13.04.1937
Neðri deild: 37. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í B-deild Alþingistíðinda. (372)
9. mál, fiskimálanefnd o. fl.
*Ólafur Thors:
Það er alveg í samræmi við aðra framkomu form. fiskimálanefndar, að nefna þetta félag sérstaklega sem brotlegt, því að hvergi hefir verið sýnt annað eins ranglæti í úthlutun útflutningsleyfa og einmitt gagnvart Kveldúlfi. Ég veit satt að segja ekki, hvaða lykill gengur að form. fiskimálanefndar (Rödd af þingbekkjum: Kannske það sé þjófalykill?), en ég veit, að ýmsir vildarvinir hans hafa ekki átt undir högg að sækja með leyfin. Ég heyri, að einn af samherjum hans segir, að helzt muni ganga að honum þjófalykill, og ég get vel sætt mig við þá skýringu. Mér er kunnugt um, að maður, sem á aðeins eitt skip, fékk útflutningsleyfi fyrir tveim veiðiferðum, en Vatnseyrarbræður, sem eiga tvö skip, fyrir engri. Kveldúlfur fékk leyfi til sölu á afla úr fjórum veiðiferðum, í stað fjórtán, sem hann átti rétt á. Hæstv. atvmrh. upplýsti, að verð meðalafla úr veiðiferð hefði verið 1000 £ í Englandi, en 1900 £ í Þýzkalandi. Ef Kveldúlfur hefði nú notið sama réttar og þeir, sem þjófalyklana hafa að formanni fiskimálanefndar, hefði þetta félag fengið 200 þús. kr. hærra fyrir afla sinn en raun varð á, eða 9000 £. En við höfum ekki haft neina þjófalykla að formanninum og því orðið að gjalda ranglætis nefndarinnar sem þessari upphæð nemur. Hitt er rétt, að eitt skip okkar seldi í einni veiðiferð 30 smálestum meira en leyfi var fyrir. Ég tel þessa sölu góðra gjalda verða af skipstjóranum, og nutu allir góðs af, þjóðin, félagið og sjómennirnir, en hinsvegar kom hún ekki niður á neinum. Það er því ekki annað en taumlaus og skefjalaus frekja, þegar þessi hlutdrægi maður fer að bregða því félagi um lögbrot, sem hann hefir sýnt jafnósvífið ranglæti.