06.04.1937
Sameinað þing: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (2445)

85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.

*Magnús Jónsson:

Ég get raunar ekki talið nema eðlilegt, að fram er komin till. eins og hér liggur fyrir; það hefði jafnvel verið eðlilegt, þótt slík till. hefði komið fram miklu fyrr. því að bankan., sem starfaði hér árin 1924–25, taldi ekki sínu starfi lokið með því nál., sem hann gaf út 1925. Eins og hv. þm. e. t. v. vita, var í þáltill. um skipun þeirrar n. gert ráð fyrir alhliða endurskoðun á bankalöggjöf landsins. En í þeirri þáltill. var sérstaklega óskað eftir, að n. gerði till. um seðlaútgáfumálið fyrir næsta þing, og það var vegna þess, að það mál var komið í þá sjálfheldu, eftir margítrekaðar tilraunir þings og stjórnar til þess að leysa það, að ekki varð lengur hjá því komizt, að fá það leyst. Þess vegna skilaði n. áliti um seðlabanka, og það mál var leyst út af fyrir sig, en þá átti hún eftir hitt verkefnið, að endurskoða bankalöggjöfina í heild. Það varð þó að samkomulagi milli n. og þeirrar stj., sem þá sat, að láta við svo búið sitja um störf n. að sinni. Er ekki nema eðlilegt, að þessu starfi, sem þannig var hætt við í miðjum klíðum, sé haldið áfram, og það þótt fyrr hefði verið.

Eins og hv. 1. flm. tók fram, hafa ýmsar breyt. orðið, ekki aðeins á bankamálunum, heldur einnig á almennum landsmálum, síðan landsbankalögin voru sett. Sérstaklega er þó ein breyt. á orðin að því er bankana snertir, sem ég tók ekki eftir, að hv. flm. minntist á. Árið 1925 var ennþá sú hugsun uppi, að hér myndi geta myndazt bankakerfi í líkingu við bankakerfi annara þjóða, að bankarnir yrðu yfirleitt nokkurskonar einkafyrirtæki, þannig að þeir menn, sem fé hafa aflögu, sem þeir vilja lána út til atvinnuveganna, leggi það í bankafyrirtæki, sem síðan starfi í ákveðnum tilgangi. Ríkið hefði svo „centralbanka“, sem annaðhvort væri eingöngu seðlabanki eða ræki jafnhliða almenna bankastarfsemi, eins og eðlilegt var, vegna sögulegrar þróunar í bankamálunum, að Landsbankinn heldi áfram að reka. Á þessu er orðin gagngerð breyting. Bankarnir eru ekki aðeins orðnir ríkiseign, heldur er yfirleitt sú hugsun horfin frá mönnum, að um annað fyrirkomulag geti verið að ræða með eðlilegum hætti. Ég held, að það sé orðið flestra manna mál, að ekki séu til í landinu peningar, sem menn vilja þannig setja í atvinnurekstur, og þótt þeir væru til, er ekki það andrúmsloft í stjórnmálunum, að menn myndu sjá sér það fært. Sú hugsun hefir unnið svo mjög á, að það fé, sem menn eiga í bönkum og öðrum slíkum fyrirtækjum sem hlutabréf eða á annan hátt, sé ófriðhelgur hlutur, en náttúrlega er það friðhelgin um slíkt fé, sem skapar möguleika fyrir því, að lánsstofnunum sé komið upp af einstaklingum, eða þeir leggi yfirleitt fram fé til atvinnufyrirtækja. Því eru þær till., sem fram eru komnar um að bjóða út hluti í slíkum stofnunum, ekki annað en orðin tóm.

En þrátt fyrir þetta er sama nauðsynin á að taka bankamálin til athugunar í mþn. Það, sem gert hefir verið í bankamálunum, síðan landsbankanefndin starfaði, sýnist mér vera nokkuð á við og dreif. Það hefir verið settur upp búnaðarbanki, að því er virðist með óþarflega dýrri og umsvifamikilli stjórn, til þess að hafa það hlutverk með höndum. Íslandsbanka var velt um koll og Útvegsbankinn settur upp á rústum hans. Allt er þetta ríkiseign að öllu eða mestu leyti. Till., sem liggja fyrir þessu þingi, benda og til, að full ástæða sé til að stofna til n. til að athuga þessi mál öll í heild. Má þar til nefna frv. um sérstakan seðlabanka. Sömuleiðis frv. um iðnlánabanka; er þar um spursmál að ræða, sem vafalaust er full þörf á að leysa. Bæði þessi frv. sína, að málin, sem þau fjalla um, þurfa meiri athugunar við heldur en í þeim kemur fram. Ég vil t. d. benda á það í sambandi við frv. um seðlabanka, að þar er eins og gert sé ráð fyrir, að það, að einn banki afhendi öðrum banka nokkrar millj. kr. í stofnfé og tugi millj. í seðlum, geti gerzt svona án þess að það fréttist til næstu bæja. Reynslan hefir nú sýnt, að slíkir hlutir eru óframkvæmanlegir. Íslandsbanki átti að skila sínum seðlum, en það hefir reynzt óframkvæmanlegt fram á þennan dag, þannig að seðlabankarnir eru nú í rauninni 2, — annar, sem starfar samkv. lögum, en hinn, sem starfar gegn lögum. Ef stofnaður væri nú nýr seðlabanki, yrði það sama uppi á teningnum. Landsbankinn gæti ekki skilað sínum seðlum, svo að seðlabankarnir yrðu bara 3. Mig minnir, að í þessu frv. sé jafnvel talað um seðla Útvegsbankans, sem ég veit ekki til, að séu til að lögum.

Ég held því, að það sé einmitt mikil þörf á að athuga nú þessi mál öll gaumgæfilega í mþn. Sú n. ætti að geta borgað þann kostnað, sem starf hennar hefir í för með sér, með því einn að koma bankamálunum á ódýrari grundvöll. Nú sýnast úrræðin helzt vera þau, að stofna alltaf nýja og nýja banka, með nýrri stjórn og öllu því „apparati“, sem þar til heyrir, í stað þess að koma útlánsstarfseminni undir sem fastar stjórnir, til þess að reksturinn verði ódýrari.

Ég skal ekki fara að ræða brtt. hv. þm. A-Húnv., þar sem henni var ekki útbýtt fyrr en á þessum fundi, og hefir auk þess verið tekin aftur til síðari umr. En í sambandi við hana vil ég benda á, að þar er um að ræða mjög umfangsmikið rannsóknarefni; það er ekki neitt aukaatriði, sem hægt er að vinna að svona rétt í hjáverkum. Í þáltill. eins og hún liggur fyrir er aðeins tæpt á þessu máli; það er að vísu gert mjög varlega, aðeins sagt, að fela eigi n. að athuga, hvernig verðskráningu ísl. krónu verði bezt fyrir komið. Þetta getur falið í sér mikið eða lítið, rétt eftir því sem hver vill. En ef þessi n. á að hafa með höndum gengismálið í heild sinni, þá er það geysimikið starf út af fyrir sig, og sú n., sem athugar bankamálin, mun hata ærið starf á því sviði, a. m. k. fyrst um sinn. Ég er því alls ekki viss um, að það sé heppilegt, að sama n. hafi bæði bankamálin og gengismálið til meðferðar, ef tilgangurinn er, að gengismálið sé tekið fyrir meira en að nafninu til.

Ég skal svo ekki orðlengja um þetta frekar, en endurtek það aðeins, að ég tel heppilegt, að þessi þáltill. verði samþ.