15.04.1937
Neðri deild: 39. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég er hræddur um, að hv. þm. G.-K. hafi heyrt illa eða hans skilningur sé ekki sem beztur. Það er ekki rétt, að ég hafi sagt, að ég mundi setja bráðabirgðalög, ef meiri hl. þings væri því samþykkur. Ef það sýndi sig, að meiri hl. þingsins yrði svo andvígur þessu máli, að ég gæti ekki sætt mig við það, þá er ein leið opin, sem ég efast ekki um, að þessi hv. þm. veit um, og er sú, að sá ráðh., sem ekki hefir þingmeirihluta að baki sér, beiðist lausnar. Ég hélt ekki, að það þyrfti að kenna hv. þm. þennan barnalærdóm; hann stendur hér upp sem „verndari“ lýðræðis og þingræðis, en gleymir þessu. Ég er ekki að gefa yfirlýsingu um, hvað ég muni gera, það er ekki ástæða til þess nú, en ég vil bara benda á þessa leið, sem hver ráðh. verður að athuga undir þeim kringumstæðum, sem geta komið til greina um næstu áramót.