22.02.1937
Neðri deild: 7. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (359)
9. mál, fiskimálanefnd o. fl.
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Með l. nr. 121 12. des. 1935, um breyt. á l. nr. 76 29. des. 1934, um fiskimálanefnd o. fl., hefir að því er virðist fyrir vangá í meðferð Alþingis verið felld niður 14. gr. 1. nr. 76 1934, sem hafði að geyma refsiákvæði fyrir brot á fiskimálanefndarlögunum, og ákvæði um meðferð mála út af brotum á þeim lögum. Er því hér gert ráð fyrir, að greinin verði sett inn í lögin frá 1935, eins og hún var í lögunum frá 1934. Til viðbótar þessu er hér sett inn ákvæði um það, að andvirði ísfisks, sem fluttur er út umfram veitt útflutningsleyfi, skuli renna í fiskimálasjóð. Ákvæði þetta er sett sökum þess, að síðastl. ár bar nokkuð á því, að sumir fiskútflytjendur, einkum þeir, sem fengu útflutningsleyfi til Þýzkalands, fluttu út meira magn af ísfiski en þeir höfðu haft leyfi til; nam sá útflutningur um tveimur togaraförmum. Afleiðingin af þessum útflutningi án leyfis varð því sú, að það varð tveimur veiðiskipum færra, sem gátu selt fisk sinn á þýzkum markaði en ella hefði orðið.