08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í C-deild Alþingistíðinda. (2245)
114. mál, stuðningur við togaraútgerðina
Jónas Jónsson:
Þegar frv. það, sem hér liggur fyrir, kom fyrst fram, sagði einn af reyndustu mönnum Alþingis um það þessi eftirtektarverðu orð: „Fyrst á að gera útgerðina gjaldþrota, síðan á að koma öllum þessum rekstri á landið og gera það gjaldþrota“. — Samherji minn, hv. 1. þm. Eyf., Bernharð Stefánsson, hefir nú gagnrýnt þetta frv. og leitt óyggjandi rök að því, að hér er sannarlega ekki um neina viðreisn að ræða, heldur áframhald af skipulagi, sem ekki hefir staðizt dóm reynslunnar.
Ég sný mér þá að framtíðinni og þeim úrræðum, sem við framsóknarmenn leggjum til, að fylgt verði í þessu efni. Þau eru ekki ný, en þau hafa alstaðar reynzt vel, þar sem þau hafa verið notuð. við álitum, að hver dugandi maður verði fyrst og fremst að hjálpa sér sjálfur. En sá, sem hjálpar sér sjálfur, gerir sig þess maklegan, að aðrir hjálpi honum. Þegar samvinnumenn fóru að hafa áhrif á löggjöf landsins beittu þeir þessari aðferð. Með byggingar- og landnámssjóði hefir mörg hundruð bændum verið hjálpað til að fá lán í bæi sína með óvenjulega góðum vaxtakjörum. Til að byggja nýbýli fá dugandi menn fyrir atbeina Framsfl. hentug lán til ræktunar og byggingar, en áhætta atvinnunnar, hvílir á nýbýlingunum sjálfum.
Fyrir forgöngu framsóknarmanna veitir ríkið styrk til að byggja mjólkurbú og frystihús. En áhætta framleiðslunnar og rekstur fyrirtækjanna hvílir á herðum bændanna. Og þegar við framsóknarmenn tókum forustu í síldarverksmiðjubyggingunni á Siglufirði, í mikilli andstöðu við samkeppnismennina á Alþingi, þá byggðum við á sömu stefnu. Sjómenn og útgerðarmenn voru þá hörmulega haldnir undan kúgunarhæl innlendra og erlendra fjárplógsmanna, sem áttu nokkur bræðslufyrirtæki. Við sigruðum, og ríkið byggði ágæta verksmiðju og hefir bætt fleirum við síðan. En við gerðum það að skilyrði, að síldarbræðslan yrði rekin á samvinnugrundvelli, að sjómenn og útgerðarmenn gætu fengið meiri hlutann af áætluðu verði vörunnar um leið og þeir afhentu hana, en að lokaverðið kæmi fram við endanlega sölu á afurðum verksmiðjunnar. Þá fékk hver sinn hlut nákvæmlega eins og hann var, í erfiðum árum minna, en í góðum árum meira, alveg eins og á að vera í allri samvinnu, sem rekin er á heilbrigðum grundvelli. Þar sem samvinnumenn ráða einir framkvæmdum, þá fylgja þeir þessari reglu dyggilega. Bændur og nýbýlingar í sveif hafa fengið styrk og lán og lækkaða vexti, í byggingar, ræktun, frystihús og mjólkurbú. En engum skynsömum bónda dettur í hug, að búskapur eða iðnrekstur sveitanna eigi að hverfa af herðum framleiðenda sjálfra yfir á bók allra skattþegnanna. Hin mikla viðreisn sveifanna síðan núv. stj. tók við völdum byggist nálega eingöngu á því, að þjóðfélagið hefir á varanlegan og framsýnan hátt stutt framleiðendurna, sem hjálpuðu sér sjálfir.
Öðru máli er að gegna um síldarverksmiðjur ríkisins. Þar hafa íhaldsmenn og sósíalistar hjálpazt að því að brjóta í orði og verki stofnlögin og gera verksmiðjurnar að áhættufyrirtæki fyrir ríkið. Af því að hér er um að ræða fyrirtæki, sem framsóknarmenn hafa stofnað á hagfræðilega réttum grundvelli, en fulltrúar hinna tveggja flokkanna sett í hættu með nærsýnni eigingirni, þá getur saga þessa fyrirtækis varpað ljósi yfir frv. það, sem hér er til umr.
