14.04.1937
Neðri deild: 38. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í D-deild Alþingistíðinda. (2271)
119. mál, byggingar- og landnámssjóður
*Bjarni Ásgeirsson:
Ég hefi áður minnzt á till. þá, sem hér liggur fyrir, og legg áherzlu á, að hún verði samþ.
Hv. þm. A.- Húnv. lagði áherzlu á, að önnur leið yrði farin til þess að byggja upp í sveitunum en hér er stungið upp á, því að lánsféð myndi verða svo dýrt. Ég geri ekki ráð fyrir, að það yrði ódýrara að fara aðrar leiðir, eins og t. d. það, að gefa út bréf, því að peningamarkaðurinn myndi setja svipað verð á þau og önnur hliðstæð verðbréf, nema þá því aðeins, að þau væru undanþegin tekju- og eignarskatti. Að fara þá leið myndi líka verða ótækt eins og nú standa sakir, því að um slíkt mundi verða svo mikill ágreiningur, að engin von yrði til, að það gæti náð fram að ganga að þessu sinni. Þeir, sem því vilja styðja þetta nauðsynjamál, geta ekki gert annað skynsamlegra en fylkja sér um till. okkar, því að allt annað er þýðingarlaust, eins og nú er komið tíma þingsins.
Út af ummælum þeim, sem fallið hafa um skuldir byggingar- og landnámssjóðs, vil ég taka það fram, að auk þeirra 600 þús., sem hann fékk af enska láninu, skuldar hann Búnaðarbankanum 400 þús. króna. Nú standa sakir þannig á milli Búnaðarbankans og kreppulánasjóðs, að kreppulánasjóður skuldar bankanum 1 millj. væri nú hægt að búa svo um, að bankinn fengi þetta fé, sem hann á hjá kreppulánasjóði, mundi hann geta lánað þá upphæð til bygginga í sveitum, bæði til lána úr ræktunarsjóði og byggingar- og landnámssjóði. Að sjálfsögðu yrði hér aðeins um bráðabirgðaráðstofnun að ræða, því að ég geri ráð fyrir, að ekki verði hjá því komizt að útvega lán, utanlands eða innan, til þess að byggja upp sveitir landsins frekar en gert hefir verið.