08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í C-deild Alþingistíðinda. (2242)
114. mál, stuðningur við togaraútgerðina
Pétur Magnússon:
Herra forseti! Það er vitanlegt öllum hv. þdm., að frv. á þskj. 161 er eigi fram borið í því skyni, að það nái nú fram að ganga. Það er ein af kosningabombum þeim, sem forystumenn Alþfl. láta dynja yfir þingið þessa síðustu daga, borið fram í því skyni að breiða yfir vanefndirnar á áður gefnum kosningaloforðum. Það má því segja, að tilgangslítið sé að eyða miklum tíma í að rökræða einstöku ákvæði frv., enda hefir flm. þess sjálfur eigi farið þá leið. Hinsvegar er stefna sú, er fram kemur í frv., þess verð, að henni sé gaumur gefinn. Aðalstefna frv. er sú, að draga ennþá einn veigamesti þátt atvinnulífsins úr höndum einstaklinganna og leggja hann í hendur ríkisvaldsins, gera útgerð togaraflotans að ríkisrekstri. Þegar þess er gætt, að í 10 ár samfleytt hefir verið að því unnið leynt og ljóst að lama framtak einstaklingsins og draga sem flestar atvinnugreinar undir ríkisvaldið, þá er það í sjálfu sér ekki óeðlilegt, að annar áratugurinn á valdaferli sósialistanna byrji með því að reynt sé að ná tangarhaldi á þessari atvinnugrein, sem stórvirkust hefir verið allra íslenzkra atvinnuvega, og mestan þátt hefir átt í þeim stórbreytingum, sem hér hafa orðið síðasta aldarfjórðunginn, — atvinnugrein, sem án efa mætti ennþá reka til hagsældar, ekki aðeins fyrir alla þá, sem að henni vinna, heldur fyrir landið í heild sinni, ef skynsamlega væri að henni búið.
Ástæðan, sem upp er gefin fyrir því, að nú skuli breytt til um tilhögun á rekstri togaranna, er sú, að togaraútgerðin hafi á síðustu árum gengið illa og að félögin, sem útgerðina hafa með höndum, séu mörg komin í fjárþröng. Ástæðan til þess er aftur talin sú, að þrengt hafi um markaði fyrir afurðirnar í markaðslöndunum. Þessi ástæða fyrir hnignun togaraútgerðarinnar, sem ekki verður á móti mælt, að átt hafi sér stað síðari árin, er þó ekki nema að nokkru leyti — og líklega að litlu leyti –hin sanna. Þrátt fyrir markaðstakmarkanir hefir hingað til tekizt að selja alla salfiskframleiðsluna, en hinsvegar má vel vera, að mikið framboð hafi valdið því, hve lágt verð hefir verið á saltfiskinum hin síðari ár, borið saman við aðrar vörutegundir. Hin raunverulega ástæða til hnignunar togaraútgerðarinnar liggur vitanlega í því, að til hennar hafa verið gerðar of háar kröfur, bæði um tilkostnað við fiskframleiðsluna og skattaálögur. Þessar kröfur hafa stafað sumpart af beinum illvilja sumra valdamanna í garð þessa atvinnurekstrar og þeirra, sem forystu hafa haft í honum, en sumpart eru þær áhjákvæmileg afleiðing þeirrar stjórnarstefnu, sem fylgt hefir verið síðasta áratuginn og nú verður ekki annað séð en að leiða muni fullkominn ófarnað yfir þjóð vora. Allir menn, sem einhverja ábyrgðartilfinningu hafa, hljóta að játa það, að á þessu þurfi að verða breyting. Togaraútgerðin er ennþá svo stór þáttur í atvinnulífi landsins, að það væri fullkomin þjóðarógæfa, ef hún þyrfti að fara í rústir án þess að ný sambærileg atvinnugrein væri áður sköpuð. Ennþá hefir það verið svo, að togararnir hafa boðið upp á betri atvinnuskilyrði en flest eða öll atvinnutæki, og þúsundir verkamanna og sjómanna eiga lífsafkomu sína undir heilbrigðum rekstri þeirra. Það væri því vissulega þess vert, að leitað væri ráða til að koma rekstri þeirra aftur á þann heilbrigða grundvöll, sem reynslan ótvírætt sýndi, að hann hvíldi á. En eigi tillögur þar að lútandi að vera teknar alvarlega, verða þær að gera það á einhvern hátt sennilegt, að hlutfallið milli kostnaðarins við rekstur togaranna og verðmætis afurða þeirra verði hagstæðara en verið hefir að undanförnu. Skal nú athugað, að hve miklu leyti tillögur þær, sem fram koma í frv. á þskj. 161, uppfylla þessi skilyrði.
