16.04.1937
Neðri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í D-deild Alþingistíðinda. (2337)

141. mál, bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar

*Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég mun ekki hafa langa framsögu fyrir þessari till. Hún gengur út á það að skora á ríkisstjórnina að leita samvinnu við bæjarstjórn Reykjavíkur um rannsókn á því, hvað það myndi kosta að taka til opinberrar ráðstöfunar svæði það, sem ætla má, að fyrsti bær landsins hafi staðið. Að hér er farið fram á slíkt, er m. a. sökum þess, að það mun sennilega nær einstakt í sögunni, að menn viti, hvar fyrsti bær landanna hefir staðið. Þetta er og þeim mun merkilegra hvað okkur snertir, að þar sem hinn fyrsti bær okkar var reistur, þar skuli og höfuðborg okkar standa nú. Engin menningarþjóð önnur en við Íslendingar mundi vera eins tómlát að halda uppi minningunni um slíkt á fagran og viðeigandi hátt. Nú er svo háttað hvað snertir byggingar á þeim stað, sem talið er, að bær Ingólfs hafi verið, að þar eru nær eingöngu gömul timburhús, sem að sjálfsögðu verða að víkja fyrir öðrum og meiri byggingum áður en langir tímar líða. Það virðist því ekki ótímabært, þó að þessu sé hreyft nú og því beint til skipulagsnefndar, hvort ekki muni vera einhverjir möguleikar á því, að gera á þessum stað eitthvað til minningar um fyrsta bæ landsins. væri því mjög æskilegt, að till. um skipulag á svæði því, sem nefnt er í till., væru tilbúnar fyrir næsta þing og staðfestar af ráðuneytinu. Annars viljum við flm. einnig benda á það sem hentuga leið í þessu máli, að ríkisstj. hefði forgöngu um, að skipuð yrði n. með samkomulagi við bæjarstjórn og skipulagsnefnd til þess að afhuga þetta mál og gera till. til lausnar á því.