09.04.1937
Efri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í B-deild Alþingistíðinda. (421)

18. mál, leiga á mjólkurvinnslustöð

*Þorsteinn Briem:

Hæstv. forsrh. hefir talað mikið og merkilegt mál um það góðverk sitt til handa íslenzkum bændum, að hann skyldi taka þessa umræddu mjólkurvinnslustöð leigunámi. Hann hefir útmálað það með mörgum orðum, hve mikið gagn hann hafi unnið bændum með þessu. En það undarlega er, að bændurnir sjálfir virðast ekki vera neitt sérstaklega þakklátir honum fyrir góðverkið. Hann minnist þess ef til vill, hæstv. ráðh., að hafa séð undirskriftir frá bændum, þar sem þeir a. m. k. lýsa ekki ánægju sinni yfir verknaðinum. Þessar undirskrifuðu ályktanir eru allrækilega rökstuddar, og þær eru ekki aðeins undirskrifaðar af pólitískum andstæðingum hæstv. ráðh., sem hefði náttúrlega mátt bera þeim brigzl um, að þeir hefðu gert það af pólitískum ástæðum, heldur eru þarna með öflugir stuðningsmenn hæstv. ráðh., ákveðnir framsóknarmenn, ekki aðeins úr næstu sveitum, heldur einnig ofan úr Borgarfirði, sunnan af Nesjum og ofan úr Kjós. Allur þessi mikli fjöldi bænda hefir lýst yfir megnustu vanþóknun sinni út af þessu einkennilega tiltæki hæstv. ráðh. Og það bregður dálítið einkennilega við, að þeir skyldu hefja þessar undirskriftir, ef hægt hefði verið að sannfæra þá um, að hæstv. ráðh. væri að vinna þeim í hag. Því verður varla við borið, að framsóknarbændur hér í nágrenninu hafi ekki átt kost á að kynna sér málavöxtu áður hjá hæstv. ráðh. sjálfum, svo nákunnugir munu þeir vera honum. Einnig er það vitað, að margir þessara bænda eru svo glöggir og gætnir menn, að þeir hefðu ekki farið að undirskrifa vanþóknunaryfirlýsingu á gerðum ráðh. fyrr en þeir höfðu kynnt sér málið fullkomlega. Ég verð að álíta, að aðrir standi ekki nær því að dæma í þessu máli en eigendur mjólkurinnar sjálfir, því þeir eiga mest í húfi. Og óánægja bændanna á framleiðslusvæðinu er ekki alveg rokin burtu, því fyrir fáum dögum hefir fulltrúafundur Búnaðarsambands Kjalarnesþings samþ. till., sem fara mjög í sömu átt og undirskriftirnar. Það má því einkennilega við bregða, ef hæstv. ráðh. hefir hér gert bændum eitthvert góðverk, að slíkar þakkir komi í móti. En þegar betur er að gáð, er þetta ekkert undarlegt, því þessi aðferð hæstv. ráðh., er hann tók stöðina leigunámi, er í mesta máta alvarlegt fyrirbrigði, og hygg ég, að ekki fari fjarri sanni það, sem lögfræðingurinn hv. 2. þm. Rang. sagði hérna áðan, að slík bráðabirgðalög væru einsdæmi í íslenzkri löggjöf. Maður getur með tilliti til þeirra gert sér í hugarlund, hverskonar aðferðum mætti beita gegn samvinnufélögunum hér á landi, ef nokkur stjórn vildi fylgja fordæmi hæstv. ráðh. Hvernig mætti fara með Mjólkursamlag Eyfirðinga? Ég veit ekki betur en það félag neiti alveg að vinna mjólk fyrir utanfélagsmenn. Ég slæ því föstu, að svo sé, ef það verður ekki leiðrétt af þeim mönnum hér í d., sem um þetta vita. Það mætti nefna frystihúsin. Hvernig mætti fara með þau, ef þau vildu ekki frysta til útflutnings kjöt fyrir utanfélagsmenn gegn lægra gjaldi en fyrir félagsmenn? Eða kaupfélögin, ef þau vildu ekki útvega utanfélagsmönnum vörur með lægra verði en félagsmönnum? Svo langt og mikið lengra mætti halda áfram með ofbeldisathafnir gegn margskonar fyrirtækjum í landinu, ef nokkur stjórn vildi fylgja einræðisaðferðum hæstv. ráðh.

