19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (2416)

138. mál, brunaslys í Keflavík

*Thor Thors:

Ég vil geta þess nú, af því að mér láðist að geta þess í fyrri ræðu minni, að hv. þm. G.-K. mun bera fram brtt. við 2. umr. um, hvernig sú n. skuli skipuð, sem úthluti þessu fé. Það er engin stórbreyting og mun ekki tefja afgreiðslu málsins. Ég vil líka geta þess, að þetta mál er engin kosningabeita. Það er þannig til komið, að hreppsnefnd Keflavíkur sneri sér, svo sem eðlilegt var, til þm. kjördæmisins og bað hann að koma þessari beiðni á framfæri. Hann lagði hana fyrir fjvn., en ætlaði að bera hana síðar fram sem till. til þál. Sú þáltill. er nú óþörf orðin, þar sem sú till., sem nú liggur fyrir, er komin fram.