19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (2479)
85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það liggur hálfilla á Alþýðuflokksmönnunum í dag, og er ekki hægt við því að gera. — Hv. 9. landsk. var að kvarta hér yfir ummælum, sem Nýja dagblaðið hefði haft eftir hæstv. forseta. Það hefir nú ekki verið venja að draga blaðadeilur inn í umr. hér á Alþ., en hvað sem þessum ummælum líður. Þá vísa ég þeim frá mér. — Þessi sami hv. þm. sagði, að við hv. þm. G.-K. hefðum staðið hlið við hlið og snúið bökum saman. Ég veit ekki, hverskonar uppstilling það er; það er eitthvað alveg nýtt; ég hélt satt að segja, að það væri ekki hægt, og held þess vegna, að hv. þm. sé farinn að sjá einhverjar ofsjónir.
Ég ætla ekki að fara langt út í umr. um frv. Alþfl. um breyt. á landsbankalögunum. Ég veit ekki til, að þetta frv. hafi verið gert að neinu flokksmáli hjá Alþfl. En viðvíkjandi því, að í frv. séu einhver sérstök úrræði, þá vil ég segja það, að ég hefi ekki komið auga á þau. — Ég vil svo nota tækifærið til að taka það fram, að ég er mótfallinn till. hv. þm. A.-Húnv. á þskj. 220; ég álít, að það nái ekki nokkurri átt að fara að lýsa því yfir í þáltill., að íslenzka kr. sé fallin í verði, þar sem hún er ennþá verðsett.