15.04.1937
Neðri deild: 39. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (274)
14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Viðvíkjandi ummælum hv. þm. G.-K. um yfirlýsingu, sem ég hafi gefið í sambandi við þetta mál, vil ég taka það fram, að ef svo færi, sem gert er ráð fyrir, að þingið kæmi saman í haust og ég yrði atvmrh., þegar lögin ganga úr gildi, þá teldi ég mér skylt að leita eftir því, hvort ekki fengist ákveðin lausn á málinu. Ég geri ráð fyrir, að hvaða ráðh. sem er mundi reyna að fá þingmeirihluta fyrir bráðabirgðalausn á málinu, sem hægt yrði að una við, þangað til þing kæmi saman aftur. Mér finnst þetta svo einfalt mál, að ekki þurfi um það að fjölyrða. Að nokkur voði standi fyrir dyrum í þessu efni, fæ ég ekki skilið.