06.04.1937
Sameinað þing: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í D-deild Alþingistíðinda. (2468)
85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.
*Ásgeir Ásgeirsson:
Það hefir verið beint til mín nokkrum orðum, en sá hv. þm., sem ég þarf að tala við, er að vísu ekki viðstaddur. Það hefir verið borið á gengisnefnd, að hún hafi hnýtt íslenzku krónuna aftan í Englendinga, og hv. þm. A.-Húnv. líkti því við það að hnýta hesti aftan í bíl; við gerðum þetta, þegar Englendingar lækkuðu sitt gengi, svo að það stóð ekki kyrrt, heldur fór aftur á bak, en ekki með jafnmiklum hraða og hv. þm. hefði viljað.
Það eru ekki til nema þrjár leiðir til þess að gefa gjaldeyrinum festu. Ein leiðin er að binda hann við gull, og fyrir okkur Íslendinga a. m. k. er það áreiðanlega skakkt, enda reynum við ekki til þess, og gullinnlausn hefir ekki verið nefnd í okkar landi frá stríðsbyrjun. Önnur leiðin er að binda gjaldeyrinn við afurðaverðið og verðlagið, og það skal ég játa, að til slíks eigum við að taka tillit. Verðlagið hefir verið mjög fast þennan tíma, sem við hofum bundið okkur við pundið, svo að það verður ekki mikið ósamræmi milli þessara aðferða, að binda sig við verðlagið og að binda sig við þennan erlenda gjaldeyri, en hann er sá eini, sem telja má nokkuð gagn af að binda sig við síðari áratugi; dollarinn var jafnvel óviss um tíma og sömuleiðis frankinn, og skandinavískar krónur koma okkur mikið minna við en sterlingspund, því að mestur hluti af okkar verzlun fer fram í enskum pundum, og sá viðskiptaheimur, sem við skiptum við, er mjög háður ensku pundi. Ég hygg, að það hafi ekki verið um annað að ræða en hafa fast gengi gagnvart pundinu, en vitanlega getur alltaf komið til athugunar, hvort við höfum fundið það rétta gagnvart pundinu, og eitt af því, sem þessi n. á að rannsaka, er það, hvernig muni vera ástatt í þessu efni nú og setja fram einhverjar till. um fasta reglu til að fara eftir, því að það, að gera eina ályktun um gengisbreytingu eftir 12 ára fast gengi, fær aldrei mikið fylgi, því að það eru svo sterkir kraftar í landinu, sem standa að því að varðveita þetta gengi, sem búið er að standa í 12 ár. (HannJ: Það hefir ekki staðið í 12 ár). Gagnvart pundinu; en það. hvort það hefir staðið fast gagnvart gulli, skiptir engu máli, því að gullið hefir enga þýðingu hjá okkur. En að fá breytt gömlu, föstu gengi með einni ráðstöfun, svo að einungis er hugsað um hagsmuni kannske einnar stéttar án tillits til hagsmuna annara stétta, sem eigi að búa við þennan sama gjaldeyri, því spái ég ekki góðu fyrir. Aftur á móti væri æskilegt, eins og ég sagði áðan, að við settum betri löggjöf og skynsamlegri um okkar gjaldeyrisskráningu og gjaldeyri heldur en til er í öðrum löndum, og þar eru möguleikar fyrir okkur Íslendinga vegna okkar sérstöðu í mörgum greinum; en hitt, að segja, að okkar gjaldeyrir sé nú rangt skráður, vegna þess m. a., að íslenzka krónan sé verðlægri í frjálsri verzlun erlendis nú heldur en hér í bönkunum, það er fjarstæða. Hvað segir þetta, sem kallað er frjáls verzlun með íslenzkan gjaldeyri? Það er óleyfileg sala íslenzkra seðla á erlendum markaði, og ég vil segja það yfirleitt, að með íslenzkan gjaldeyri á helzt ekki að vera frjáls verzlun. Land, sem hefir svo breytilegt árferði og breytilega afkomu, að stundum er mjög mikill afgangur af okkar viðskiptum við útlönd, getur ekki haft þessa frjálsu verzlun, því að ef hún ætti að ráða, þá ætti krónan að þjóta upp eitt árið, og hitt árið, þegar mikill halli væri á erlendum verzlunarviðskiptum, á engin festa að vera í neinn. Einmitt þessa frjálsu verzlun eigum við að hindra, og ríkisvald, þing. stj. og bankar eiga einmitt að vega n móti þessum krafti og skapa festu í gjaldeyrinn. Þessi festa þarf að skapast, en ég segi ekki, að hún eigi að vera svo rík, að þar verði aldrei neinar breyt., en þær breyt., sem eiga að vera leyfilegar, á að gera út frá þjóðhagslegu sjónarmiði og vitandi vits um, hvað verið er að gera, en ekki láta gengið ramba niður og láta það þjóta upp á einhverri erlendri kauphöll; við getum ekki látið skrá okkar gengi annarsstaðar en hér heima og eigum að gera það sjálfir út frá þjóðhagslegum ástæðum.
