða notuð, en ætla má, að gætu orðið að gagni hér.
Þetta allt leitar að því, að gera framleiðslu sjávaraflans fjölbreyttari og seljanlegri 5 erlendum markaði, og byggist einnig að nokkru á þeim tilraunum, sem þegar hafa verið gerðar að tilhlutun og með fjárstyrk frá fiskimálanefnd, og hafa þegar reynzt að vera arðvænlegar eða líkur þykja til, að gefi góðan árangur.
Beint framhald af þessu er frv., sem hér liggur fyrir, um ráðstafanir til stuðnings togaraútgerðinni. Að því leyti er það ekki frábrugðið kreppulöggjöf þeirri, sem sett hefir verið, að það er ætlazt til, að ríkið veiti fjárhagslega aðstoð til þess, að þau botnvörpuskip, sem við athugun ekki reynast eiga fyrir skuldum, geti komizt á fjárhagslega traustan grundvöll.
En auk framlags ríkissjóðs er ætlazt til, að innlendir kröfuhafar leggi 1/9 hluta þess fjár, er þeir eiga rétt á að fá, og verða þeir þá hluthafar í togaraútgerðarfélagi því, er fyrsti kafli frv. fjallar um. Er félagið því stofnað með aðstoð ríkisins, almennu hlutaútboði og framlagi kröfuhafa, eins og áður segir.
Togaraútgerðarfélagið skal eiga lögheimili og varnarþing í Reykjavík. En sé togari eða togarar, sem verða eign félagsins, gerðir út frá kaupstað eða kauptúni utan Reykjavíkur, þá skal gera togarana út þaðan, þó að þeir verði eign félagsins. Atvmrh. má ákveða, að á slíkum stöðum skuli stofna sjálfstæð hlutafélög til togaraútgerðar, og njóta þau þá þeirrar aðstoðar ríkisins, er l. gera ráð fyrir, en sú aðstoð er í því fólgin, að ríkið leggur fram það fé, sem til vantar, að félagið komist á fjárhagslega traustan grundvöll, þegar með er talið framlag lánardrottna og hlutakaup einstakra manna í hinu almenna útboði.
Með þessu frv. er það ætlunin, að öll þau togarafélög, sem ekki eiga fyrir skuldum, að lokinni þeirri athugun, sem gert er ráð fyrir í frv., að fari fram á fjárreiðum þeirra, verði sett undir sameiginlega stjórn, komið á fjárhagslega traustan grundvöll og rekin áfram á þeim stöðum, þar sem skipin eru nú.
Með þessu vinnst það tvennt, að stjórn togarafélags verður ódýrari en nú er, að minni tortryggni mun gæta í garð þeirra, er fyrirtækinu stjórna, og að auðveldara er með sameiginlegri yfirstjórn margra skipa að láta hvert skip stunda þá veiði, sem haganlegust þykir vegna stærðar skips og þess annars, sem til greina getur komið.
Einhverjum kann að finnast það undarlegt, að við Alþfl.-þingmennirnir skulum nú flytja frv. um kreppuhjálp handa útgerðinni, þar sem við þegar árið 1933 lýstum lítilli trú okkar á hinu fyrsta kreppulánafrv., sem átti að vera til stuðnings bændastéttinni. En ef betur er að gáð, þá erum við alveg í samræmi við það, sem við sögðum þá, en það var í stuttu máli á þessa leið: Það þýðir ekkert að veita milljónalán til þess, að breyta lánum þeim, sem á bændastéttinni hvíla, í löng, vaxtalág lán, ef ekki er jafnframt seð fyrir því, að landbúskapurinn verði arðvænlegur atvinnuvegur; þótt menn fái langan gjaldfrest á skuldum sínum og geti safnað þeim saman á einn stað, þá hefir það enga þýðingu, ef ekki er jafnframt séð fyrir því, að bændurnir geti á arðvænlegan hátt rekið atvinnu sína, landbúskapinn.