Ég þykist vita, að hv. 2. þm. Rang. muni svara þeim aðfinnslum, sem hæstv. ráðh. bar fram í garð Mjólkursamlags Kjalarnesþings. Það hefir áður heyrzt ýjað í sömu átt, en þær aðfinnslur hafa ekki reynzt á rökum byggðar. Og ég vona, að hæstv. ráðh. eigi í því efni eftir að fara sömu för og hann oft áður hefir farið í líkum málum. Það er ekki enn sannað, að nein þörf hafi verið til þess að grípa til einræðisráðstafana gagnvart þessari stofnun, þó einhverjir menn, sem ég veit ekki, hvort ég má nefna hér því nafni, sem blöðum þessa hæstv. ráðh. er svo tamt, félagsskítir, hafi, 10 eða 20 talsins, sett það í sig að vilja vera utan við félagsskapinn, og þó þeir hafi gert kröfu til þess að hljóta verðlaun fyrir að vera félagsskítir, þá fæ ég ekki séð, að ástæða hafi verið til að verðlauna þá. Mjólkursamlag Kjalarnesþings bauðst til að hreinsa mjólkina fyrir þá fyrir sama verð og sína félagsmenn. Verður það að teljast vel boðið, þegar önnur mjólkursamlög neita utanfélagsmönnum um hið sama, þó þeir bjóði sömu borgun fyrir og félagsmenn.

Ég kalla, að það sé ljóslega sýnt af hv. 2. þm. Rang., þrátt fyrir mótmæli hæstv. ráðh., að það voru tylliástæður, sem bornar voru fram í innstillingunni til konungs fyrir bráðabirgðalögunum. Og einhver spurði áðan, þegar hæstv. forsrh. var að lýsa eymdarástandi því, sem verið hafði á mjólkurstöðinni, hvort þetta ástand hefði nokkuð batnað. Ég vil endurtaka þessa spurningu til hæstv. ráðh. Ég veit ekki til, að svo sé, og ég skal gefa þær upplýsingar í þessu máli, sem ég hefi fengið frá bændum sjálfum, um það, hvort kostnaðurinn hefir minnkað eða hvort verðið hefir hækkað til bændanna eftir að stöðin var tekin. Hæstv. forsrh. sagði á þingi í fyrra, að bændur vestan heiðar fengju 26 aura á lítra fyrir sína mjólk, og í raun og veru meira, því þeir greiddu of hátt mjólkurvinnslugjald, 1½ eyri á lítra, sem stöðin tæki fram yfir það, sem vinnslan kostaði, og væri þetta eign bændanna, svo þeir fengju í raun og veru 27–28 aura fyrir lítra. Ef þetta hefir verið rétt hjá hæstv. ráðh. þá, þá væri útkoman nú ekki sem bezt fyrir hann, því ég hefi hér samanburð frá glöggum bónda á framleiðslusvæðinu yfir mjólkurverðið í fyrra og nú, og á þeim samanburði sést, að frá 12. júlí s. l. til ársloka hefir það verð, sem hann fékk, verið 24,5 aurar á lítra, svo ef það var satt, sem hæstv. forsrh. sagði í fyrra, að bændur vestan heiðar fengju 27,5 aura fyrir lítra, þá er lækkun verðsins hvorki meiri né minni en 3 aurar á hvern lítra. En þess er nú ekki að vænta, að frásögn hæstv. ráðh. á þingi í fyrra væri nákvæm, enda munu bændur þá hafa fengið 25,5 aura, en ekki 27,5 aura fyrir lítrann. En síðari hluta s. l. árs fekk sá bóndi, er ég nefndi áðan, 24,5 aura, eða 1 eyri minna fyrir lítra en í fyrra. Hjá bónda þessum er fitumagnið í bezta lagi, eða 3,7%, og mun hafa verið svipað bæði árin, og sama er að segja um flokkun mjólkurinnar. Verðmunurinn stafar því ekki af gæðamun á mjólkinni. Nei, ástæðan er allt önnur. Bóndanum er reiknuð mjólkin nú á 26,8 au. brúttó, en frá því verði dregst vinnslukostnaður, sem er hærri en árið áður, að meðtöldum nýjum lið, sem heitir á reikningnum „annar kostnaður“, og verður þá kostnaðurinn samtals hvorki meiri né minni en 2,24 au. á lítra og útkoman eða raunverulega verðið 24,5 aurar. En hver þessi nýi kostnaðurliður er, hafa framleiðendurnir ekki fengið að vita um, svo ég vildi þess vegna spyrja um það, og óska þess, að hæstv. ráðh. gefi bændunum um það greið svör. Það er auðséð, að á fyrsta mánuði, sem stöðin starfaði eftir að leigunámið fór fram, hefir ekki verið gert ráð fyrir þessum nýja kostnaðarlið, því af mjólkinni í þeim mánuði er aðeins reiknaður vinnslukostnaður 1 eyrir á lítra. En þetta verð stóð ekki lengi. Á reikningi næsta mánaðar, ágúst, kom liður, vantalinn kostnaður í júlí, 2 aurar á lítra, svo kostnaðurinn varð samtals 3 aurar á lítra. Árið áður var þessi kostnaður á sama tíma ½ eyrir á lítra. Í ágúst var svo kostnaðurinn 3 aurar, og í næstu 3 mánuði var kostnaðurinn minni, 1 eyrir, vegna þess að þá vantaði mjólk í bæinn. Í desember er svo kostnaðurinn kominn upp í 1½ eyri á lítra, og er það óvenjulega hátt á þeim tíma. Það lítur svo út, að Búnaðarsamband Kjalarnesþings þykist geta ráðið í það, í hverju það liggi, að kostnaðurinn er svo hár. Það er sýnilegt á samþykkt þess, að hæstv. ráðh. hefir ekki getað framkvæmt raunverulega það, sem hann ætlaði sér, að lækka vinnslukostnað mjólkursamlagsins, sem var 2,2 aurar á lítra, en hann hefir bætt við nýjum kostnaðarlið til þess að reyna að fela mistök sín. Það er ekki heldur að sjá, að hæstv. ráðh. hafi verið umhugað um að lækka kostnaðinn, eins og hann þó lét. Það kemur fram í samþykkt Búnaðarsambands Kjalarnesþings, að starfsmönnum við stöðina hefir mikið verið fjölgað. Þar segir, að laun þeirra starfsmanna, sem bætt hafi verið við, nemi jafnmiklu og öll vaxtabyrði stöðvarinnar. Það er því full ástæða til að spyrja hæstv. ráðh., sem sagði á þingi í fyrra, að stöðin græddi 2 aura á lítra á mjólkurvinnslunni, hvað verði nú af þessum hreinsunargróða. Búnaðarsamband Kjalarnesþings vítir mistök, sem orðið hafi á gæðaflokkun stöðvarinnar eftir að hæstv. ráðh. tók við henni, svo að það er víst, að bændur þar efra a. m. k. meina, að hæstv. ráðh. hafi hér ekki að öllu leyti hreint mjöl í pokanum. Bændur, sem þessum hnútum eru kunnugastir, eru fullvissir um það, að þessi nýi kostnaðarliður sé aðeins settur til þess að reyna að fela það raunverulega hreinsunargjald stöðvarinnar.