Íhaldsmenn og sósíalistar hafa knúið það fram, að ríkið kaupir síldina, vinnur úr henni og selur afraksturinn. Allur reksturinn er á ábyrgð ríkissjóðs. Íhaldsmenn þóttust gera þetta, að ganga alveg frá stefnu sinni og inn á opinbera þjóðnýtingu, vegna útgerðarmanna. Alþfl. tók þessari hjálp Íhaldsins fegins hendi. Opinberlega töldu „sósar“, að hér væri verið að vinna fyrir sjómennina, til þess að þeir gætu fengið allt sitt strax, og án áhættu í afkomu atvinnunnar. En raunverulega glöddust þeir yfir því að hafa í þessum mikilsverða atvinnurekstri beygt íhaldið möglunarlaust undir þjóðnýtingu.
Og hver er svo útkoman? Stjórn verksmiðjanna hefir stöðugt verið að breytast, sífelld mannaskipti og ókyrrð um reksturinn. Hinum gætilega grundvelli framsóknarmanna, að borga hverjum sitt, eftir því sem afkoman var hvert ár, var kippt í burtu, og botnleysi áhættubrasksins sett í staðinn. Nú er á engu að byggja um verðlag og útborgun.
Árið 1935 var tap á rekstri verksmiðjanna með því að greiða 4 kr. fyrir málið. Árið 1936 var verðið hækkað upp í kr. 5.50, af augnabliksverðhækkun í sambandi við vígbúnað stórþjóðanna. En þá sagði einn af leiðtogum íhaldsmanna, að vel mætti borga 6–7 kr., eða jafnvel 8 kr. fyrir síldarmálið, og eggjaði sjómenn lögeggjan að gera heldur verkfall í byrjun veiðitímans en líta við lægra verði en hann tiltók.
Nú fór svo að lokum, að verksmiðjan græddi nokkuð með því að verksmiðjustjórnin setti verðið ekki hærra en kr. 5.50 málið. En í vetur koma íhaldsmenn hér á þingi með kröfu um, að ríkið bæti útvegsmönnum upp verðið frá í sumar, svo að það lenti líka í ár í tapi með reksturinn.
Ríkisbræðslurnar áttu að vera skuldlausar nema fyrir stofnkostnaði. En nú dragast þær með 300 þús. kr. rekstrartap frá undangengnum árum. Í sumar sem leið græddist nokkuð, og var þá einsætt að greiða rekstrartapið. En það datt forstjóranum ekki í hug. Hann vildi láta gömlu skuldirnar standa, leggja gróðann frá í fyrra í stækkanir á Siglufirði og fá lán í viðbót. Landsbankinn átti fyrst að líða um gömlu skuldirnar, 300 þús. kr., þar næst að leggja fé í umbætur og loks að lána allt fjármagnið til þess að halda uppi rekstrinum næsta sumar.
Nú verður mér að spyrja íhaldsmenn og sósíalista, sem bera ábyrgð á þessari þjóðnýtingu: Hvenær á síldarbræðslan á Siglufirði að borga rekstrartöp undanfarinna ára, fyrst þeir vilja ekki nota hinn óvænta ágóða frá síðastl. sumri til þess? vilja þeir heldur verðleggja síldina á sumri komanda svo lágt, að þá myndist gróði upp í skuldina? Eða ætla þeir að láta skuldina standa í Landsbankanum, hlaða á hana nýjum töpum, og svo að lokum að velta tapinu einn góðan veðurdag yfir á ríkissjóðinn og skattþegnana? Nú líta menn svo á, að síldarbræðsla sé ef til vill gróðavænlegasta framleiðslustarfsemi, sem rekin er í landinu. Ef hún á að vera tekjuhallarekstur, sem mögru atviunuvegirnir bera hallann af, þá má segja, að þjóðnýting sóaíalista og íhaldsmanna á Siglufirði gefi góðar vonir um álitlegan bagga fyrir skattþegnana, þegar sama stefna er tekin upp í rekstri togaranna.
Ég sný mér þá að því, sem mér sýnist frá sjónarmiði Framsfl. eðlilegast að gera við togarafélög þau, sem nú kunna að lenda í greiðsluvandræðum:
1. Bankarnir gera upp þau fyrirtæki, sem ekki eiga fyrir skuldum og eru sokkin fjárhagslega.
2. Bankarnir selja þessi skip með tilheyrandi eignum í landi nýjum eigendum, einstökum mönnum, hlutafélögum eða samvinnufélögum.