Þetta reyndist líka svo: Þrátt fyrir kreppulánin til bændanna, sem voru þeim hagkvæm, miðað við þau lánskjör, sem aðrir atvinnuvegir verða við að búa, þá var svo komið árið 1934, þegar þáv. landsstjórn fór frá völdum, að annar aðalatvinnuvegur Íslendinga, landbúnaðurinn. var kominn í rústir, þrátt fyrir alla kreppuhjálp, og þess vegna var það eitt af fyrstu verkum núv. ríkisstj. að gefa út nauðsynlega löggjöf til þess að tryggja bændum landsins með breyttu skipulagi það verð fyrir aðalframleiðsluvörur þeirra, kjöt og mjólk, sem gaf vonir, er hafa rætzt, — ég endurtek það, vonir, sem hafa rætzt, — um það, að framleiðsluvörur bænda gæfu þann arð, sem nauðsynlegt var til þess, að landbúskapur yrði aftur lífvænlegur atvinnuvegur fyrir þá, sem hann stunda. Og í þessu sýna verkin merkin.
Það var þetta, sem við Alþfl.menn vildum láta fylgja kreppulánasjóðslöggjöfinni, að jafnframt væri séð fyrir möguleikum til þess, að atvinnurekstur bænda væri lífvænlegur atvinnuvegur fyrir sveitafólkið. En í stað þess að taka tillit til þess, er við lögðum til málanna, þá var byrjað á þessari gömlu aðferð, sem lengi hefir viðloðað í íslenzkum atvinnumálum, að þjóðnýta skuldirnar. Það er líka þetta, sem gert hefir verið í sjávarútvegsmálunum hingað til, að þjóðnýta skuldirnar, ef svo göfugt orið má nota um þetta framferði íslenzkra stjórnmálamanna.
Hingað til hefir ríkissjóður látið sér nægja að taka ábyrgð á og greiða eftir á töp atvinnuveganna með erlendum lántökum, sem ríkissjóður ber ábyrgð á og stendur straum af að langmestu leyti. Má þar til nefna: Lántökuna 1921. £ 500000. eða liðlega 11 millj. kr., lántökuna 1930, £ 540000, eða ca. 12 millj. kr., og lántökuna 1935. £ 530000, eða ca. 11,7 millj. kr., svo að nefndar séu stærstu lántökurnar, er nema samtals um 35 millj. kr. Meginhluti þessa fjár, eða um 27 millj. kr., hefir gengið til þess að greiða áfallin töp á rekstri atvinnuveganna.
Ég þykist vita, að á það verði bent, að ríkissjóði sé ætlað eftir báðum þeim frv., sem Alþfl.þingmennirnir flytja, að taka allt að 5 millj. kr. lán, 3 millj. handa fiskimálasjóði og 2 millj. kr. til stuðnings togaraútgerðinni, og að ennfremur verði bent á það, að ríkissjóður taki á sig áhættu. Þessu neita ég ekki, því öllum ábyrgðum og lánum fylgir áhætta. En ég vil benda á muninn á þessum lántökum og þeim, er ég gat um áðan. Hér er ríkissjóði ætlað að taka lán til framkvæmda, sem allar líkur benda til, að geti gefist vel og brýn nauðsyn er á því að blása nýju lífi í sjávarútveginn. Gömlu stórlánin voru tekin af því, að við vorum komnir í skuld erlendis vegna rekstrartaps atvinnuveganna og gátum ekki borgað og urðum því að láta skrifa skuldina hjá ríkinu gegn loforði um að greiða hana á mörgum árum. — Ríkið hafði ekki afskipti af því, hvernig þessu fé var varið, vegna þess að búið var að eyða því áður en ríkið, að forminu til tók á sig ábyrgðina. hér er aftur á móti ætlazt til þess, að löggjafarvaldið ráðstafi fyrirfram, til hverra framkvæmda féð gangi. og er því sá reginmunur á þessum lántökum og hinum fyrri.
