19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (2629)

151. mál, atvinnubótafé

*Flm. (Jón Auðunn Jónsson):

Ég skal ekki tefja tímann mikið með því að gera grein fyrir ástæðunni fyrir þessari till. á þskj. 282. Ég hefi litlu að bæta við það, sem þar stendur. Ég skal upplýsa það, að svo er ástatt þarna vestra, að sjómenn hafa í hlut yfir árið um 400 kr. á þessum verstöðvum, og veldur aflaleysi þar mestu um. Þó að útgerðarmenn hafi tryggt sjómönnum lágmarkshlut, þá hafa þeir vegna stórkostlegs taps á útgerðinni ekkert fé til að greiða upp í slíka ábyrgð. því miður er ekki útlit fyrir annað en að ástandið verði ennþá aumara á yfirstandandi ári en nokkru sinni fyrr. verði þetta fé ekki veitt, verður ekki hjá því komizt, að lána þessum hreppi 35–40 þús. kr. á þessu ári. Ég vænti, að hv. alþm. sjái, að hér er slík alvara á ferðum, að ekki verður hjá komizt að gera ráðstafanir til hjálpar fólkinu, og þá er þetta ein bezta leiðin. Verðmætið, sem fæst fyrir aflann, mun jafna þau útlát fyrir ríkissjóð, sem annars fara beint til óarðbærra atvinnubóta.