3. Bankarnir verða að setja undir eftirlit þau útgerðarfyrirtæki, sem ekki eru þrotin, en þó svo illa stödd, að áhætta er að lána þeim. Slíkt eftirlit er mjög algengt með stærri þjóðum. Þannig eru ekki nema fá ár síðan bankarnir í Kaupmannahöfn létu telja á hverju kvöldi sjóð í tveim stærstu og þekktustu stórbúðum í borginni.
Það er vitanlega rétt, sem sagt er í frv. því, sem hér liggur fyrir, að togaraútgerðin ber sig ekki um þessar mundir í höndum margra útgerðarmanna, þó að sumum gangi betur. Það má segja, að tap suðrænu markaðanna og innflutningshömlurnar í Bretlandi og Þýzkalandi séu fyrsta ástæðan. En næst koma innlendar orsakir. Íhaldsmenn og sósíalistar hafa verið í kapphlaupi um að leggja byrðar á útgerðina. Svokallaðir eigendur togaranna og margir yfirmenn þeirra hafa byggt sér dýr skrauthýsi og lifað kostnaðarsamara lífi heldur en íslenzkir atvinnuvegir þola. — Skipstjórunum hefir verið borgað kaup af brúttóafla, en það hefir leitt til óhæfilegrar eyðslu í öllum rekstrinum. Á hinn bóginn hafa sósíalistar gert kröfur um aukið mannahald til að skapa atvinnu án þess að taka tillit til fjárhagslegrar getu fyrirtækjanna. Öll vinna við togarana, bæði á sjó og í landi hefir verið dýr, og mér vitanlega hefir ekkert verið gert, hvorki af hálfu útvegsmanna eða sósialista, til að bæta úr því.
Menn hafa með réttu fordæmt þá útgerðarmenn, sem lagt hafa fé togarafélaganna í skrauthýsi, sem ekki er hægt að búa í nema fyrir stórauðuga menn. En verkamannaleiðtogarnir hafa tekið þetta til fyrirmyndar, sem og sest á kröfum þeim, er Alþýðublaðið hefir beitt sér fyrir nú nýverið, um allt að 25% kauphækkun hér í bænum, samhliða því, að varla er hægt að koma veiðiskipunum út á vertíðinni vegna erfiðrar afkomu, áður en þessi nýju útgjöld koma til sögunnar.
Mér sýnist sem forkólfur íhaldsmanna og sósíalista hafi verið samdóma um, að togaraútgerðin væri hæna, sem verpti gulleggjum, og að hin rétta meðferð væri að slátra henni, en ekki að láta hana lifa og verpa gulleggjum.
Barátta íhaldsmannanna og sósíalistanna við sjóinn er um það, hver málsaðilinn geti hrifsað meira í sinn hlut af andvirði framleiðslunnar. En fram að þessu hafa bankarnir borgað herkostnaðinn. En það er engan veginn ótímabært að athuga, hve lengi sú leið er fær.
Meginástæðan til andstöðu framsóknarmanna gegn ríkisrekstri er sú, að við trúum ekki á, að menn afkasti nægilega mikilli og góðri vinnu á þann hátt, og að útkoman verði taprekstur.
Það er vitað, að mestu afkastafyrirtæki heimsins, eins og bifreiðaverksmiðjur Fords eða sápuverksmiðjur Lever-bræðra, komast svo langt sem raun ber vitni um af því þær beita ýmist akkorðsvinnu eða láta verkamennina eiga hlut í fyrirtækinu.
Núv. valdhafar á Rússlandi reyndu fyrst þjóðnýtingu, þar sem allir fengu jafnt kaup og tímakaup. En mjög fljótt sáu bolsivikarnir, að annaðhvort urðu þeir að beita akkorðsskipulagi, eins og Henry Ford, eða fara á höfuðið. Þeir tóku fyrri kostinn, og sú blómgun, sem kann að vera á vissum sviðum í atvinnulífi Rússa, er fyrst og fremst að þakka því, að framleiðslan er látin bera sig og hver uppsker eins og hann hefir til unnið.
