01.03.1937
Sameinað þing: 4. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (2291)

46. mál, meðferð utanríkismála o. fl.

Ólafur Thors:

Ég vil leyfa mér að beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að þessi þáltill. verði tekin út af dagskrá að þessu sinni. Sjálfstfl. hefir nú frá því þingið byrjaði haft til meðferðar svipaða till., sem fjallar um sama mál og hér ræðir um, en hefir ekki tekið endanlega afstöðu til þess, í hvaða formi hún verður borin fram. vona ég, að forseti geti orðið við tilmælum þessum.