Í orði kveðnu er það nú látið heita svo í frv., að stofna skuli hlutafélag til að reka togaraútgerð og að þetta nýja hlutafélag eigi að taka að sér rekstur allra þeirra togara, sem nú eru í höndum manna eða félaga, sem komnir eru í fjárþröng. Á í þessu skyni að hafa almennt hlutaútboð. En ef betur er að gáð, er þetta hlutafélagsform ekkert annað en blekking. Hvorki forystumönnum sósíalista né öðrum kæmi til hugar að leggja fram fé sem nokkuru næmi til áhættu í fyrirtæki, sem stofnað er til á þennan hátt. Í framkvæmdinni hlyti þetta því að verða þannig, að togararnir yrðu reknir fyrir reikning og á áhættu ríkissjóðs, með nokkurri hlutdeild frá aðalbönkum landsins, enda segir 3. liður 3. gr. frv., að framlag ríkissjóðs skuli nema þeirri upphæð, sem á vantar, að hlutafé skv. 1. og 2. lið nemi fullri hlutafjárupphæð. Það mætti nú að sjálfsögðu ýmislegt um það segja, að fé bankanna sé lagt í beina áhættu í slíku fyrirtæki, sem hér er um að ræða. Það hefir oft verið á það minnzt, að íslenzkur bankarekstur sé fulláhættusamur, þó reynt sé að taka þær tryggingar fyrir lánveitingum til atvinnurekstrarins, sem fengnar verða. En þó tæki út yfir, ef bankarnir ættu að setja það fé, sem þeim er trúað fyrir, sem beint áhættufé í atvinnugrein, sem með óbreyttri tilhögun eru engar líkur til, að gæti skilað því aftur. Það er hætt við, að slík tilhögun geti leitt til þess, að menn í enn stærri stíl en orðið er tækju að ávaxta fé sitt sjálfir án milligöngu bankanna. Það sýnist mjög hætt við því. En það mun naumast verða litið svo á, að lánastarfseminni sé betur komið á þann veg, að menn yfirleitt önnuðust hana sjálfir. Hinsvegar má sjálfsagt með réttu segja, að hlutdeild bankanna í þessu hugsaða útgerðarbákni sósíalistanna verði frekar aukaatriði. Aðalþunginn af útgerðinni hlýtur að hvíla á ríkissjóði. Það, sem í þessu máli þarf því fyrst og fremst athugunar við, er þetta: Er það heppilegra, að ríkissjóður hafi á hendi útgerð togaranna en einstaklingarnir? Er það heppilegra fyrir ríkissjóðinn sjálfan, eða er það heppilegra fyrir þá, sem eiga lífsframfæri sitt undir þessum atvinnurekstri?
Því verður nú að sjálfsögðu ekki móti mælt, að einkarekstur togara, eins og allur frjáls atvinnurekstur, hefir sína ágalla. Til þess að atvinnurekstur fari vel úr hendi, þurfa þeir menn, er veita honum forstöðu, að hafa sæmilega þekkingu á starfa sínum og vera þeim hæfileikum búnir, sem sá sérstaki rekstur útheimtir. Í frjálsum rekstri er vitanlega aldrei trygging fyrir, að eigi ráðist aðrir til slíkra starfa en þeir, sem þessum kostum eru búnir. Reynslan sýnir, að slíkt kemur þráfaldlega fyrir. En þessir ágallar hins frjálsa rekstrar koma undantekningarlitið mjög fljótt í ljós. Ef forstöðumaðurinn eða forstöðumennirnir eru eigi starfa sínum vaxnir, nær fyrirtækið sjaldan miklum vexti, og verður því eigi heldur mjög þýðingarmikill þáttur í atvinnulífi landsins. Það verður því jafnaðarlega ekki heldur mikill héraðsbrestur, þó þessi fyrirtæki falli. Ef fyrirtækin hinsvegar ná miklum veati og blómgast, má heita, að trygging sé fyrir því, að þar séu réttir menn að verki, — menn, sem séu starfa sínum vaxnir. Hitt er annað mál, að í öllum áhætturekstri geta komið fyrir ófyrirsjáanleg atvik, er hnekki rekstrinum, auk þess sem jafnan er hægt að búa þannig að hverjum atvinnurekstri af hálfu ríkisvaldsins, að hann fái eigi staðizt. En einmitt í þessu, sem ég áður nefndi, liggja bæði kostir og gallar hins frjálsa atvinnurekstrar. Kostirnir eru þeir, að hann veitir þá tryggingu, sem yfirleitt er unnt að fá fyrir því, að réttir menn veljist til starfa, — gallarnir í hinu, að fleiri eða færri verða undir í baráttunni. En allir ættu að geta verið sammála um það, að á því velti mikið fyrir þjóðfélagið í heild sinni, að færustu menn veljist til forstöðu hinna stærstu og þýðingarmestu atvinnufyrirtækja landsins.
