14.04.1937
Neðri deild: 38. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (2270)

119. mál, byggingar- og landnámssjóður

*Jón Pálmason:

Ég vil aðeins vekja athygli á því, hvaða ástæður liggja til grundvallar fyrir því, að þáltill. þessi er flutt af meiri hl. landbn., en ekki af n. allri í heild. Við, sem erum í minni hl., viljum leysa þetta mál með því að stofna sérstakan byggingarsjóð fyrir sveitirnar, en frv. um það efni mun sennilega ekki ná fram að ganga að þessu sinni. Ennfremur greinir okkur á við hv. meiri hl. um það, að við teljum ekki heppilegt að fara þá leið í þessu byggingarmáli, að efla starfsemi byggingar- og landnámssjóðs með nýjum dýrum lántökum, því að þá myndi fara svo mikið í vexti, að það yrði erfitt fyrir sjóðinn að standa undir þeim.

Um þörfina á meira fé til byggingar í sveitum en nú er ráð á verður ekki deilt; hún er svo brýn og aðkallandi. Verði það því úr, að á þessu þingi fáist engin frekari afgreiðsla þessa aðkallandi nauðsynjamáls en sú, sem hér liggur fyrir, væntum við þess, að ekki verði gengið langt út á þá braut, sem lagt er til að fara í þáltill. þessari, en að mál þetta verði endanlega afgr. á næsta þingi, og þá á grundvelli frv. um sérstakan sjóð til endurbyggingar í sveitum landsins. Mál þetta verður að leysa á þessu ári, því að jafnan liggja fyrir fjölmargar umsóknir um lán úr byggingar- og landnámssjóði, sem ekki er hægt að sinna.