Alþfl. þorir vel að taka á sig þá ábyrgð, að taka fé að láni til líklegrar nýbreytni í öðrum höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar. Það er sjálfsagt vel gert af ríkisvaldinu að greiða hinar dauðu skuldir, sem safnazt hafa vegna taps á atvinnurekstri landsmanna; en Alþfl. vill ekki láta það ástand halda áfram, sem endurspeglust í lántökunum 1921, 1930 og 1935. Alþfl. vill jafnframt því að veita atvinnuvegunum fjárhagslega aðstoð, gera þær breyt. á tilhögun á rekstri þeirra, gera það líklegt, að þeir geti borið sig og fætt og klætt fólkið, sem við atvinnuvegina starfar og á alla sína afkomu undir velgengni atvinnuveganna.
Mér hefir verið það sérstök ánægja að veita því eftirtekt, að Sjálfstfl. hefir eignað sér till. okkar Alþfl.manna um viðreisn sjávarútvegsins. Það sýnir a. m. k., að þeir menn, sem Sjálfstfl. skipa, telja till. vorar ekki lítils virði. Mér skilst á blaðaskrifum sjálfstæðismanna, að þessar till. okkar Alþfl.manna séu aðeins gamlar till. þeirra í Sjálfstfl. og Íhaldsfl. Það ætti náttúrlega að gleðja alla sanna sjálfstæðismenn, ef svo væri, að Alþfl. hefði tekið upp gamlar till. þeirra, en mér heyrist tónninn í blöðum þeirra vera allt annar en sá, að þar sé nokkur ánægja yfir þessu, heldur fala þeir um „málefnaþjófnað“ og annað því líkt, sem ekki lýsir neinni serlegri ánægju yfir framkomnum till. okkar Alfl.manna.
Þegar þess er gætt, að í Sjálfstfl. munu vera flestir þeir menn, er stórútgerð hafa rekið með stórum fiskveiðaskipum, þá er skiljanleg óánægjan yfir því, að ekki skuli þaðan vera runnar till., sem líklegt er, að geti bætt rekstrarafkomu stórútgerðarinnar, en sannleikurinn er sá, að með fáum undantekningum hafa stórútgerðarmennirnir lítið verið fyrir nýbreytni gefnir og hafa helzt ekkert gert nema það, að fiska þorsk, fletja þorsk. salta þorsk, þurrka þorsk og selja þorsk til Spánar, og ekkert annar hefir komizt að í heilum margra þessara manna.
Þeir skilja þess vegna ekkert í þeirri nýbreytni, sem núv. ríkisstj. hefir beitt sér fyrir í útgerðarmálunum með tilraunum þeim og athugunum, sem gerðar hafa verið af fiskimálanefnd. og þeir skilja heldur ekkert í því, að Alþfl. geti nú verið með einskonar skuldaskilum stórútgerðarinnar, úr því hann gat ekki fallizt á frv. þeirra um skuldaeftirgjafir, sem Sjálfstfl. flutti árið 1934.
Einstaka menn í Sjálfstfl. og Framsfl. hafa látið á sér skilja, að gengislækkun íslenzku krónunnar sé einu ráðið til þess að bjarga atvinnuvegunum. Og Bændafl. hefir beinlinis fengið gengislækkun á heilann og telur hana allra meina bót. Með gengislækkun myndi jafnskjótt aukast dýrtið í landinu, og kröfur um kauphækkun myndu þegar koma fram. Myndi allt því fæast í sama horf fyrir atvinnuvegunum, eina breytingin yrði sú, að reiknað væri með hærri tölum til tekna og gjalda. En sé ætlunin sú, að standa á móti kauphækkun, þá er það ætlun gengispostulanna að láta lægst launaða fólkið í landinu greiða halla atvinnuveganna.
Allar nýbreytnistill. eru þyrnir í augum þeirra manna, sem íhaldsflokka skipa. En athuganir þær og tilraunir, sem fiskimálanefnd hefir gert að tilhlutan núv. ríkisstj. hin síðari árin, hafa fært Alþfl. og öllum hugsandi mönnum heim sanninn um það, að möguleikar séu fyrir togaraútgerðina íslenzku og einnig bátaútgerðina að starfa með arðvænlegum árangri, þótt ekki sé einvörðungu byggt á því að veiða þorsk, er seldur sé saltaður eða þurrkaður á erlendum markaði.