En hvernig mundi þetta nú horfa við, ef litið er til ríkisrekstrarins? Hefir maður leyfi til að ganga út frá því, að þegar farið yrði að velja menn til að veita forstöðu þessu risafyrirtæki þeirra sósíalistanna, yrði á það eitt lítið, að forstöðumennirnir hefðu þá þekkingu, þá reynslu og þá hæfileika, sem beztir fyndust hjá þjóðinni? Ég vildi sjá framan í þann mann, sem treysti sér til að bera fram slíka staðhæfingu. Sá maður hefði a. m. k. ekki mikla trú á reynslunni. við höfum orðið dálitla reynslu í því hér á landi, eftir hverju er farið við val forstöðumanna ríkisfyrirtækja. Og reynslan bendir vissulega ekki í þá átt, að það séu þessi sjónarmið, sem mestu ráði um valið. Pólitískir verðleikar, velvild valdhafanna og þarfir ráðandi flokka hafa þar meira að segja.
Það þarf ekki annað en að minna á, hvernig forstaða hefir verið valin fyrir fyrirtæki eins og síldareinkasöluna og síldarverksmiðjur ríkisins, sem hvorttveggja voru eða eru risastór atvinnufyrirtæki. En það má heita, að undantekning sé, að í stjórn þessara fyrirtækja hafi verið valdir menn, sem sérstaka reynslu eða þekkingu hafi haft á starfi sínu. Það er í þessu sambandi varla hægt að komast hjá að minnast lítilsháttar á umr. þær, sem farið hafa fram undanfarna daga hér í þessari hv. deild út af stjórn síldarbræðslnanna, og þeirra hnippinga, sem hafa orðið milli stjórnarflokkanna út af því máli. Báðir hafa flokkarnir verið innilega sammála um það, að aðalsjónarmiðið við val manna í stjórn þessa mikla fyrirtækis ætti að vera flokkssjónarmiðin og að hæfilegu jafnvægi milli flokkanna þyrfti að halda í stjórninni. Hitt virðist mönnum ekki hafa komið til hugar, að gera þyrfti nokkrar kröfur um kunnáttu eða reynslu. Og það liggur við, að broslegt hafi verið að heyra ádeilurnar, sem fram hafa komið á núv. stjórn verksmiðjanna, og varnirnar, sem fram hafa verið bornar fyrir hana. Framsóknarmennirnir deila á Alþfl. fyrir það, að stjórnin hafi sýnt hlutdrægni í vali starfsmanna við verksmiðjurnar og látið Alþfl.menn sitja þar fyrir. Atvmrh. neitaði þessu harðlega og sagði, að það hefðu verið teknir aðeins tveir fastir starfsmenn að verksmiðjunum, og annar þeirra hefði verið Alþfl.maður, en hinn framsóknarmaður. Jafnar fanst honum ekki hægt að skipta milli flokkanna. En framsóknarmennirnir svara því þá aftur, að það sé ekki vel að marka þetta, því að miklu fleiri Alþfl.menn en framsóknarmenn hafi verið teknir í ýmsa lausavinnu við verksmiðjurnar. Vesalings íhaldið talar nú vitanlega enginn um í þessu sambandi, eða að það þurfi nokkra atvinnu að fá. Og um aðra hæfileika þessari starfsmannna en flokkslitinn hefir aldrei verið talað, og ekkert út á þá sett. Ég rifja þetta upp hér einungis til að vekja athygli á því, hve gerspilltur hugsunarhátturinn er orðinn í þessum efnum, þegar jafnvel gáfaðir menn geta talað af svo barnslegri einfeldni í heyranda hljóði, og það á sjálfu Alþingi þjóðarinnar.
