16.04.1937
Efri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Magnús Guðmundsson:

Ég ætla fyrst að svara því, sem hæstv. ráðh. sagði síðast, að við sjálfstæðismenn hefðum reynt að koma á stöðvun á síldveiðunum síðastl. sumar. Ég vil segja hæstv. ráðh., að það er með öllu ósæmilegt af honum að halda slíku fram. Hann ætti að bera meiri virðingu fyrir sjálfum sér heldur en svo, að hann viðhefði slík orð. Það er öllum vitanlegt, að sjálfstæðismenn voru að berjast fyrir því að fá síldarverðið hækkað. Og ef það á að teljast vinnustöðvun, — hversu mörgum vinnustöðvunum hefir þá hæstv. ráðh. ekki tekið þátt í með því að heimta hærra kaup til handa verkalýð landsins? Ef þetta gefur honum rétt til að segja, að sjálfstæðismenn hafi reynt að koma á vinnustöðvun, þá ætti hann að stinga hendinni í eigin barm og athuga, hversu oft hann hefir gerzt sekur um hið sama.

Hæstv. ráðh. sagði viðvíkjandi bráðabirgðalögunum, að það hefði verið skylt að gefa þau út, þar sem menn vantaði í stjórnina. Þetta er að vísu rétt, en það var bara öllum vitanlegt allt þingið í fyrra, að þetta átti að liggja fyrir strax í þinglok, og það er einnig vitað, að stjórnarflokkarnir voru að semja um þetta mál meginhluta þingsins, því að það fór ekki svo leynt, að við andstæðingar stj. yrðum ekki varir við það. Þess vegna er þetta ekkert annað en yfirdrepskapur, þegar hæstv. ráðh. er að tala um, að þetta mál hafi ekki legið fyrir fyrr en í þinglok.

Þá er það viðvíkjandi hlutdrægninni á Siglufirði. Hv. 1. þm. Eyf. sagðist aldrei hafa talað um annað en „grun“ um hlutdrægni. En ég tók svo nákvæmlega eftir því, hvað hann sagði um þetta atriði hér í d. Hann sagði nákvæmlega að efni til, að sínir flokksmenn á Siglufirði segðu sér, að beitt væri mikilli hlutdrægni í mannavali. Hann sagðist að vísu ekki hafa aðstöðu til að segja um þetta sjálfur, en hann tryði sínum flokksmönnum.

Hv. 1. þm. Eyf. kvaðst aldrei hafa verið með í neinum sjónleik og taldi, að ég væri vanari því heldur en hann. Sagði hann, að þetta mundi hafa verið sjónleikur hjá okkur sjálfstæðismönnum, að vera með hans frv. Ég skal viðurkenna það, að ég var ekkert hrifinn af því að þurfa að setja upp þennan fjölda manna til þess að stjórna þessu fyrirtæki, en ég var sammála hv. þm. um, að tæpast væri hægt að finna annað ráð til að fyrirbyggja þessa hlutdrægni, sem hann var að tala um. En af hverju er það, að hv. þm. vill hafa alla flokka í stjórn síldarverksmiðjanna? Er það ekki til þess að skapa ánægju og forðast óánægju og hlutdrægni? — Ef hv. þm. vill neita því, að hann hafi talað um hlutdrægni, þá er hann minni maður eftir, því að ég tók nákvæmlega eftir því, hvað hann sagði um þetta atriði. En það er allt annað, hvað verður að gera, þegar í vandræði er komið, eins og ég tel, að þarna sé, m. a. eftir sögn hv. 1. þm. Eyf., sem ég rengi ekki á neinn hátt. Þá verður stundum fleira að gera en gott þykir, og hv. þm. hlýtur að játa, að það er mikið bákn, að setja fyrst upp 12 manna ráð og 3 manna stjórn, og svo 3 endurskoðendur og jafnvel 2 framkvæmdarstjóra, yfir ekki stærra fyrirtæki heldur en síldarverksmiðjurnar eru. Ég held, að stjórnarflokkarnir hefðu gott af að minnast þess, sem þeir hafa sagt um framkvæmdarstjóra Kveldúlfs. Þeir mega ekki vera nema 2, og hygg ég þó, að það fyrirtæki sé ekki minna en síldarverksmiðjur ríkisins.

Hv. 1. þm. Eyf. var ánægður með svar hæstv. atvmrh. Ég efast heldur ekki um, að það hafi verið tilbúið fyrirfram. Hv. þm. var með skrifaða ræðu, og ég efast ekki um, að það hafi líka verið búið að búa til svarið og allt hafi verið klappað og klárt. En til þess að hafa þetta í sjónleiksformi eru þessar aðfarir viðhafðar.

Mér finnst hv. 1. þm. Eyf. vera orðinn harla lítilþægur, þegar hann lætur sér nægja samráð flokkanna. Að sjálfsögðu hefir ráðh. það þannig — eins og þegar hann ætlaði að skipa í verksmiðjustjórnina — að taka bara einhvern mann, sem hann telur, að tilheyri Sjálfstæðisflokknum, fara eftir áliti hans og telja það svo álit flokksins. En hv. þm. lagði mikla áherzlu á það, að með þessu móti fengju till. frá flokkunum að koma fram. Það er nú svo sem ekki víst, að till. frá flokkunum fái að koma fram, því það á ekki að ráðgast við flokkana sjálfa. (Atvmrh.: Jú, eða menn, sem flokkarnir tilnefna). Það er gott, að hæstv. ráðh. finnur, að sú aðferð, sem hann notaði í sumar, getur ekki gengið. En svo að ég snúi mér aftur að ánægju hv. 1. þm. Eyf. yfir því, að till. frá flokkunum fái að koma fram, þá finnst mér hann vera orðinn nokkuð lítilþægur, þegar hann lætur sér það nægja, því að það er satt að segja ekki ennþá komið svo hér á landi, að menn ekki fái að setja fram skoðanir sínar, og þarf ekki að sækja neina hjálp til hv. 1. þm. Eyf. til þess. Ég býst við, að flokkarnir hefðu haft heimild til þess að koma fram með sínar till., þó að ekki hefði verið farin öll þessi langa krókaleið, svo að ég finn enga ástæðu til að þakka hv. þm. fyrir þessa hjálp, því að hún er engin.

Hv. 1. þm. Eyf. sagðist vel vita, hver sé stefna Framsfl. í þessu máli. Það má vel vera, að hann viti það, en ég veit það ekki. Eftir því að dæma, sem hér hefir komið fram, virðist stefnan vera sú, að setja eitthvað og eitthvað fram og heykjast svo á því.

Þá sagði hv. 1. þm. Eyf., að það hefði verið rangt af Sjálfstæðisfl. að vilja ekki tilnefna mann í verksmiðjustjórnina síðastl. ár. Þar er nú því til að svara, að mér er ekki kunnugt um, að miðstj. flokksins hafi verið gerð nein boð um að tilnefna mann, en hitt er mér kunnugt um, að hæstv. atvmrh. var að reyna að fá menn til þess að ganga í verksmiðjustjórnina, en þeim mönnum sögðum við, að þeir gætu gert það fyrir sjálfa sig, ef þeir vildu, en þeir gætu ekki gert það f. h. flokksins, vegna þess að miðstjórnin ætti þar engan hlut að máli. Það er vitanlega sitt hvað, að láta einhvern og einhvern tilnefna einhvern og einhvern flokksmann, eða hitt, að miðstjórnin geri það. Og allt þetta mál er svo nátengt einum manni úr flokki hv. 1. þm. Eyf., að þetta ætti hann manna bezt að geta skilið.