Stjórnarandstæðingar sögðu á síðustl. hausti, að síldin hefði bjargað stj. frá því, að landið yrði gjaldþrota, vegna þess, í hve ríkulegum mæli síldin hefði veiðzt. Í þessu er sannleikskorn, en aðeins lítið sannleikskorn. Hvaða björgun var að síldveiðinni, ef ekki hefðu verið gerðar ráðstafanir til þess að hagnýta síldaraflann? Það er ekki nema mjög takmarkað, sem hægt er að selja af saltaðri síld, vegna hinnar miklu samkeppni, sem er á heimsmarkaðinum um þá voru. Ef ríkisvaldið og löggjafarvaldið hefði ekki gert þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið á undanfornum árum — einmitt af núv. stjórnarflokkum — til þess að hagnýta síldaraflann, þá hefði lítið gagn verið að allri síldargengdinni við Norðurland. Ef ekki hefði, sumpart gegn vilja sjálfstæðismanna, verið búið að reisa og kaupa og endurbæta síldarverksmiðjurnar í Norðurlandi, þá hefði lítið gagn orðið að síldinni, og þá hefði hún ekki bjargað landinu. En það er sú fyrirhyggja núv. stjónarflokka — og vel að merkja, þrátt fyrir andstöðu íhaldsins — að reisa síldarverksmiðjur, sem hefir gert það að verkum, að hægt var að notfæra sér hinn mikla síldarafla, sem náttúran færði að landinu síðastl. sumar.
Það er því eingöngu að þakka framsýni þeirra flokka, sem hafa reist síldarverksmiðjurnar í Norðurlandi, að landsmenn hafa bjargazt á síldinni síðastl. sumar, en ekki eingöngu af því, að svo vildi til, að síldveiði var þar með rífara móti, en síldargengd ekki meiri en í meðallagi.
Alþfl. er nú með skuldaskilum stórútgerðarinnar, vegna þess að hann telur líkur fyrir því, að von sé um vænlegan fjárhagslegan rekstur þessa atvinnuvegar. Tilraunir, sem fram hafa farið síðastl. ár, gefa vonir um, að nýbreytni í framleiðslu og hagnýtingu sjávarafla gæti gefið góðan arð fyrir sjávarútveginn. Og á þessu eru byggðar till. Alþfl. um viðreisn sjávarútvegsins. — Skal ég í eins stuttu máli og ég get lýsa þessu nokkru nánar, og þó með ofurlitlum formála.
Öllum er það kunnugt, að saltfiskmarkaðurinn er svo óviss með núv. ástandi í hinu fyrra aðalmarkaðslandi okkar, Spáni, að óráðlegt væri að gera sér vonir um að geta selt allan sjávarafla vor Íslendinga til hinna fyrri markaðslanda vorra. Það verður því að reikna með stórkostlegri breyt. á sölu sjávarafurða. Öllum er kunnugt, hve mikið afhroð ver Íslendingar höfum goldið í sölu á ísvörðum togarafiski á brezkum markaði með innflutningstolli þeim, er lagður er á allan fisk, sem fluttur er til Stóra-Bretlands. verður því að fara nýjar leiðir um meðferð og sölu fiskjar til Bretlands og aðrar en áður hefir tíðkazt. Nú vill svo vel til, að tilraunir hafa verið gerðar af fiskimálan. og fleirum, sem vel gefast, um sölu á íslenzkum fiski til Bretlands. Ef fiskurinn er tilhafður á réttan hátt, viðist vera nægur markaður til í Bretlandi og fleiri löndum fyrir allt það, er ver getum framleitt. Og þar er till. okkar Alþfl.manna um að reisa hraðfrystihús í hentugum stöðum nauðsynlegur liður.
Í hafinu umhverfis Ísland er mjög mikið af verðmætum fiski, og má þar búast við góðri sölu og arðvænlegum árangri, ef við getum búið hann út á þann hátt, að kaupendum erlendis falli hann í geð. Þar eru till. Alþfl. tvíþættar. Í fyrsta lagi, að breytt sé l. um dragnótaveiði í landhelgi, svo að hinum smærri mótorbátum sé gert kleift að afla verðmæts fiskjar og koma þeim afla á markað erlendis svo vel verkuðum, að aðrar þjóðir geti ekki gert betur; til þess eru hraðfrystihúsin nauðsynleg, eins og segir í till. okkar, og líkurnar fyrir góðum árangri af þessu eru tilraunir þær, sem gerðar hafa verið á undanförnum árum.
