19.04.1937
Efri deild: 45. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

11. mál, alþýðutryggingar

*Þorsteinn Þorsteinsson:

Það liggja nú fyrir á þessu þingi nokkuð mörg frv. til breyt. á l. um alþýðutryggingar, og í sambandi við þau vildi ég gera eitt atriði að umtalsefni, þar sem gert er ráð fyrir, að þingið verði nú rofið innan skamms, og því líklegt, að a. m. k. tvö af þessum frv. nái ekki fram að ganga. En það er eitt atriði sérstaklega í þeim frv., sem ekki er í þessu frv., og það er um meðferð og útbýtingu á ellistyrktarsjóðsfé. Ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. atvmrh., hvort hann sæi sér ekki fært að koma því þannig fyrir, að útbýting á ellistyrktarsjóðsfénu fari fram næsta haust, eins og þau 1. gera ráð fyrir, þar sem virkilegur þingvilji virðist vera á bak við það, þannig að ellistyrknum sé útbýtt sérstaklega, en ekki látinn renna til lífeyrissjóðs og síðan útbýtt úr honum. Eftir laganna hljóðan virðist sjálfsagt að hafa þá aðferð, sem við var höfð í haust, að allt var greitt í lífeyrissjóð og svo útbýtt í einu lagi þaðan. Ég vildi gjarnan, að hæstv. ráðh. tæki þetta til athugunar, því að ég tel þetta nauðsynjamál, og þó þingið komi saman aftur á þessu ári, verður aldrei hægt að koma l. svo fljótt frá því þingi, að tiltækilegt verði að útbýta úr ellistyrktarsjóðnum samkv. þeim lögum.