19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í D-deild Alþingistíðinda. (2475)
85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil ekki verða til þess að tefja framgang till. með löngum ræðuhöldum. Ég ætla aðeins að taka fram örfá atriði út af nál. minni hl., en ætla ekki að fara út í neinar deilur um málið, til þess að tefja ekki tímann.
Hv. 9. landsk. sagði í ræðu sinni, að þessi till. muni vera komin fram til þess að koma á þann hátt fyrir kattarnef till. Alþfl. í bankamálunum, og rökin eru þau, að hún hafi komið síðar fram en till. Alþfl. um breyt. á landsbankalögunum. Hv. 9. landsk. hefir ef til vill ekki tekið eftir því, hvernig hún er fram komin, og skal ég þá upplýsa hann hér með um það. Þessi till. kom fram fyrir frumkvæði flokksþings framsóknarmanna, sem beitti sér fyrir því, að n. vær skipuð í þessu skyni. Það var háð áður en frv. Alþfl. kom fram, svo að það er alveg þýðingarlaust að vera að metast um það.
Hv. 9. landsk. sagði ennfremur, að hann sjái ekki ástæðu til að skipa mþn. í bankamálunum, og færði það fram sem rökstuðning fyrir því, að fyrir lægju ýmsar till. frá Alþfl. til breyt. á bankalöggjöfinni, sem væru vel undirbúnar. Ég skal játa, að í sumar till. hefir verið lögð nokkur vinna, en hinu ætla ég að halda fram, að það mundi vera óhæf meðferð á slíkum málum, ef Alþ. á örstuttum tíma gerði slíkar gerbreytingar á bankamálum landsins; sem þessar till. fara fram á. Þar er t. d. till. um að setja á stofn 2 nýja banka, seðlabanka og iðnlánasjóð. Ég vil ennfremur taka það fram, án þess að gera lítið úr störfum skipulagsnefndar atvinnumála, að sú n. hafði svo mörg verkefni með höndum, að hún hefir ekki getað gefið bankamálunum þann gaum, sem nauðsynlegt er, að sé undanfari stórkostlegra breyt. á þeim málum.
Ef það er skoðun hv. 9. landsk., að hér sé mikilla breytinga þörf, þá er hin rétta afleiðing af því, að hann fylgí því, að mþn. verði skipuð. Mþn. hafði starfað að þessum málum, áður en núverandi löggjöf um Landsbankann var sett. Þessi mál eru þannig vaxin, að það er ekki hægt að gera á þeim breyt., án þess að málið sé íhugað af þar til kjörnum mönnum. Ég ætla ekki, til þess að stofna ekki til deilna, að fara út í ummæli hv. þm. um það, að Framsfl. hafi mórauða samvizku í sambandi við einhver verk og vilji því svæfa málið í mþn. Ég hygg, að almennt sé litið svo á, að skipun mþn. sé vottur þess, að Framsfl. sé alvara í því að taka málið föstum tökum. Ég get ekki fallizt á, að það sé réttlátt að kalla slíka n. ruslakistu, enda rökstuddi hv. þm. þau ummæli sín ekki á neinn hátt. Það hafa oft verið skipaðar mþn. í málum, sem hafa verið minni háttar en það, sem hér ræðir um.