15.04.1937
Sameinað þing: 10. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (2327)

46. mál, meðferð utanríkismála o. fl.

*Héðinn Valdimarsson:

Ég vil aðeins benda á það, að sjálfstæðismenn hér á alþ. hafa farið fram á þessa orðabreyt. á þáltill. til þess að taka það fram um ýms fleiri mál en utanríkismálin, m. ö. o. hin sameiginlegu mál Íslands og Danmerkur öll, að það sé vilji þeirra, að við Íslendingar tökum þau öll í okkar hendur, en ekki aðeins utanríkismálin. En þetta hafa hinir fl., sem að þáltill. standa, álitið, að þeir hafi tekið nógu skýrt fram 1928, og hafa því sagt, að þeirrar yfirlýsingar væri ekki þörf frá þeim fl. nú. En núverandi Sjálfstfl., sem ekki var til árið 1928, þ. e. a. s. með því nafni, vill nú láta það sjást í yfirlýsingu frá Alþ., sem hann tekur þátt í að samþ., að hann einnig hafi þessa skoðun á málinu. En því undarlegra er það, að Sjálfstfl. hefir ekki getað jafnhliða tekið neina afstöðu til konungssambandsins. Það er ekki ástæða fyrir hv. þm. G.-K. að segja, að þetta mál komi ekki sjálfstæðismálunum við, hvort við höfum erlendan konung eða hvort Ísland verður lýðveldi. Í þessu máli er ákveðin afstaða Alþfl., og hefir verið það allt frá 1928. Fyrst hv. þm. G.-K. fór út í að tala um það, hvað gerzt hafi á fundi í utanrmn., þá ætla ég að segja frá því, að á fundi í utanrmn. minntist ég á þetta mál og vildi fá yfirlýsingu frá sjálfstæðismönnum um þetta. En ekki var við það komandi. Það er að vísu rétt, að Framsfl. hefir ekki látið neitt uppi um þetta mál heldur. En það má þó gera þann mikla mun á milli þessara tveggja fl., þó að þeir séu í sjálfu sér báðir jafnhráir í þessu efni, að Sjálfstfl. nefnir sig eftir sjálfstæðismálunum og telur sig sérstakan forvígisflokk í þeim málum, þó að hinsvegar sé það vitað, að hann er enginn forvígisflokkur í þeim sökum. En hvers vegna getur þá þessi fl., sem telur sjálfan sig vera forvígisfl. í sjálfstæðismálum þjóðarinnar, alls ekki tekið afstöðu til þessa mikla máls?