17.04.1937
Neðri deild: 41. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (342)
11. mál, alþýðutryggingar
*Thor Thors:
Þetta frv. er um framlengingu á bráðabirgðal., sem sett voru á síðasta ári af hæstv. atvmrh. Þau eru um sama efni og frv., sem við sjálfstæðismenn fluttum á síðasta þingi, og við erum þess vegna málinu fylgjandi. Ég vil láta þess getið, að við teljum þessar breyt. á alþýðutryggingarl. hvergi nærri nægilegar, og í sambandi við annað frv., sem hér liggur fyrir d., og er 25. mál og borið fram af sjálfstæðismönnum, höfum við hv. 8. landsk. skilað sérstöku nál., þar sem lagt er til, að gerðar verði stærri og meiri breyt. en hér. En þar sem telja má ólíklegt, að þessar breyt. nái fram að ganga á þessu þingi, þá teljum við rétt, að þetta frv. út af fyrir sig verði samþ. og viljum biðja sjálfstæðismenn að greiða götu þess.