En í þessu liggur nú einmitt önnur aðalhætta ríkisrekstrarins. Hún liggur í því, að forstaðan er ekki valin eftir hæfileikum og þekkingu, heldur eftir pólitískum þörfum. Og þar sem allir hljóta að vera sammála um, að afkoma atvinnurekstrarins sé að æðimiklu leyti undir stjórn hans komin, er það augljóst mál, að ríkisrekstur út af fyrir sig veitir eigi auknar, heldur minnkaðar líkur fyrir, að atvinnunni verði haldið í sæmilegu horfi.
Um hitt þarf naumast hér að ræða, hve geysileg hætta er á því, að það vald verði misnotað, sem stjórn atvinnurekstrarins, fylgir, þegar búið er að draga hann allan undir einn hatt og flokkspólitísk sjónarmið eru lögð til grundvallar. Þá fyrst eru fullkomnuð skilyrðin fyrir þeirri skoðanakúgun og hefndarpólitík, sem stórlega hefir gert vart við sig í allri framkomu stjórnarflokkanna á hinum síðari árum.
Það leiðir nú af sjálfu sér, að ef það er rétt á litið, að líkurnar fyrir heilbrigðum rekstri útgerðarinnar fari minnkandi, en ekki vaxandi, með því að hverfa frá einkarekstrinum yfir í ríkisreksturinn, þá er sú breyting sízt æskileg fyrir þá, sem lífsframfæri sitt eiga að hafa af þessari atvinnugrein. Þegar til lengdar lætur, hlýtur afkoma atvinnurekstrarins að segja til um það, hvað þeir, sem að honum vinna, bera úr býtum. Það er hægt að reka hallabúskap meðan verið er að éta upp það fé, sem í rekstrinum stendur, en ekki heldur mikið lengur.
Áður en ég skilst við þessa hlið málsins, ætla ég að drepa stuttlega á aðra hættu, sem jafnan er samfara öllum stóratvinnurekstri ríkisins, ekki sízt þar sem um áhættusama framleiðslustarfsemi er að ræða, eins og yfirleitt á sér stað hér á landi. En sú hætta liggur í því, að jafnvel þó valdir væru hinir vitrustu menn og hæfustu til að veita atvinnunni forstöðu, þá getur þeim þó jafnan yfirsézt. Mennirnir eru nú einu sinni ekki fullkomnir, og það verður ekki meira heimtað af þeim en að þeir geri eins vel og þeim er auðið. En þegar búið er að draga stóra og þýðingarmikla atvinnugrein undir sameiginlega stjórn, verða öll mistök í stjórninni yfirleitt ákaflega afleiðingarík og valda mikilli truflun í atvinnulífinu. Og ef illa fer og fyrirtækið fer alveg í rústir, getur það leitt til beins þjóðarvoða. Í einkarekstrinum horfir þetta öðruvísi við. Fallið verður þar yfirleitt ekki eins hátt, þó eitthvað beri út af með einhver atvinnufyrirtækin. og truflun atvinnulífsins því miklu minni. Þetta er og nauðsynlegt að hafa í huga, þegar velja á milli einkarekstar og ríkisrekstrar.
Þá skal næst stuttlega athugað. hvernig þetta mál horfir við að því er til ríkissjóðsins sjálfs tekur. Ég skal nú ekki ræða mikið um það út af fyrir sig, hve heppilegt það muni vera, eins og hag ríkissjóð, er nú komið, að stofna til nýrra milljónalántaka til að setja í áhætturekstur. Hv. 4. landsk. kvaðst að vísu óhræddur að stofna til lántöku til nýbreytni í útgerð. Látum það gott heita, ef líklegt væri gert, að sú breyting væri til hagsbóta. En það er bara það, sem á vantar. Og líklega munu margir líta svo á, að ríkissjóðurinn geri ekki betur en að standa undir þeim klyfjum, sem þegar eru á hann lagðar. En jafnvel þó öðruvísi stæði á og hagur ríkissjóðs stæði með blóma, þá er það út af fyrir sig varhugavert, ekki sízt með tilliti til trausts landsins út á við, að láta ríkissjóðinn blanda sér mjög í allskonar áhættustarfsemi. Þar gegnir allt öðru máli um fyrirtæki eins og einkasölurnar, sem þannig er frá gengið, að ríkissjóður sjálfur getur naumast eða ekki tapað á. Að vissu leyti má ef til vill segja, að fyrir þjóðarheildina skipti það ekki svo mjög miklu máli, hvort töpin lendi á ríkissjóði eða á bönkunum, en fyrir traust landsins út á við skiptir þetta þó nokkru máli. Það er t. d. engum efa undirorpið, og hefi ég fullar sannanir fyrir því, að ýmsir útlendir viðskiptamenn Síldareinkasölunnar litu á gjaldþrot hennar sem nokkurskonar ríkisgjaldþrot, og má nærri geta, hver áhrif slík skoðun muni hafa fyrir viðskipti landsins í heild sinni. Einnig af þessum ástæðum væri því slíkt fyrirtæki sem það, er frv. á þskj. 161 gerir ráð fyrir, mjög svo varhugavert.
