08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í C-deild Alþingistíðinda. (2261)

125. mál, Landsbanki Íslands

Flm. (Bernharð Stefánsson):

Mér var vel kunnugt um, að frv. um breyt. á landsbankalogunum lá fyrir Nd., en þetta frv. sýnir einmitt, hvernig framsóknarmenn vilja afgreiða það mál, og töldum við rétt að bera það fram í frv.formi. Verður að fara eftir því, hvað fylgi í deildunum liður við hvert frv. um sig, hvort þeirra verður að lögum, eða hvorugt. En ef fylgi verður til þess hér í hv. deild að koma þessu frv. áfram, sé ég ekki ástæðu til, að það sé að bíða eftir hinn frv.