15.04.1937
Efri deild: 41. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í B-deild Alþingistíðinda. (442)
18. mál, leiga á mjólkurvinnslustöð
Guðrún Lárusdóttir:
Ég hefi hlustað á þessar umr. og þar með á lýsingu hæstv. ráðh. á þeirri mjólk, sem við Reykvíkingar höfum verið að kaupa og nota. Mér þótti lýsingin á búrinu heldur sóðaleg, og slíkt búr hefði ekki þótt nein fyrirmynd á sveitaheimili eða bera húsfreyjunni gott orð.
Eftir því sem mér skildist koma fram í ræðu hæstv. ráðh., þá vildi hann binda óánægjuna og kvartanirnar, sem svo mjög bar á, eftir hans sögn, við fráganginn á mjólkinni hjá mjólkurhreinsunarstöð þeirra Kjalnesinga. Að þessu vildi ég víkja örfáum orðum, og spyrja hæstv. ráðh., hvort ekki hafi orðið vart við neina óánægju og engar kvartanir komið fram, áður en vinnslustöðin komst í eign þessa títt um talaða samlags bændanna. Sannleikurinn er sá, að óánægjan er jafngömul mjólkursamsölunni sjálfri.
En mig furðar þó, að annar eins sóðaskapur og slík óreiða, sem ráðh. lýsti hér áðan, skuli hafa getað átt sér stað undir yfirstjórn hinnar máttugu mjólkursölunefndar, sem vissulega var að líta eftir þessu, með aðstoð sjálfs ráðherrans. Þegar samsalan tók við, urðu miklar breytingar á mjólkurviðskiptum hér í bæ. Við vitum öll, hvernig þessu var háttað áður.
Mjólkurfélag Reykjavíkur hafði ætíð á boðstólum hina beztu mjólk og mjólkurvörur. Það hafði líka góð skilyrði til að flokka mjólkina, vegna þess að því barst aldrei meiri mjólk en svo, að vel var hægt að ráða við hana.
Ennfremur starfaði hér mjólkurbú, sem framleiddi hina ágætustu mjólk, sem hægt er að fá, Korpúlfsstaðabúið. Þá má benda á, að menn keyptu mjólk frá bændunum í kringum Reykjavík og fengu mjólkina beint úr kýrspenunum, öldungis ómengaða að öllu leyti. Þessi mjólk var því ágæt. En þegar samsalan kom til skjalanna, breyttist þetta mikið. Þá var mjólkinni allri hellt saman og hún gerilsneydd í heild. Við það versnaði mjólkin til mikilla muna, og kom þá strax fram óánægja, því heimilunum brá mikið við. Fyrir utan þetta allt stöfuðu mikil óþægindi af þeirri óreiðu, sem var á fyrirkomulagi samsölunnar fyrst í stað, en um það er ekki vert að sakast svo mjög, því á því var nokkurnveginn ráðin bót smátt og smátt.
Þá olli það mikillar óánægju, er Hvanneyrarskyrið hvarf alveg af markaðinum, því það var vara, sem almenningi geðjaðist vel. Ég vil geta þess um leið, að Mjólkurfélag Reykjavíkur bjó einnig til ágætt skyr, en það hvarf einnig, svo ekki var heldur hægt að fá það skyr. Ennfremur var mikil óánægja út af rjómanum og er enn í dag. Ofan á þetta allt bættist svo það, að um tíma fékkst ekki nema gerilsneydd mjólk, mjólkursölunefnd lét að vísu gefa út mjólkurvottorðin frægu, upp á Kleppsmjólkina, sem margir muna. En illa og ógreiðlega gekk að ná í þá mjólk, og mætti segja af því margar bæði skringilegar og hörmulegar sögur, þó ég ekki geri það hér. Ég skal að vísu játa, að þegar sullað er saman mjólk úr öllum áttum, verður vart hjá því komizt að gerilsneyða hana. En svo mikið er víst, að mönnum þóttu skiptin slæm.
Eins og menn muna, þá hófust húsmæður hér í Reykjavík handa til þess að reyna að fá ráðna bót á þessu. Þær báðu um að fá kaldhreinsaða mjólk, eins og áður, og að mjólkin fengist í flöskum í brauðbúðunum. Voru það sérstaklega einyrkjahúsmæður, sem óskuðu eftir þessu, því þegar samsalan tók við, var mjólkurbúðunum fækkað mjög mikið, og var því víða langt að sækja mjólk. Og meðan heimsendingarnar gengu ekki betur en fyrst í stað hjá samsölunni, þá leið svo margur dagurinn, að engin kom mjólkin. Ennfremur báðu húsmæður um, að mjólkin væri seld á ½ lítra flöskum, til þæginda fyrir þá, sem ekki keyptu nema lítið af mjólk.
Þá var beðið um, að Hvanneyrarskyrið kæmi aftur á markaðinn og að rjóminn yrði bættur. Og ein krafan var það, að mjólkurflöskurnar væru dagsettar, því það kom oft upp úr kafinu, að mjólkin var orðin gömul og skemmd.
En engum af þessum kröfum fékkst framgengt. Það voru haldnir fundir og send nefnd til mjólkursamsölunnar og rætt um þetta í fullu bróðerni, það var farið til dómsmrh. og rætt um þetta við hann. En þrátt fyrir allar þessar tilraunir fékkst engin bót að sinni.