Vonirnar um arðvænlegan rekstur stórútgerðarinnar byggjast einnig á tilraunum þeim, sem af hálfu ríkisvaldsins hafa þegar verið gerðar. Fram að þessu hefir upsaveiði verið álitin til mestu óþurftar; togaraeigendur hafa látið skipverja sína henda þessum fiski fyrir borð, og sjórinn hefir í margra mílna fjarlægð borið lit af dauðum upsa. En nú hefir fyrir forgöngu ríkisstj. og fiskimálanefndar verið gert verðmæti úr upsa með því að herða hann, og hefir m. a. í vetur verið hengt upp til herðingar á þriðja þús. smálesta af upsa, sem talið er, að gefi sízt verri arðsvon en saltfiskur áður. Í öðru lagi hefir einnig fyrir forgöngu ríkisstj. og fiskimálanefndar verið hafin veiði á karfa, sem undir forustu íhaldsútgerðarmanna var ávallt fleygt í sjóinn aftur, og gefur sú veiði von um ekki alllítinn árangur. Og í þriðja lagi geta togararnir nú gengið til síldveiða yfir sumarið, nú þegar kostur er nægilega margra verksmiðja til þess að taka á móti afla þeirra, og gefið mjög góðan og arðvænlegan árangur.
En þó er ótalið í till. okkar Alþfl.manna, sem fjallar um endurnýjun togaraflotans og mér þykir einna merkilegast í till. Þótt nýtízku togarnir yrðu dýrir í upphafi, þá tel ég, að þar sé mesti möguleikinn fyrir arðvænlega stórútgerð, og byggi ég það á þeirri reynslu, sem fengin er.
Í fyrra var fenginn hingað til lands stór togari, Reykjaborg, og hefir rekstur þess togara hingað til að mestu verið tilraun, sem mikið má af læra. Í þessum togara eru fullkomnari tæki til hagnýtingar afla en í nokkrum öðrum íslenzkum togara. M. a. eru þar vélar til að vinna fiskimjöl úr beinum og fiskiúrgangi, svo sem hausum og hryggjum. Þessi togari kom inn núna á þriðja í páskum og hafði þá unnið úr hausum og fiskiúrgangi fiskimjöl, sem nam að verðmæti um 11 þús. króna. Þann sama dag, þriðja páskadag, komu hingað til Reykjavíkur fimm aðrir togarar, sem ekki höfðu nein tæki til þess að vinna verðmæti úr úrgangi. Glöggum manni hefir reiknazt svo til, að þessir fimm togarar hafi mokað í sjóinn seljanlegu verðmæti fyrir samtals hartnær 30 þús. kr., sem hefði verið hægt að hagnýta, ef skipin hefðu haft samskonar tæki eins og togarinn Reykjaborg.
Nýir togarar, sem væru byggðir, gætu auðveldlega haft þessi tæki og það á miklu haganlegri hátt en hægt væri að koma við, ef þau væru sett í gömul skip; og samkv. því, sem segir um reynslu togarans Reykjaborg hér að framan, eru mestar líkur til, að nýtízkutogarar gætu hagnýtt aflaverðmæti, er auðveldlega gætu borið uppi þann verðmismun, sem er á gömlum skipum og nýtízku botnvörpuskipum.
Að öllu þessu athuguðu og mörgu fleiru, sem ekki er hægt að koma að í stuttri ræðu, er það sannfæring okkar Alþfl.manna, að með rannsóknum og athugunum á möguleikum útgerðarrekstrar, sem fram hefir farið á undanförnum árum, þá sé fenginn grundvöllur, sem fullkomlega réttlæti þær till. um viðreisn sjávarútvegsins, sem við höfum flutt á Alþ. og hér hefir verið getið í stórum dráttum.