06.04.1937
Sameinað þing: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í D-deild Alþingistíðinda. (2455)
85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Hv. þm. G.-K. rangfærði mjög í ræðu sinni það, sem ég hafði sagt; hann hélt því fram, að ég hefði sagt, að það væri til skammar, að Alþingi gerði samþykkt um, hvað það áliti, að gengi íslenzku krónunnar væri. Þetta sagði ég ekki, en ég sagði, að ég áliti með öllu óviðeigandi og ekki sæmilegt fyrir Alþingi að samþ. till. um það, að íslenzka krónan væri fallin, á sama tíma sem Alþingi fær vald til þess að skrá krónuna og halda henni óbreyttri, en miða við það, sem hún hefir verið um langan tíma. Það var þetta, sem ég sagði, en ekki að það væri út af fyrir sig ósæmilegt, þó að Alþingi hefði áhrif á, hvernig krónan væri skrásett. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að gera ræðu hv. þm. G.-K. að umtalsefni, en ég vil víkja að ræðu hv. þm. V.-Húnv., fyrst ég stóð upp. Hann sagði, að þessi till. væri fram komin af hálfu fulltrúa Framsfl. í fjhn. í sambandi við „Kveldúlfsmálið“ og í sambandi við ágreining milli Alþfl. og Framsfl. um það mál. Það er rangt hjá hv. þm., eins og bezt má sjá á því, að ákvörðunin um, að þessi till. skyldi flutt á Alþingi, var tekin á flokksþingi framsóknarmanna, sem haldið var fyrstu daga alþingis og löngu áður en ágreiningurinn um „Kveldúlfsmálið“ kom til sögunnar á milli Alþfl. og Framsfl. Þá sagði hv. þm., að það væri verið að skjóta sér framhjá því, að fara eftir samþykktum flokksþingsins í gengismálinu með því að taka ekki orðrétt inn í sjálfa þáltill. ályktunina, sem gerð var á flokksþinginu. Þetta er útúrsnúningur hjá hv. þm., því að í þál. frá Alþingi, sem á að vera upphaf rannsóknar á gengismálinu yfirleitt, á ekki annað heima en að málið sé lagt hlutlaust fyrir þá, sem eiga að sinna því, en svo mun Framsfl. gegnum fulltrúa, sem hann fær í n., koma sínum sérskoðunum á framfæri, en Framsfl. getur ekki búizt við, að hann fái samþ. þáltill., sem felur í sér ákvörðun um, að málið verði framkvæmt eftir hans sérskoðun. Ef samkomulag verður um slíka n., verður málið að liggja fyrir hlutlaust, og geta flokkarnir þá komið sinni skoðun á framfæri gegnum sína fulltrúa í nefndinni. — Svo var hv. þm. að tala um, að sósíalistar réðu yfir Framsfl., og framsóknarmenn réðu svo yfir hv. þm. A.-Húnv. Hann gat ekki hugsað sér nokkurn þm. eða þingflokk öðruvísi en svo, að einhver annar reði yfir honum, og má kannske virða honum þetta til vorkunnar eftir ræðu hv. þm. G.-K. hér áðan, þar sem það kom mjög greinilega fram, að hann telur Sjálfstæðisfl. geta sagt þessum hv. þm. fyrir verkum, enda hefir því verið lýst yfir í þinginu af formanni Sjálfstfl., hv. þm. G.-K., að hv. þm. V.-Húnv. hafi komizt á þing fyrir hjálp Sjálfstfl., og það er ekki óeðlilegt, að hv. þm. G.-K. tali húsbóndalega til hans, þar sem hann gerir ráð fyrir, að þessi hv. þm. reyni, eins og óþekkur krakki, að verða nokkuð ódæll á eftir, til þess að ekki falli á hann grunur um þjónkun, en það munu allir hv. þm. átta sig á því, af því, sem á undan er gengið í þessu máli, að þetta er ekkert annað en látalæti.