14.04.1937
Neðri deild: 38. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (381)
9. mál, fiskimálanefnd o. fl.
*Ólafur Thors:
Mér þykir ekki ástæða til þess að fara að gagnrýna hér almennt þær reglur, sem fiskimálanefnd hefir undanfarin ár notað við úthlutun útflutningsleyfa á ísfiski, en þó vil ég láta falla þá almennu aths., að ég tel, að þær reglur hafi verið varhugaverðar, jafnvel skaðlegar, enda hefir fiskimálanefnd að sumu leyti fallið frá þeim, og þetta hefir farið betur eftir að frá þeim var fallið.
Ég ætla eingöngu að halda mér að þeirri brtt., sem ég hefi borið fram á þskj. 307, og sem ég gat ekki heyrt, að hv. 2. þm. Reykv., form. fiskimálanefndar, væri mótfallinn, a. m. k. ekki þannig, að hann færði sérstaklega rök fyrir því, að hún væri ekki réttmæt, enda hygg ég, að það sé örðugt að leiða rök að því, að það sé ósanngjarnt, sem þar er farið fram á, en það er, að togararnir, án tillits til þess, hverjir eigendurnir eru, fái að verða aðnjótandi þeirra fríðinda, sem ísfisksalan undanfarin ár hefir reynzt að vera, en ég hefi áður vikið að því hér í hv. d., að það er arðvænlegasta útgerðin að veiða á ísfiskmarkað í Þýzkalandi, eftir því sem reynslan hefir verið síðustu ár. Ég veit um það, að þegar þetta mál var til umr. hér síðast, skorti allmjög á, að jafnrétti ríkti í þessu efni.
Ég hefi hér skýrslu, sem greinir frá því, hvernig þessum gæðum hefir verið skipt milli hinna einstöku félaga. Skýrslan er að því leyti ekki alveg tæmandi frá mínu sjónarmiði, að hún gerir ekki greinarmun á því, hvort salan hefir farið fram í ágúst, eða hinsvegar í september, október eða nóvember, en eins og skýrt hefir verið, varðar það mjög miklu, vegna þess að það er almennt talið, að hæpið sé, hver fengur er í því að fá að selja aflann í ágúst, því að þá er markaðurinn venjulega miklu lélegri en seinna á haustin. Ef skýrslan hefði verið miðuð við þessa þrjá mánuði, september, október og nóvember, þá hefði hún gefið réttari mynd af þeim kjarna málsins, sem um er deilt, þ. e. a. s., hvort verulegt misrétti hefir ráðið um úthlutun gæða í þessu sambandi. En þó að litið sé á skýrsluna eins og hún er og minna sé gert úr hinum raunverulega órétti en ástæða er til, þá ber hún það samt með sér, að einstök togarafélög hafa ekki fengið leyfi til að selja einn ugga á þennan markað. En hinsvegar sýnir hún að ýms félög hafa fengið hlutfallslega langt fyrir neðan það meðaltal, sem þau áttu að fá, ef allir hefðu sætt sama rétti, en svo voru önnur togarafélög, sem fengu langt umfram það, sem þeim bar eftir þessum reglum. Ég skal t. d. nefna það félag, sem hv. 2. þm. Reykv. minntist á; það mun hafa átt kröfu á að selja 800 tonn samkv. skipafjölda sínum, en það fékk ekki leyfi fyrir meira en 530 tonnum, og af þeim voru 220 tonn seld í ágúst, en það er, eins og ég áðan gat um, ekki talinn mikill fengur.