Vitanlega var tiltæki hæstv. ráðh. sprottið af því, að hann og hans flokksmenn hér í Reykjavík héldu því fram, að Mjólkursamlag Kjalarnesþings tæki of hátt gjald fyrir hreinsun mjólkurinnar. En mátti það ekki einu gilda, þó svo hefði verið? Bændurnir sjálfir áttu stöðina, og þeirra var gróðinn, ef einhver var. En það kom fleira hér til greina. Hæstv. ráðh. þótti sem vonlegt var lítill árangur af mjólkursölulögunum sínum, en það hefir þó enn betur komið í ljós síðan í sumar, þegar það upplýstist, að allverulegur undirballance var á verðjöfnunarsjóðnum, svo allverulegan hluta af verðjöfnunargjaldinu hefir orðið að greiða með ávísun á peninga, sem raunverulega eru ekki til. Margir halda því fram, að mistök þessi séu sprottin af því, að bændurnir sjálfir fengu ekki að ráða nógu miklu um framkvæmd mjólkurlaganna, og þess vegna væri bezta ráðið að fá þeim umráðin í hendur, en hæstv. ráðh. fór öfugt að. Hann greip tækifærið, þegar nokkrir utanfélagsmenn vildu ekki borga sama stöðvargjald og félagsmenn, að skipa stöðinni að lækka gjaldið niður í 1 eyri, fyrir lægra gjald en stöðin gat staðið við, og þegar stöðin neitaði að láta kúga sig til þess, en bauðst til þess að vinna mjólk utanfélagsmanna fyrir sama gjald og félagsmanna, tók hæstv. ráðh. sig til og beitti ofbeldi með því að taka stöðina leigunámi. En þegar hann var búinn að fremja þetta ofbeldisverk, lá auðvitað heiður hans við, að stöðin gæti unnið mjólkina fyrir ekki hærra gjald en hann áður hafði skipað henni að vinna fyrir, en reikningarnir sýna, að þetta hefir ekki tekizt. Og bændur telja, að í þessu nýja gjaldi sé falinn hluti af hinum raunverulega hreinsunarkostnaði. Það virðist því svo, að á þessum lið skakki ekki alllitlu eftir skýrslu bóndans, sem sýnir, að hann hefir frá 12. júlí s. l. til áramóta fengið 1 eyri minna fyrir lítra en hann fékk á sama tíma árið áður, og 3 aurum minna en hann hefði fengið árið áður, ef hæstv. ráðh. hefði skýrt rétt frá á síðasta þingi, er hann sagði, að bændur vestan heiðar fengju þá 27–28 aura fyrir lítra. Ég vildi óska, að hæstv. ráðh. gæti skýrt þetta; ég held honum sjálfum væri þess full þörf. Óánægja framleiðenda og áskoranir hljóta að knýja hann til þess að gefa gleggri skýrslur en hann hefir gefið enn. Hæstv. ráðh. endurtók það hvað eftir annað, að mjólkursamlagið hefði lagt skatt á mjólkurframleiðendur í of háu gjaldi. Hefir hann létt af þeim skatti? Nei, hann hefir ekki gert það, en hann hefir lagt á þá annan skatt með nýju gjaldi, sem ekki getur verið annað en falinn hreinsunarkostnaður. Svo segir hæstv. ráðh., að þessir 2,2 aur. hafi verið nægilegir. — Hæstv. ráðh. bar það á Mjólkursamlag Kjalarnesþings, að það hefði viljað þvinga mjólkurframleiðendur til þess að ganga í það, en mjólkursamlagið gerði það ekki að skilyrði að fá mjólkurframleiðendur, sem vildu vera fyrir utan það, inn í samlagið, heldur bauðst til þess að hreinsa fyrir þá mjólkina, gegn því, að þeir borguðu sama fyrir það og félagsmenn sjálfir urðu að borga.

