13.04.1937
Neðri deild: 37. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í B-deild Alþingistíðinda. (374)

9. mál, fiskimálanefnd o. fl.

*Ólafur Thors:

Það er leiðinlegt fyrir form. fiskimálanefndar, að hann skuli ekki geta komið með neitt sér til réttlætingar viðvíkjandi úthlutun söluleyfanna til Þýzkalands gegn hinum þungu ásökunum um hlutdrægni, sem ég hefi borið á hann. Ég veit ekki, hvort það, sem hann hefir gert í þessum málum, varðar við lög, en ég veit það, að margt varðar við lög, sem er ósaknæmara en að brjóta svo lög og rétt á þegnunum sem hann hefir gert. (HV: Á Kveldúlfur þess vegna að brjóta landslög?). Nei, það er ekki afsökun fyrir neinn til þess að brjóta lög, að aðrir geri það. En ég hefi lýst því réttlæti, sem við höfum notið af hálfu þessa manns, þar sem við höfum fengið fjögur söluleyfi af fjórtán, sem okkur bar. Okkar eina sök er þá það á móti, að skipstjórinn hefir selt nokkrum tonnum meira en leyfi var veitt fyrir. En það eru fleiri en Kveldúlfur, sem réttur hefir verið brotinn á í þessu efni, svo sem synir Ólafs Jóhannessonar, Einar Þorgilsson í Hafnarfirði og jafnvel Alliance, en hinsvegar ýmsum gæðingum formannsins — þessum með þjófalyklana — verið ívilnað svo ótrúlegt er. Ef gerðir fiskimálanefndar eru svona yfirleitt, held ég, að öllum sé bezt borgið með því, að störf hennar falli niður með öllu.