15.04.1937
Neðri deild: 39. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Ólafur Thors:

Ég vek athygli á því, að hæstv. atvmrh. sagði áðan, að hann mundi gefa út þau bráðabirgðal., sem þingmeirihluti fengist fyrir, en í seinni ræðu sinni, örfáum mínútum seinna, að hann mundi ekki á þessu stigi málsins gefa neina yfirlýsingu um, hvað hann mundi gera að fengnu áliti þingfl. Ég vil sérstaklega biðja hv. flm. að taka þessi ummæli hæstv. atvmrh. til athugunar. Hann veit, að nú, eins og sakir standa, er ákveðinn þingmeirihluti fyrir því, að lögfesta það fyrirkomulag á stjórn síldarbræðslustöðvanna, sem hans eigin flokkur hefir borið fram frv. um hér á Alþingi. Hv. þm. hefir heyrt hæstv. atvmrh. skýra frá því, að þegar þessi bráðabirgðal. falla úr gildi, ef þau öðlast lífsmöguleika fyrir tilstilli brtt. hv. þm. N.-Þ., þá muni hæstv. atvmrh. að vísu spyrja þingfl., einhverja eða alla, hvert þeirra álit sé, en hann vill ekki gefa neinar skuldbindingar um, að farið verði eftir þeim þingvilja. Ég veit ekki, hvernig hægt er að ögra framsóknarmönnum til þess að halda fast við sitt frv., ef það er ekki hægt með þessu móti. Þeim stendur hér til boða að fá lögfestingu með aðstoð sjálfstæðismanna; þó þiggja þeir ekki það boð, en bera fram till. um að treina lífið í þessu frv., sem þeir eru þó búnir að lýsa sig andvíga, til áramóta, og þegar líftóran er runnin úr þessum bráðabirgðal. hæstv. ráðh., sem þá verða orðin lögformleg, venjuleg löggjöf Alþingis, þá ætlar hann í þakklætisskyni að gera það, sem honum sýnist. Framsfl. tekur rögg á sig, ber fram skynsamlegt frv. í hv. Ed. og lætur fylgja því stór orð um það, að nú skuli hann sýna sósíalistunum, að þeir ráði ekki einir öllu. Við sjálfstæðismennirnir sláumst í förina með framsóknarmönnunum áleiðis til þessa fyrirheitna lands, og við ætluðum líka að vera einskonar hafnsögumenn fyrir þá, svo að þeir leiddust ekki afvega. Málinu var tryggður framgangur, en þá er sendur einn af skeleggustu baráttumönnum flokksins til þess að gerast banamaður frv., og það, sem á vantar, til þess að þetta sé allt fullkomið, leggur hæstv. ráðh. til með því að gefa þá yfirlýsingu, að þegar líftóran sé farin út úr þessum óskapnaði, sem hann hefir sjálfur hugsað út, og nú er blásið í nýjum lífsanda úr nösum framsóknarmanna, þá ætti hann kannske að spyrja þessa gömlu vini sína, hvað þeir leggi til, en hann ætlar sjálfur að ákveða, hvað gera skuli. Ég ber fram hamingjuósk mína til Framsfl. fyrir þennan kafla í æfisögu hans.