Í Danmörku, Svíþjóð og Noregi eru sósíalistar yfirleitt fjarri þjóðnýtingu. Í þessum löndum hlynna fulltrúar sósíalista að einstaklingsframtakinu, og mér er ekki kunnugt um, að í framangreindum löndum detti leiðtogum jafnaðarmanna í hug að beitast fyrir almennum ríkisrekstri. Jafnvel í Englandi bólar nú ekkert á kröfum verkamanna um, að ríkið kaupi kolanámurnar. Meðan verkamannaflokkar, sem bera ábyrgð á stjórn ríkisins, eins og í Rússlandi, sjá enga leið til að tryggja afkomu framleiðslunnar nema með að taka upp akkorð stóriðjuhöldanna í Ameríku, er ekki hægt að segja, að byrlega blási með þjóðnýtngu íslenzku sósíalistanna.
Við framsóknarmenn höldum því hiklaust fram, að ef útgerðin ber sig ekki nú, þá myndi hún bera sig ennþá verr í höndum ríkisins. Kröfur allra, sem kynnu að vinna við fyrirtækin, yrðu enn hóflausari en áður, og sem kjósendur í lýðræðislandi hefðu þessir menn sérstaklega góða aðstöðu til að fá áheyrn um kröfur sínar, ekki sízt þegar litið er á hinar ábyrgðarlausu yfirboðskröfur íhaldsmanna og sósíalista, svo ekki séu nefndar fylgislausu flokksnefnurnar, sem standa að baki þeim. En vil taka eitt dæmi, sem allir landsmenn þekkja, samvinnuútgerðina á Ísafirði. Fram yfir kreppu þá, sem fylgdi heimsstyrjöldinni, voru þar smákóngar í íhaldsstíl, erlendir og innlendir, fiskspekúlantar, velbátaeigendur, jafnvel togaraeigendur. En í þessari kreppu hrundi ríki smákónganna með ógurlegu tapi fyrir bankana. Ísafjörður stóð eftir án atvinnutækja og atvinnu, en með mikinn fjölda hraustra sjómanna, sem stóðu á eyrinni.
Á Alþingi 1928 hjálpuðum við framsóknarmenn sósialistum á Ísafirði til að fá ríkisábyrgð til að koma upp myndarlegum nýtízkuvélbátaflota. Þrír duglegir og vel hæfir menn stýrðu framkvæmdunum heima fyrir, þeir Haraldur Guðmundsson, Finnur Jónsson og Vilmundur Jónsson. Sjómannastétt Ísafjarðar var og er í bezta lagi. Smíði bátanna, val á hreyfivélum o. s. frv. virðist hafa tekizt vel. Finnur Jónsson hefir auk þess haft aðstöðu til hin síðustu ár, sem leiðtogi í síldarútvegsmálum, að halda uppi hlut þessarar útgerðar við síldveiði norðanlands.
Að mínu áliti var undirbúningur og rekstur samvinnubátanna á Ísafirði stórum betri en ef gera má ráð fyrir, að þjóðnýting í útvegi yrði almenn hér í landi. En samt hefir þessi útgerð, þrátt fyrir alla þessa aðstöðu, ekki borið sig, jafnvel ekki þó að hún hefði auk þess velviljað bæjarfélag á bak víð sig. Þessi útgerð hefir safnað skuldum eins og fyrirtæki samkeppnismanna. Hún hefir, eins og önnur skyld fyrirtæki, fengið mikinn létti í skuldaskilasjóði. En slíkur léttir fæst ekki og á ekki að fást hvern dag. Ísfirðingar verða eins og aðrir að búast við því, að útgerð verði að bera sig. Hvorki bankarnir eða ríki geta borgað tekjuhalla á meginframleiðslu þjóðarinnar.
Hvað hefir verið að á Ísafirði? Hið sama, og í síldarbræðslunum. Þar átti að vera hlutarráðning, því að félagið átti að vera samvinnufélag. Og að verulegu leyti hafa sjómennirnir verið upp á hlut. En oft fengust menn ekki sem hlutarmenn, og þá voru menn ráðnir upp á fast kaup. Og þar á ofan var allt fólk við fiskverkun í landi á föstu kaupi. Það kom jafnvel fyrir, að fólkið, sem vann í landi, gerði verkfall, þegar slíkt þótti byrvænlegt, og á þann hátt voru útgjöld fyrirtækisins aukin og það sett í hættu.
Samvinnubændurnir fara ekki þannig að. Þeir gera ekki verkfall móti sjálfum sér, og raunar ekki heldur móti öðrum. Þeir hafa þokað málum sínum áfram með skapandi krafti og dæmafárri þrautseigju. Þess vegna hafa þeir tryggt afkomu sína svo sem raun ber vitni um.
