08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 902 í C-deild Alþingistíðinda. (2252)
114. mál, stuðningur við togaraútgerðina
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Í þeim umr., sem fram hafa farið, hefir á ýmislegt verið drepið, og get ég ekki minnzt á nema fátt eitt. Andstæðingar frv. hafa gert sér tíðrætt um síldarbræðslustöðvar ríkisins og flutt það mjög fram til að spilla fyrir ríkisrekstri, að þar eigi að setja upp 20 manna yfirstjórn, og allir þessir 3 flokkar eru sammála um, að slíkt sé lítil meðmæli með ríkisrekstri. Það er rétt að upplýsa það, að þessi till. er komin frá Framsfl., studd af Sjálfstfl. og Bændafl., svo að það er ekki hægt að leggja Alþfl. til lasts, að þessi till. sé frá honum komin. Ég hefi sjálfstæðismenn grunaða um að styðja þessa till. til þess að reyna að gera opinberan rekstur óvinsælan. Hvort svipað hefir vakað fyrir flm. till., skal ég ekki fullyrða.
Hv. þm. S-Þ., Jónas Jónsson, gerði sér tíðrætt um, að það ætti að reka síldarbræðslustöðvarnar með öðrum hætti en verið hefði; það ætti ekki að borga fast verð, heldur sannvirði, eins og hann orðaði það. Mér er ekki kunnugt um annað en framsóknarmennirnir í stj. síldarbræðslustöðvanna hafi öll árin greitt atkv. með því að borga fast verð. Fyrsta árið var áætlað að borga 7 kr., en voru borgaðar 4,50 kr. Síðan hefir það alltaf verið samþ. með shlj. atkv. Þormóðs Eyjólfssonar og Sveins Benediktssonar og annara, sem í stj. verksmiðjanna hafa verið, að kaupa síldina föstu verði, og það hefir enginn ágreiningur verið um það, enda var trauðla hægt að koma því við.
Ég ætla, að það þurfi ekki mörg orð til þess að sýna fram á, að það sé útilokað, að það sé hægt að koma upp samvinnufélagi til þess að reka 10–20 togara með þátttöku mannanna, sem við fyrirtækið vinna. Það er ómögulegt að fá fé, sem til þess þarf, og það er fyrsti örðugleikinn, sem á strandar. Það er óþarft að telja fleiri.
Ég átti ekki von á því, að hv. þm. S.-Þ., Jónas Jónsson, færi að ganga í lið með þeim, sem ráðizt hafa á samvinnuútgerðina á Ísafirði. Ég hefi drepið á þetta áður og læt mér nægja að vísa til þess, en ég vil aðeins segja það, að ég er ekki viss um, að mörg önnur félög hafi gert það betur en þetta félag. Hv. þm. S.-Þ., Jónasi Jónssyni, og hans flokksbræðrum blöskrar, að 2 millj. kr. skuli hafa farið til sjávarútvegsins, en þeim blöskrar ekki þegar 111/2 millj. kr. eru lagðar til bænda til vafasamra ráðstafanna.
Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að þetta frv. væri ný kosningabomba, eins og fjögurra ára áætlunin, sem öl hefði verið svikin. Það þarf ekki að eyða mörgum orðum í það. Hv. þm. drap fyrst á það, að því hefði verið lofað, að nýtt fjör skyldi færast í atvinnulíf þjóðarinnar, en það hefði verið svikið. Ég vil skjóta því til hlustenda minna innan hv. d. og utan, að ég fullyrði, að undir núv. stj. hefir færzt fjör í alla atvinnuvegi þjóðarinnar nema þorskveiðarnar; iðnaðurinn hefir blómgazt og dafnað meira en nokkru sinni fyrr, landbúnaðurinn líka, og ég veit ekki betur en að verzlunin hafi sýnt svipaða útkomu og undanfarið, og þannig er það um alla okkar atvinnuvegi nema þorskveiðarnar. Auk þess hafa nýir atvinnuvegir risið upp, sem gert hafa mögulegt að standast þau áföll, sem við höfum orðið fyrir vegna ófyrirgefanlegrar óforsjálni þeirra manna, sem höfðu stjórn útgerðarmála og atvinnumála okkar undandanfarin ár, aður en núv. stjflokkar komust til valda. Hv. 2. þm. Rang., Pétur Magnússon, sagði, að ef Sjálfstfl. hefði farið með völdin í landinu, þá væri okkar málum ekki svona komið. Hvernig er okkar málum þá komið? Við höfnin orðið fyrir þeim áföllum, sem enginn maður hefði látið sér detta í hug fyrir 4–5 árum, að íslenzka þjóðin hefði þolað, þegar við misstum Spánarmarkaðinn gersamlega og þær 15–211 millj. kr., sem við höfðum fengið þaðan, og Ítalíumarkaðurinn minnkaði um helming. Það var meira áfall en svo að Sjálfstfl. hefði getað afstýrt því.
Hv. 1. þm. Reykv. minntist á embættaveitingar við háskólann. Mér þykir vænt um það. Um fyrra atriðið hefi ég gefið skýrslu fyrir prófessora lagadeildarinnar, sem ég hygg, að muni fullnægja sem svar fyrir þá deild og háskólann. Og mér er ekki grunlaust um, að þar hafi þessir menn fengið ráðningu, sem hefir kennt þeim betri háttsemi. Um guðfræðideildina er það að segja, að hv. l. þm. Reykv. og annar próf, í deildinni komu til mín í haust og mæltust til þess við mig, að ákveðinn maður yrði skipaður í stöðuna án þess að hún væri auglýst. Hann var að þeirra dómi eini hæfi maðurinn til þess að kenna guðfræði í háskólanum, fyrir utan þá, sem fyrir voru í deildinni. Ég vildi ekki gera þetta. Það kom náttúrlega hundur í prófessorana, en staðan var auglýst og samkeppnin for fram. Hvað varð svo ofan á í samkeppninni? Dómnefndin var á einu máli um, hver skyldi verða fyrir valinn, en prófessorarnir tveir, sem vildu fá þennan ákveðna mann í haust, nefndi hann hvorugur á nafn, og það var valinn einhver maður, sem þeir fundu upp í Borgarfirði. En í haust hafði prófessorunum alveg sezt yfir hann og báðu um, að Benjamín Kistjánsson yrði skipaður í embættið án þess að það yrði auglýst. Mér er sönn ánægja í því að fá tækifæri til þess að minnast þessa atviks við hv. 1. þm. Reykv.
Þessir menn hafa talað um kosningabombur. Mér lykir vænt um að þetta frv. er nefnt kosningabomba, því að hvað þýðir það á þeirra máli? Það er mál, sem kjósendunum lízt svo vel á, að þeir styðja þann flokk, sem flytur málið. Eins minntist hv. þm. á fjögurra ára áætlunina, en hann sleppti eftirmálanum; þar er minnzt á afstöðu sjálfstæðismanna til ýmsra kosningabomba, sem þeir kölluðu þá; t. d. sagði Pétur Ottesen um togaravökulögin, að það væri alls ekki þörf á því að setja lög um það efni, — það væri ekki runnið undan rifjum íslenzkra sjómanna. Þetta var kosningabomba. Um verkamannabústaði segir Ólafur Thors, að þó að hann játi, að hér í þessum bæ séu íbúðir, sem ekki eru mannabústaðir, þá viti hann að frv. um verkamannabústaði sé vitagagnslaust, almenningi til skaða, flutt til þess að sýnast. Það var kosningabomba. Ég fagna því, að andstæðinganir kalla þetta mál kosningabombu, það að með því viðurkenna þeir, gildi málsins og traust almennings á málstaðnum, og þeir viðurkenna fyrirfram sinn eigin ósigur. –Góða nótt!