Nú mun það rétt vera, að þetta félag bætti hag sinn með því að flytja út eitthvað meira en leyfi stóð til, en eftir því, sem hv. 2. þm. Reykv. gat um, voru það ekki nema um 43 tonn, sem hann taldi allmikið, en er þó ekki meira en hjá bæjarútgerð Hafnarfjarðar, ef hann vill líta á það með sömu augum. Hv. þm. sagði, að hjá því fyrirtæki hefðu ekki verið nema 16 tonn á 2 skip, en það eru 8 tonn á skip, og ef Kveldúlfur hefði orðið jafnbrotlegur, hefði hann átt að hafa 7x8 eða 56 tonn, en ekki um 43 tonn. En jafnvel þótt reiknað sé eftir ferðum á Þýzkaland, sem voru 5 hjá Kveldúlfi, þá voru þetta ekki nema 5x8 eða 40 tonn, og þá eru hér aðeins 3 tonn fram yfir það, sem bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefir notað umfram leyfi, en það brot telur hv. 2. þm. Reykv. ákaflega lítið. Ég tel, að það sé ekkert réttlæti í að reikna þetta þannig, heldur sé eðlilegt, að það sé reiknað eftir skipafjölda hvers félags. Þessi skýrsla sýnir, að h/f Kveldúlfur hefir í raun og veru ekki fengið nema helming af þeim leyfum, sem honum bar eftir skipafjölda, og réttarbrotið kemur enn greinilegar í ljós, þegar tekin eru skip, sem hv. 2. þm. Reykv. gat sjálfur um, að hefðu fengið leyfi fyrir 2 ferðum, en vitanlega náði ekki nokkurri átt að láta hafa nema eina ferð. Hv. 2. þm. Reykv. var að færa fram varnir gegn þessum réttarbrotum. Ég vil taka það fram, að hann hefir sjálfur sagt mér, að hann beri ekki beina ábyrgð á þessu, þó að hann verði að svara til saka um það, og það er náttúrlega rétt. En hann var að bera fram þær afsakanir, að þessi skip, sem ég gat um, að hefðu fengið leyfi fyrir 2 ferðum, hefðu verið búin að sigla svo mikið á England, og þetta fannst honum gefa þeim meiri réttindi en hinum, sem ekki seldu á þennan markað. En þetta er frá mínu sjónarmiði ákaflega ranglátt; það nær ekki nokkurri átt fyrir opinbera n. að vera að verðlauna þá togaraútgerðamenn, sem árum saman hafa verið að seilast til að haga sínum atvinnurekstri þannig, að sem allra fæstir hefðu atvinnu af því, en það eru einmitt þau skip, sem stunda ísfiskveiðar, en leggja minni stund á saltfiskveiðar og síldveiðar, og hinsvegar að hegna þeim, sem eru að reyna að haga útgerðinni þannig, að sem flestir geti haft atvinnu af. Ég veit það, að þegar hv. þm. fer að athuga þetta mál, þá sér hann, að það er rétt, sem ég segi, og ég get ekki skilið annað en það verði erfitt fyrir hann að fóta sig, ef hann ætlar að halda því fram, þessi maður, sem alltaf er að gera kröfur til að útgerðin sé rekin með hagsmuni verkalýðsins fyrir augum, að það eigi að verðlauna þá, sem gera þetta ekki. Ég skal nú játa, að það hefði átt að vera óþarfi að koma með þessa brtt. inn á Alþingi; fiskimálanefnd hefði vitanlega getað lagað þetta sjálf, en hún hefir nú ekki gert það, og þá var þetta ráð tekið. Ég get hinsvegar tekið það fram, að ég er reiðubúinn til þess fyrir mitt leyti að taka þessa till. aftur, ef form. n., hv. 2. þm. Reykv., vill lofa því fyrir sitt leyti, að þetta verði lagfært og fylgt framvegis þeirri meginreglu, sem kemur fram í till. En vilji hann það ekki, þá tel ég það eðlilegt, að við, sem höfum orðið fyrir þessu ranglæti, leitum réttar okkar hér á Alþingi. Ég hefi í rauninni löngun til að lesa hér upp þessa skýrslu, til þess að staðfesta hana, en ég vil ekki tefja tíma d. með því. — Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, þó ég ætti hægt með að rökstyðja till. nánar. Ég er sem sagt reiðubúinn til að taka hana aftur, ef hv. 2. þm. Reykv., form. fiskimálanefndar, vill lýsa því yfir, að hann geti aðhyllzt efni hennar, og vill lofa að framkvæma hana; en geri hann það ekki, mun ég halda fast við hana.