Það hefir aftur komið fyrir, að annað samlag, sem hæstv. ráðh. er vel kunnugt um, hefir viljað þvinga utanfélagsmenn til þess að ganga í samlagið, og það hefir gert það með því að neita að hreinsa mjólk fyrir þá, jafnvel þó að þeir hafi boðizt til að greiða sama vinnslukostnað og félagsmenn greiða sjálfir.

Ég hygg, að hv. 2. þm. Rang. muni svara þessum samanburði á mjólkursamlögunum, um kælivélarnar og skemmdu mjólkina. Ég hygg, að hann hafi kynnt sér það. Svo mikið er víst, að bændur á samlagssvæðinu, sem hafa haft tækifæri til þess að fylgjast með rekstri stöðvarinnar, einmitt af því að það var þeirra eiginn rekstur, hafa ekki fallizt á, að þessi ásökun hæstv. ráðh. sé rétt. Þeir hafa einmitt bent á mistökin, sem hafa orðið síðan hæstv. ráðh. tók við mjólkurstöðinni. Benda þeir sérstaklega á allmikil mistök á gæðaflokkun mjólkurinnar. Ég heyrði ekki betur en hæstv. ráðh. játaði áðan, að kælivélarnar, sem hann var að svívirða bændur fyrir að hafa ekki útvegað sér, hefðu ekki verið settar niður strax eftir að hann tók við stöðinni. Þó voru kælivélarnar komnar, og biðu þær á afgreiðslu niðri í bæ. Stæði það því hæstv. ráðh. nær að beina þessum áburði í aðra átt heldur en til bændanna og fulltrúa þeirra. Ég vil mega ætla það, að bændur sjálfir, sem eiga stöðina og hafa rekið hana, þekki þetta betur heldur en hæstv. ráðh. og séu dómbærari um þetta mál heldur en hann.

Það hefir verið bent á það af öðrum en mér, að slíkt tiltæki sem þetta sé einsdæmi í íslenzkri löggjöf, og ég fyrir mitt leyti vil ekki að því styðja með mínu atkv., að það einsdæmi endurtaki sig. Þess vegna greiði ég atkv. móti þessu frv. á hvaða stigi, sem málið er, jafnvel nú þegar við þessa umr.