17.02.1937
Neðri deild: 3. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (313)
4. mál, tolllög
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í þessu frv. er safnað saman ákvæðum þeim, er felast í ákvæðum þeirra l., sem ræðir um í 3. gr. frv., og þau felld inn í 1. gr. l. nr. 41 27. júní 1921, um breyt. á 1. gr. tolllaganna frá 1911.
Það er haganlegra, að hinir ýmsu gjaldstigar l. séu safnaðir saman á einn stað. Annars er ákvæðum tollflokkanna ekki breytt að öðru leyti en því, að þau eru orðin í samræmi við úrskurði, sem felldir hafa verið samkv. heimild í l. um skilning á nokkrum umdeildum ákvæðum l. og í samræmi við skilgreiningar þær, sem um ræðir í reglugerðum, settum samkv. heimild í l. nr. 24 1. febr. 1936, en þær reglugerðir fjalla um það, hvernig tilteknar neyzluvörur skuli gerðar, til þess að þær skorti ekki eðlilega hollustu, séu ekki skaðlegar heilbrigði manna eða falsaðar. Að lokum er það, að til sætinda er talinn lakkrís, lakkrisvörur o. fl. þessháttar.
Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til fjhn. að lokinni þessari umr.