Þetta hefir verið stórhættulegt mörgum löndum, og var okkur hættulegt um tíma, að líta á gjaldeyrinn sem voru, sem ætti að ganga kaupum og sölum og hafa sérstakt verð. Gjaldeyririnn á einmitt ekki að vera vara. Hjá okkur er hann ávísanir og pappírsseðlar, en hvorki gull né annað verðmæti, sem á að verzla með í frjálsri sölu. Gjaldeyririnn á sjálfur að vera mælikvarði á vörur og vöruverð. (HannJ: Þá verður hann að vera réttur). Já, en ekki vara, sem rambar upp og niður eftir framboði og eftirspurn; ef framboðið er of mikið, getur það verið þjóðarnauðsyn, að ríkið taki áhættuna af bönkunum, en ef framboðið er of lítið, er það skylda ríkisins að sjá um viðbót með láni til þess að halda gjaldeyrinum föstum. N. hefir það vald, sem hún þarf að hafa, því að hún hefir fullt vald til þess að skrá gjaldeyrinn, en ef þeirri stefnu er haldið áfram, að láta sitja við það, sem komið er nú, þá þarf n. ekki að halda neina fundi, enda gerir hún það ekki, nema eitthvað sérstakt komi fyrir. Hitt er annað mál, hvort gengisnefnd er rétt samansett, eins og aðrar n., og að í henni hafi bankarnir meiri hl., en aftur á móti meiri hl. Alþingis minni hl., en þó bygg ég, að það væri ógætilegt, ef hið pólitíska vald ætlaði að fá 2–3 mönnum, sem væru þá meiri hl. úr meiri hl. þingsins, ótakmarkað vald yfir gjaldeyrinum, svo að þeir gætu gert hvað sem þeir vildu í því efni. Ef hið pólitíska vald ætlaði að taka þannig öll völd yfir gjaldeyrinum, þá yrði a. m. k. um leið að setja nokkurskonar stjskr. eða bindandi lög fyrir þessa menn um það, hvernig þeir eigi að starfa. Slík lög gætu verið til frambúðar og gætu orðið árangur af þessu rannsóknarstarfi. En það vitlausasta, sem hægt er að gera, er að byrja á því að segja, að þessi n. eigi að byggja sína rannsókn á því, að gjaldeyririnn sé of hátt skráður, og að hennar rannsóknarstarf sé fólgið í því að sanna, að gjaldeyririnn sé of hátt skráður. Þá mætti eins taka ákvörðun á þinginn um að láta rannsaka, hvernig gjaldeyririnn er skráður. En það er oft erfitt að segja um, hvenær gjaldeyririnn er rétt skráður, en 12 ára festa er töluverð röksemd, og í þessu efni er það rétt, sem gefur sem flestum sem bezt kjör. Það eru ekki hagsmunir einnar stéttar, sem eiga að ráða, heldur hagsmunir allra stétta og atvinnuvega, hagsmunir fólksins í landinu, en það er örðugt að ákveða nema með nákvæmri rannsókn.
Það sagði einn hv. þm., að hann tæki ekki alvarlega það, sem ég hefði sagt um þetta mál, en það, sem ég sagði í minni fyrri ræðu, var, að bændastéttin flytti inn meiri verðmæti frá útlöndum en hún sjálf flytur til útlanda; þess vegna græddi bændastéttin ekki á gengislækkun. Þetta er einfalt mál, því að bændastéttin flytur ekki út nema helminginn af sínu kjöti, ull og gærum, en býr aðallega að innanlandsmarkaði. S. Í. S., sem hefir aðalútflutning á landbúnaðarafurðum, mun kannske á hverju ári hafa dálítinn afgang af erlendum gjaldeyri, en það er vegna þess, að S. Í. S. hefir tiltölulega meiri útflutning fyrir bændur en innflutning, því að ýmsir kaupmenn flytja tiltölulega meira inn af vörum, sem þeir selja bændum, en nemur því, sem þeir flytja út fyrir þá. Hvort sem ég er tekinn alvarlega í þessu efni eða ekki, þá er þarna staðreynd, sem mér finnst, að fulltrúar bændastéttarinnar ættu að taka alvarlega. (HannJ: Hv. þm. veit ekki, hvað hann er að tala). Ég er að tala um, að bændur tapi á gengislækkun. En ef þeir eru svo sanngjarnir, að þeir vilji lækka gengið vegna annara stétta, þá finnst mér, að þeir ættu að fara aðrar leiðir fyrst. Að því er landbúnaðinn snertir, hefir m. a. af þeim ástæðum, að hagsmunum landbúnaðarins er svo farið í gjaldeyrismálum, verið leitað eftir öðrum leiðum síðustu ár til þess að bæta kjör bænda, og eitt af því stærsta, sem gert hefir verið fyrir bændur, er að afskrifa það, sem nauðsynlegt hefir verið, af þeirra gömlu skuldum, svo að síðan er ekki ástæða til gengislækkunar handa bændum vegna gömlu skuldanna, en það er eina röksemdin, sem hægt er að færa fram fyrir gengislækkun vegna landbúnaðarins, að það sé gert vegna gömlu skuldanna. Nú er búið að taka þetta séstaklega fyrir og færa það til samræmis við afkomu þessara síðustu ára. — Að því er sjávarútveginn snertir, held ég, að betra sé að nota aðra aðferð en mjög vafasama gengisbreytingu, því að það er eins með sjávarútveginn og landbúnaðinn, að hann kaupir mjög mikið inn til sinnar framleiðslu, en hann heldur eftir í landinu því, sem hann þarf til þess að borga kaup með, og ef krónan yrði lækkuð um 30%, þá er engin trygging fyrir því, að ekki komi kaupkröfur frá verkamönnum og sjómönnum, því að þeim líður ekki svo vel, að þá munaði ekki um, ef 30% af tekjum þeirra yrðu þurrkuð út, og um leið yrðu þessi 30% kannske skorin af tekjum bænda, vegna þess að kaupgeta fólksins í landinu, sem kaupir innlendar afurðir, mundi minnka að sama skapi; hagsmunir þessara stétta eru ekki svo sundurleitir, og ég hygg, að gengislækkun fylgdu nú svo miklir ókostir, að það beri að leita allra annara ráða fyrst viðvíkjandi sjávarútveginum, og hér á þinginu liggja fyrir ýms frv., sem fara í þá átt, að það eigi heldur að lyfta sjávarútveginum með ýmsum öðrum ráðum.