08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í C-deild Alþingistíðinda. (2248)

114. mál, stuðningur við togaraútgerðina

Jón Baldvinsson:

Herra forseti!. Guðir hlustendur! Mér er skýrt svo frá, að nokkurt ólag hafi verið á útvarpi á tveimur fyrstu ræðunum, og mun það hafa verið af einhverjum ágalla við útsendinguna.

Þeir, sem hafa talað í þessu máli frá hinum flokkunum, Bændafl., Framsfl. og Sjálfstfl., hafa allir haft það sameiginlegt, að þeir hafa lýst andstöðu sinni við þetta frv. Þeir hafa það líka allir sameiginlegt að kalla það kosningabombu. allsherjargjaldþrot á útgerðinni og ýmsum þeim nöfnum, er þeir hafa fellt þar saman. Fyrstur reið á vaðið í þessu efni og vitnaði hv. 10. landsk., með því að tala fyrst um síldareinkasöluna, sem gerð var gjaldþrota með lögum, og spáði hann eins fyrir þessu fyrirtæki, ef það yrði sett á stofn. Þessi hv. þm. hefði ekki átt að minnast á síldareinkasöluna, því að sannleikurinn er sá, að það er þegar búið að bæta fyrir það, með því að endurreisa hana aftur, vegna þess að þeir menn, sem vinna að síldarútgerð, heimtuðu, að þessu skipulagi yrði komið á aftur, og var það eins og kunnugt er eitt fyrsta verk núv stj. Þess vegna er nú með aðstoð ríkisvaldsins og fyrir forgöngu þess búið að stofna til nokkurskonur einkasölu á síld attur.

Hv. þm. hefði ekki átt að nefna þetta fljótræði, sem það var að leggja síldareinkasöluna niður, eða fara í samanburð á henni og rekstri einstakra manna. Það má í þessu sambandi minnast á árið 1919, þegar einkaframtakið var í algleymingi; þá tapaði landið um 10 millj., sem orsakaði það, að 11 millj. króna lánið varð að taka 1921, og tap þetta var orðið bönkunum nærri að falli. Einkafrumtakið hafði þá söluna á hendi, en tókst ekki betur en svo, að vegna þess að einhvern hafði dreymt um, að kg. í síldinni myndi komast í krónu, þá seldu þeir hana ekki, en urðu svo að borga nokkrar krónur til þess að moka hverri tunnu í sjóinn. Þessir útgerðarmenn, sem allt á að byggja á, réðu þá öllu um sölu síldarinnur í svokallaðri frjálsri samkeppni.

Ég má ekki dvelja lengi við hvern mann, vegna þess að tíminn er naumur, sem mér er skammtaður. En ég vil ráðleggja hv. 10. landsk. að vera ekki neitt að bera fyrir brjósti innra starf Alþfl. Þessi hv. þm. ætti heldur að hugsa um sinn eiginn flokk, því að hann er búinn að vera formaður flokksins á þingi í 3 ár og búinn að týna 13 af flokknum. Ég held, að hv. þm. ætti að hugsa um það, og þegar honum detta kosningar í hug og þegar hann minnist á, að hæstv. atvmrh. muni nú vera á förum, þá kemur honum strax dauðinn í hug. Það er líklega hans eiginn pólitíski dauðdagi.

Þeir hv. andstæðingur, sem hafa talað í þessu máli, hafa allir talað á móti frv., en það hefir ekki nema einn þeirra gert minnstu tilraun til þess að segja, hvað ætti að gera og taldi hann þó ekkert af því framkvæmanlegt. Þeir hafa allir játað, að togaraútgerðin sé svo illa farin, að þar verði ekki lengur haldið áfram á sömu braut, ef ekki á allt að stöðvast. Andstæðingar frv. vilja, að því er mér skilst, láta þetta þing líða án þess að nokkrar ráðstafanir séu gerðar gegn allsherjarstöðvun togaraútgerðarinnar, sem vel getur borið við, verði ekki tekið í taumana.

Það var hv. 2. þm. Rang., sem aðeins drap á og játaði, að þörf væri einhverra aðgerða. En hann eða hans flokkur hefir ekki komið með neina minnstu till. til þess að koma útgerðinni á réttan kjöl. Þeir hafa að vísu lauslega kastað fram, að helzta ráðið væri kauplækkun. Svo gersamlega standa þeir ráðalausir gangvart þessu. Þeir vilja láta einstaklingsframtakið reka útgerðina áfram og láta hana velta eins og velta vill, þó að þeir sjái öll sund lokast. Þeir vilja ekki ljá þann eina stuðning til viðreisnar, að ríkið hlaupi undir baggann. En sannleikurinn er sá, að ríkið á í raun og veru þessi fyrirtæki, eins og hæstv. atvmrh. sagði hér í kvöld.