Og þá var gripið til þess, sem kallað hefir verið mjólkurverkfall. Þegar það þótti sýnt, að húsmæðurnar, sem gengu fram fyrir skjöldu í þessu máli, fengju engum umbótum áorkað, hvernig áttu þær þá að fá sig til að kaupa þessa slæmu vöru? Og var þá um annað að gera en takmarka mjólkurkaupin? Var hægt að knýja húsmæður til að kaupa skemmda mjólk til heimilisnota?
Og þó að vissir menn og blöð hér í bæ létu ekki af því að fara um þetta hinum hörðustu orðum, þá var það ekki annað, sem gerðist, en það, að húsmæðurnar takmörkuðu við sig mjólkina, af því að þeim var engin sanngirni sýnd í þessum málum.
Því hefir verið haldið fram, að þetta hafi verið gert til þess að eyðileggja skipulagið eða samsöluna. Nei, það var ekki gert til þess, heldur til þess að knýja fram kröfur um umbætur í þessum efnum. Vitanlega dró mikið úr mjólkurneyzlunni, enda þótt Alþýðublaðið héldi því fram um þessar mundir, að mjólkurneyzlan hefði aukizt í bænum.
En svo kemur rúsínan í pylsuendanum. Þegar hér er komið, kemur prestvígður maður úr mjólkursölun. og stefnir nokkrum konum fyrir afskipti þeirra af þessum málum, afskiptunum, sem ég hefi lýst hér og sagt rétt frá. Það var tekið miklu harðar á þessu verkfalli en nokkru öðru verkfalli, sem hefir gerzt í þessum bæ. Ódæðið, sem húsmæðurnar drýgðu, er, að þær berjast fyrir því að fá góða vöru, og um leið berjast þær líka fyrir því, að samsölunni vegni vel. Ég þori að fullyrða, að ef húsmæðurnar hefðu fengið kröfum sínum framgengt þá þegar, hefðu mjólkurkaupin aukizt til stórra muna, bændum til stórgagns.
Ég vil í þessu sambandi benda á það, að það voru fleiri en húsmæðurnar, sem gerðu mjólkurverkfall. Kommúnistar gerðu líka verkfall. En ekki vegna þess, hvað mjólkin var vond, heldur af því, hvað hún var dýr. Það var búið að lofa að lækka mjólkina, en það loforð brást. En ekki var þeim stefnt kommúnistunum, og ekki voru þeir leiddir fyrir rétt, a. m. k. hefi ég ekki orðið vör við það. Ég vil leyfa mér að kalla þetta hlutdrægni, að þegar um flokk manna er að ræða, þá er sumum stefnt eins og um ódæðisverk væri að ræða, en við öðrum, sem aðhafzt hafa nákvæmlega hið sama, er ekki hreyft hið minnsta. Hvernig ætli á þessu standi? Því hefir ekki verið svarað til þessa.
Og ekki nóg með það, að húsmæðrunum væri stefnt, heldur var farið í mál við þær út af þessu, og það fór svo, að þær voru dæmdar til að greiða skaðabætur fyrir það eitt, að þær vildu ekki kaupa vöru, sem þær voru óánægðar með. Ég veit ekki, hvort mönnum kann að finnast þetta réttmætt. Ég læt menn alveg um það.
Nú mætti e. t. v. segja, að þetta sé allt liðið og um garð gengið. En hvernig er þá ástandið nú, eftir að hæstv. ráðh. hefir tekið þessa stöð leigunámi, sem var svo svívirðileg í meðferð sinni á mjólkinni? Ég skal ekki dæma um það. En það veit ég, að komið hefir fyrir, að orðið hefir að skila mjólkinni aftur, af því að hún var svo bragðvond. Það má nú segja, að eitt skipti sé ekkert skipti, og að það ætti því ekki að leggja of mikla áherzlu á það. En þar sem hér hefir verið talað um, að óánægjan út af mjólkinni eigi rót sína að rekja til meðferðarinnar á mjólkinni hjá mjólkurstöðinni, áður en ráðh. tók hana leigunámi, þá finnst mér ástæða til að taka það fram, að það hefir komið fyrir, eftir að stöðin var tekin, að mjólkin hefir reynzt illa, verið súr og bragðslæm og því endursend stöðinni af þeim ástæðum. Nei, óánægjan og kvartanirnar yfir mjólkinni eru ekki nýjar. Þær eru jafngamlar samsölunni sjálfri. Og þær kröfur, sem húsmæðurnar báru fram, voru á sterkum rökum reistar.
Ég hefi hér fyrir framan mig fyrirlestur, sem Jón Þorláksson flutti um þetta mál. Færir hann þar nokkurnveginn þau sömu rök fyrir máli sínu og ég hefi fært hér. Og er það ekki nema eðlilegt, að mjólk versni eftir þá meðferð, sem hún fær, og er það með öllu ómótmælanlegt, að svo er. En hér hefir svo við brugðið, að hegning hefir legið við, ef kvartað var, og sízt jók það vinsældir þessara viðskipta, sem lengi munu í minnum höfð.
Eitt þykir mér þó kostulegast við þetta allt saman, og það er það, að um sama leyti og kvartanirnar dynja yfir hæstv. ráðh. og landlækni vegna sóðaskapar í stöðinni, eru húsmæðurnar leiddar fyrir rétt, til þess að staðfesta vottorð um sama efni. Mér finnst þetta mjög kátbroslegt, og get því ekki stillt mig um að nefna það í þessu sambandi.