10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (363)

9. mál, fiskimálanefnd o. fl.

*Ólafur Thors:

Ég held, að það sé ekki mikil ástæða til að fara nú með sérstökum lagafyrirmælum að hindra það, þó togarar, sem ísfiskveiðar stunda með sölu á Þýzkalandsmarkaði fyrir augum, gerist brotlegir um að selja þar meira fiskmagn heldur en fiskimálanefnd úthlutar þeim leyfi fyrir í hvert skipti. Og það er af þeim ástæðum, að fiskimálanefnd hefir í hendi sér eins og er að veita einstökum útvegsmönnum nægilegt aðhald í þessu efni. Eins og hv. frsm. sagði, hefir það þótt miklu arðvænlegra að stunda ísfiskveiðar með sölu á Þýzkalandsmarkaðinum fyrir augum heldur en til þess að sigla með aflann til Englands og selja hann þar. Það er líka rétt, að komið hefir fyrir, að einstakir togarar hafa siglt með meiri fisk til Þýzkalands heldur en þeir hafa fengið heimild til að selja þar. En af þessu leiðir ekki það, að nauðsynlegt sé eða heppilegt að setja um þetta sérstök lagafyrirmæli, og þau lagafyrirmæti, sem hér er farið fram á, eru ekki heldur í alla staði sanngjörn eða eðlileg. Hinsvegar getur fiskimálanefnd mjög auðveldlega haft þetta í hendi sinni án lagabreytinga. Salan á þýzkum markaði stendur yfir í fjóra mánuði, ágúst, september, október og nóvember. N. úthlutar venjulega leyfunum einn til tvo mánuði fram í tímann. Ef þau skip, sem eru rekin af félögum, er fleiri skip hafa til umráða, gerast brotleg í svo verulegum mæli, að n. telur það af ásettu ráði, getur hún refsað þeim með því að banna skipum frá sama félagi sölu síðari hluta sölutímans. Gerist skipin aftur á móti brotleg síðara tímabilið, er nægur tími fyrir n. að ná sér niðri á þeim á næsta ári. Hinsvegar er næstum óhugsandi, að nokkur geti verið viss um að hafa ekki 4–5 smálestir fram yfir þær 90–100 smálestir, sem hverju skipi er leyft að fara með, og þó slíkt hendi, er ástæðulaust að gera andvirði þess afla upptækt, eins og hér væri um einhverja bannvöru að ræða.

Ég hjó eftir því hjá hv. frsm., að sökum þess, hvað þessi sala væri mikið keppikefli, væri nauðsynlegt, að fullt réttlæti ríkti um skiptingu markaðarins. Það er rétt, að það væri full ástæða til að setja ákvæði um réttlæti í þessu efni. Ég veit ekki, hvort hv. þm. veit það, en það hefir ríkt megnasta óréttlæti í gerðum fiskimálanefndar á þessu sviði eins og öðrum. Hvað snertir mitt félag, þá fékk það að mig minnir leyfi til að selja í Þýzkalandi afla úr 4 veiðiförum, auk einnar ferðar í ágúst, en hingað til hafa menn getað fengið að selja nokkurnveginn eftir óskum í ágúst, af því markaðurinn hefir þótt verri þá, svo að menn hafa yfirleitt ekki óskað eftir að láta skip sín sigla til Þýzkalands með ísfisk í þeim mánuði. Þetta félag hefir í skip, og fékk þó ekki leyfi til að selja nema úr 4 veiðiferðum þennan tíma, sem þykir eftirsóknarverður til sölu í Þýzkalandi. Svo eru aftur aðrir útgerðarmenn, sem meira virðast eiga upp á pallborðið hjá fiskimálanefnd og fengið hafa leyfi til að selja úr tveimur veiðiförum, þó þeir hafi ekki nema eitt skip, Í hlutfalli við það hefði mitt félag átt að fá leyfi til að selja úr 14 veiðiferðum, en fékk ekki nema 4 ferðir. Vaki það fyrir sjútvn., að fullt réttlæti ríki í þessu efni, skora ég á hana að athuga, hvort ekki ætti að setja í lögin ákvæði um, að fiskimálanefnd skuli úthluta öllum skipum hlutfallslega sama rétti til sölunnar í Þýzkalandi, án tillits til, hver á þau, og að í það ákvæði skuli leggja þann skilning, að stærri skipin fái heimild til að selja meiri afla í hverri ferð heldur en þau minni, því það er sanngjarnt.

Ég get bent á fleiri dæmi um ranglæti í þessu efni. Útgerð Ólafs Jóhannssonar mun ekki hafa fengið leyfi til að selja úr einni einustu veiðiför í Þýzkalandi, og útgerð Einars Þorgilssonar ekki nema úr einni ferð á síðasta hausti, en svo koma aðrir, sem aðeins hafa eitt skip, en fengu þó leyfi til að selja úr tveimur veiðiferðum. Ef það er rétt, sem hv. frsm. segir, að eftirsóknarvert sé að selja á þýzka markaðinum — og það er rétt, þar sem meðalsala togaranna í Þýzkalandi var sem svaraði 1900 sterlingspundum þegar meðalsala í Englandi var 1000 sterlingspund, — hvað meinar hv. n. þá með því að vera með svona kákréttlæti, að fiskimálanefnd megi gera upptækt andvirði 5–10 smálesta, sem fara kunna fram yfir það, sem hverju skipi er leyft að selja, en hirða ekkert um miklu stórkostlegra ranglæti í þessu efni? — Ég vil mætast til, að hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Vestm. taki þetta til athugunar, hvað sem öðrum meðlimum sjútvn. líður. Ég þykist nú hafa sýnt fram á tvennt í sambandi við þetta frv., að ekki sé nauðsynlegt að setja lagafyrirmæli um þetta atriði, sem hv. frsm. talaði um, af því fiskimálanefnd geti haft í hendi sér að skapa nægilegt aðhald í því efni, og í öðru lagi að tryggja þurfi það réttlæti, sem hér er um að ræða, með öðrum lagafyrirmælum, sem hv. n. hefir skotið sér undan að gera till. um, þó ég efist ekki um, að sumir nm. séu svo kunnugir gerðum fiskimálanefndar, að þeim sé kunnugt um það hróplega ranglæti, sem ég hefi hér lýst.

Ég vil fara fram á það við hæstv. forseta, af því ég á mjög bágt með að taka þátt í þessari umr. nú, en vil mjög gjarnan vera viðstaddur framhald hennar, að hann fresti umr. að þessu sinni. Ég tel frv. ekki svo stórvægilegt, að miklu skipti um, hvort það nær fram að ganga, en verði það afgr., vil ég, að það gefist tækifæri til að flytja brtt. um það atriði, sem ég hefi hér lýst og tel meiru varða.