Ég þykist nú hafa leitt nokkur rök að því, að það út af fyrir sig sé engin leið út úr ógöngum þeim, sem togaraútgerðin er komin í, að henni sé breytt í ríkisrekstur. En vissulega er viðreisnar þörf. Og leið út úr ógöngunum verður að finna, ef ekki á að leiða til stórógæfu. Fjórar leiðir eru hugsanlegar. Í fyrsta lagi hækkað afurðaverð. Það hefir, sem betur fer, átt sér stað nú um aðra stærstu framleiðslutegund sjávarútvegsins, síldarafurðirnar. En jafnvel þó sú verðhækkun héldist, er hæpið, að hún ein nægi til þess að togaraútgerðin rétti við. En annars er það því miður svo, að við ráðum að litlu eða engu leyti yfir verðlaginu á framleiðsluvörum okkar, heldur verðum við þar að beygja okkur fyrir hinu almenna verðlagi á heimsmarkaðinum. Það er því ekki hægt að benda á verðhækkun sem neina örugga leið út úr ógöngunum. — Næsta leiðin, sem benda mætti á, eru skattaívilnanir meðan á örðugleikunum stendur. Sú leið væri ef til vill hugsanleg, ef samtímis færi fram niðurfærsla á rekstrarútgjöldum ríkisins. Mjög er þó hæpið, að þetta eitt út af fyrir sig væri nægilegt til viðreisnar. Þriðja leiðin, sem tala mætti um, er betri hagnýting afurða. Allir geta vitanlega verið sammála um það, að jafnan beri að keppa að því að gera framleiðsluna sem verðmætasta og taka upp þá nýbreytni í atvinnuháttum, sem breyttir tímar krefjast. Þetta hefir og verið gert í ýmsum efnum, en ég býst þó við, að það þætti of mikil bjartsýni að staðhæfa, að nýbreytni, sem hingað til hefir verið bent á, muni leiða togaraútgerðina út úr orðugleikunum. Fjórða leiðin er sú, að takmarka kostnað atvinnurekstrarins við tekjur hans. Sú leið er vitanlega ekki sársaukalaus, vegna þess að hún leiðir óhjákvæmilega af sér kauplækkun hjá öllum þeim, sem við atvinnureksturinn vinna, en þeir hafa margir hverjir of litlar heildartekjur með því kaupgjaldi, sem nú er greitt. En það þýðir hinsvegar ekki að loka augunum fyrir þeim sannleika, að atvinnurekstur, sem til lengdar gefur minni tekjur en tilkostnaðinum nemur, hlýtur óhjákvæmilega fyrr eða síðar að fara í rústir. Og það mun vissulega ekki heldur verða sársaukalaust, ef jafnþýðingarmikil atvinnugrein eins og togaraútgerðin ætti að fara í rastir. Það þýðir ekki að loka augunum fyrir því, að vinnuaflið verður óhjákvæmilega. hvort sem atvinnan er rekin af ríkinu eða af einstaklingunum, að laga sig eftir afurðaverðinu. Afleiðing þess er sú, að þegar verðlag afurða hækkar, á kaupið að hækka, eins og það einnig verður að fylgja verðlaginu niður á við. Ef út af þessu er brugðið, siglir atvinnuleysið, með öllu því böli, sem því fylgir, í kjölfar taprekstrarins, en það leiðir aftur óhjákvæmilega til lægri heildartekna verkalýðsins. Þessar meinsemdir atvinnulífsins verða aldrei læknaðar með orðagjálfri eða með því að æpa á strætum og gatnamótum, heldur með því einu að horfast rólega í augu við staðreyndirnar og reyna með rólegri yfirvegun og skynsemd að finna leiðir út ar ógöngunum.