Smákóngar Ísafjarðar hrundu með atvinnurekstur sinn. Þar lokaðist leið íhaldsins. Hálfgildingsþjóðnýting sósíalista á Ísafirði hefir lent í verulegum vandræðum, þrátt fyrir óvenjulega góða aðstöðu að því er snerti vinnuhæfni og reglusemi þeirra, er að fyrirtækinu standa. Ísfirzku sósíalistarnir eru líklegir til að reka bát sinn á sama skerið eins og smákóngarnir, nema þeir læri af reynslunni og taki upp fullkomin hlutaskipti í allri framleiðslu sinni, og þar er framtíðarlausn málsins.
Nú fer að nálgast sá tími, að synir Thor Jensen, Jón Ólafsson í Alliance, Sigurjón Ólafsson, formaður Sjómannafélagsins og Jón Sigurðsson, erindreki Alþfl. fara að hafa fulla ástæðu til að tala í ró og næði saman og við framsóknarmenn um framtíð útgerðarinnar. Ekki fyrst og fremst um það, hvaða erlend lán eigi að taka í tekjuhalla útvegsins. Ekki heldur um það, hversu þau kreppubréf eigi að vera, sem íslenzka ríkið gefi út til þess að standast þennan tekjuhalla, heldur blátt áfram um það einfalda úrræði, sem verður að taka upp í útvegsmálum, ef skipin og bátarnir eiga ekki að hvíla sig í höfnum meðan verkamenn, sjómenn, vélstjórar, skipstjórar og svokallaðir stórútgerðarmenn ganga atvinnulitlir í landi. af því að það borgar sig ekki að fara út á sjó og veiða fisk á beztu fiskimiðum veraldarinnar.
Það má telja fullvist, að hvaða menn, sem hafa „ryðkláfa“ Kveldúlfs undir höndum, eða „koppa“ Jóns Ólafssonar, þá verður ekki unnt að láta rekstur þeirra bera sig nema með því að sjómenn, yfirmenn á skipunum, verkamenn og verkakonur í landi, sem vinna til muna að framleiðslunni. eigi fyrirtækin. Ekki til málamynda, heldur á þann hátt, að fyrirtækið sé félagseign, eins og verksmiðjan í Port Sunlight, þar sem gerð er hin heimsfræga sólskinssápa. Þar er fullkomin samvinna milli allra, sem standa að fyrirtækinu. verkamenn og yfirmenn vinna með gleði að starfi sínu. Hver og einn veit, að fyrirtækið byggist á trúmennsku hans og dugnaði.
Ég get vel búizt við, að mörgum mönnum, bæði þeim, sem búa í villunum og kalla sig togaraeigendur eða framkvæmdastjóra, en eiga ekkert í skipum þeim, sem þeir þykjast stjórna, og sumum öreigum, sem búa í kjöllurum og á hanabjálkaloftum, þyki það ískyggilegar fréttir, ef þeir eigi nú að byrja að vinna saman í stað þess að berjast um lík hænunnar, sem verpti gulleggjum.
Nú er fjöldi atvinnulausra og atvinnulítilla manna hér á landi, en margir þeirra halda að sér höndum, af því þeim finnst kaupið ekki nógu hátt eða vinnudagurinn of langur. Fram að þessu hafa margir þessir menn vonazt eftir því, að þeim kæmi eitthvert óvænt happ, mikil framlog til atvinnubóta við að höggva klaka, eða að flytja á bílum fönnina af Reykjavíkurgötum út úr bænum.
En þessar leiðir enda í blindgötu.
Menn þurfa að fá lífsþor til að vinna, til að smíða skip og báta í öllum kaupstöðum og sjávarþorpum, til að snúa færi og vefa vörpur, til að reisa ódýr og hagleg hús og verkstæði til að starfa í að því að breyta hinni auðugu náttúru landsins í þau gæði, sem þjóðin þarf. Menn þurfa að fá þor til að ganga að gæðum Iandsins og breyta þeim í verðmæti. Við framsóknarmenn vitum að okkur muni takast að leiða þá tvo flokka, sem í nálega aldarfjórðung hafa borizt á banaspjótum víðsvegar á strandlengjunni, úr ófriði í frið, frá dreifingu kraftanna að sameiginlegu átaki til að gera litla þjóð sterka og hamingjusama í sínu eigin landi.