Hv. 1. þm. Reykv., sem tók til máls um þetta frv., varði minnstu af sínum tíma til þess að tala um það, og vona ég, að hæstv. forseti leyfi mér einnig að hverfa ofurlítið frá því og svara hv. þm. orfáum orðum.

Mér þykir alltaf ánægjulegt, þegar hv. andstæðingar okkar tala um 4 ára áætlunina. Þeir geyma hana til þess að líta í við og við, til þess að geta krossað við það, sem þeim finnst að megi finna að, að ekki sé komið í framkvæmd. En þegar hv. þm. talaði um svik Alþfl. á þeim loforðum, sem gefin voru í 4 ára áætluninni, þá hefði hann átt að vita það, að Alþfl. hefir þegar borið efndir 4 ára áætlunarinnar undir kjósendur Alþfl. Á síðastl. hausti var saman komið hér í Reykjavík sambandsþing alþýðufélaganna. Þar sem voru mættir fulltrúar frá 15 þús. manns, og það hefir oft viljað til, að kjósendur Alþfl. hafa verið svipað margir og meðlimir í alþýðusamtökunum eru, þó að í þeim séu menn af öllum flokkum. En fulltrúar þessara 13 þús. manna lýstu fullu trausti á Alþfl.þm. fyrir framkvæmd þeirra á 4 ára áætluninni. Það er dálítið leiðinlegt fyrir Sjálfstfl., ef hann fer að tala um kosningamál, þá verður hann að taka upp 4 ára áætlun Alþfl. Hann getur ekki tekið upp kosningaprógramm Sjálfstfl., því að það er ekki til. Sjálfstfl. hefir ekki mikið að svíkja; hann hefir enga stefnu yfirlýsta við kosningar. Hann vill geta sagt við kosningar þetta eða hitt. Þeir ætla að taka með framkvæmdavaldinu það, sem kemur vel aðalstuðningsmönnum flokksins, en það eru ekki hinir dreifðu kjósendur þeirra víðsvegar úti um landið, heldur eru aðalstuðningsmenn flokksins tvær stéttir, stórútgerðarmenn og stórkaupmenn. Þeir marka stefnu Sjálfstfl. í löggjafarmálum eins og þeim á hverjum tíma kemur bezt, og þeir ráða framkvæmdunum, ef Sjálfstfl. hefir völd.

Ég vil benda á, að það er kjósendanna að dæma út frá því, hvernig þetta eða hitt hefði verið, ef Sjálfstfl. hefði verið við völd, og getum við þá líka dæmt eftir þeim till., sem frá þeim hafa komið á þingi. Sjálfstæðismenn hafa lagt til, að í stað þess að leggja fram fé til atvinnubóta, þá sé dregið úr því og því notað til ýmsra annara hluta en að halda uppi atvinnu. Á síðastl. kjörtímabili var varið stærri fjárhæð til atvinnubóta og verklegra framkvæmda heldur en nokkru sinni fyrr. Og það var fyrir atbeina Alþfl. og Framsfl., að þetta var gert. Þeir mættu kreppunni, sem skapar atvinnuleysið, með því að leggja fram af hálfu hins opinbera til verklegra framkvæmda meiri fjárhæð en nokkru sinni fyrr. Ef Sjálfstfl. hefði mátt ráða, þá hefði hann ekki aflað ríkissjóði fjár til þess. Þá hefði hann ekki látið þessar framkvæmdir fara fram. M. ö. o., atvinnuleysið undir forystu sjálfstæðismanna hefði orðið svo langsamlega miklu meira á þessu ári. Það er meira að segja hægt að sýna fram á við atvinnuskráninguna, að dregið hefir úr atvinnuleysinu, sérstaklega hér í Reykjavík.

Hæstv. forseti gefur mér nú aðvörun um, að tími minn sé á þrotum. Ég vildi þó aðeins að lokum segja þessi orð. Við alþýðuflokksmenn hörmum það, að samstarfsmenn okkar, framsóknarmenn á Alþingi, geta ekki fylgt till. okkar. En við getum ekki látið okkur nægja vinsamlegar undirtektir undir minniháttar atriði í þessu máli, sem nú liggur fyrir þessari hv. d., og frv. því, sem liggur fyrir Nd. Við getum aðeins sætt okkur við þá úrlausn, að meginatriðin séu tekin til greina. Við erum líka við því búnir að bera þessi mál undir dóm kjósendanna í landinu, og með þeim rökum, sem þessar till. eru reistar á, þurfum við ekki að kvíða þeim dómi. En ég get skilið það, að hinir, sem engin mál hafa til þess að bera fyrir kjósendurna annað en neikvætt prógramm, vilji síður fara að tala við þá. Þeir hafa ekkert við þá að tala. Þeir hafa engin mál fyrir þá að leggja.