08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (417)

18. mál, leiga á mjólkurvinnslustöð

*Jón Baldvinsson:

Það var aðeins um þingsköp, sem ég ætla að segja nokkur orð. Vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki aðeins þau mál fyrir, sem taka litlar umr., af því að útvarpsumr. fara fram í kvöld og munu standa marga klukkutíma. Þurfa menn því að undirbúa sig, og væri það vel séð hjá þeim, sem taka eiga þátt í þeim, að ekki yrðu önnur mál tekin fyrir en þau, sem litlar umr. verða um.