20.04.1937
Neðri deild: 44. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (454)
18. mál, leiga á mjólkurvinnslustöð
*Ólafur Thors:
Ég hefi áður í sambandi við annað mál gert þetta frv. nokkuð að umræðuefni, og þetta mál hefir auk þess sætt alveg sérstaklega kröftugri gagnrýni af hendi Sjálfstfl. í hv. Ed., svo að ég tel, með hliðsjón af því, að nú er komið fram á síðustu daga þingsins, eftir því sem heyrzt hefir, að ekki sé ástæða fyrir mig að fara langt út í þetta mál.
Þó vil ég ekki, að málið fari svo gegnum hv. d., að ekki sé á það minnzt af okkur sjálfstæðismönnum, og ætla ég þess vegna að fara um það örfáum orðum.
Það er öllum kunnugt, hver rök liggja til þessa máls. En þau eru, að þessi mjólkurstöð var hagnýtt af samvinnufélagi bændanna í Gullbringu- og Kjósarsýslu og grennd. Í þeim félagsskap voru nær allir bændur, sem mjólk framleiddu í þessu héraði. Utan við félagsskapinn stóðu þó nokkrir menn. Og það var afstaða þessara manna til eigenda stöðvarinnar, sem varð tilefni af hendi ráðh. til að taka stöðina leigunámi. Þessir menn gerðu það að misklíðarefni við stjórn stöðvarinnar, hvaða gjald þeir ættu að greiða fyrir gerilsneyðingu á mjólk, sem þeir framleiddu og fengu hreinsaða í stöð Mjólkursamlags Kjalarnesþings. Framkvæmdarstjórinn gerði þessum bændum tvo kosti. Annar var sá, að þeir gerðust félagsmenn, og þá skyldu þeir njóta sama réttar og aðrir, en ef þeir ekki vildu það, þá skyldi mjólk þeirra verða hreinsuð og gerilsneydd, og þeir greiða fyrir það raunverulegt kostnaðarverð, og þeim skyldi heimilt að hafa eftirlitsmann við stöðina og reikningsfærslu í sambandi við rekstur stöðvarinnar, svo þeir gætu fullvissað sig um, að þeim væri ekki reiknað meira gjald heldur en þetta heimilaði. Að hvorugum þessum kosti vildu þeir ganga, en sneru sér til hæstv. landbrh. og kærðu mál sitt fyrir honum. Nú skyldi maður álíta, að samvinnufélagsskapur bænda gæti verið óhultur fyrir ofsóknum af hendi þess manns, sem á ráðherradóm sinn því að þakka, að hér á landi eru allmargir menn, sem telja, að samvinnufélagsskapur eigi sérstakan rétt á sér fram yfir aðrar aðferðir í verzlun og viðskiptum. Maður skyldi halda, að þessi samvinnufélagsskapur bændanna gæti verið óhultur fyrir ofsóknum af hendi ráðh., sem komizt hefir í valdasess af þessari ástæðu. En svo reyndist ekki. Það fór svo, enda þótt þeir menn, sem tilmæli báru fram við hæstv. ráðh., réðu ekki yfir nema 7% af því mjólkurmagni, sem þessi stöð vann úr, að þá lagðist hæstv. ráðh. á sveif með hinum ófélagslyndu mönnum og tók málstað þeirra gegn samvinnubændunum svo rækilega, að hann hikaði ekki við að svipta samvinnubændurna umráðarétti yfir þeirra lögmætu eign.
Ég hefi áður sagt, að útgáfa þessara bráðabirgðalaga væri fullkomið gerræði, og verð að segja, að það er undur, að einmitt þessi ráðh. sem kennir sig við flokk þann, sem gengur undir nafni samvinnunnar, skyldi láta hafa sig til slíkra verka. Ég held, að í sjálfu sér væru það ekki meiri pólitísk tíðindi, þó að sósíalistar, ef þeir færu með völd, eða sjálfstæðismenn, bönnuðu með lögum samvinnufélagsskapinn í landinu, heldur en þau tíðindi, sem orðið hafa í sambandi við þetta mál, að ráðh. sá, sem styðst við svokallaða samvinnubændur, skyldi ráðast svona heiftúðlega á samvinnubændurna.
Ég veit, að þessu máli er ætlað að ganga fram á þinginu, því um það eru samningar milli stjórnarflokkanna, og við í stjórnarandstöðunni getum ekki hindrað það. Ég álít, að þingið hefði gert skyldu sína, ef það hefði sýnt þann manndóm að rísa gegn þessum l., og var um tíma ástæða til að vona, að svo yrði, þó nú sé annað komið í ljós.
Ég sé svo ekki af þessari ástæðu, og því, sem ég hefi áður sagt um, að málið hefir sætt svo ýtarlegri gagnrýni í hv. Ed., ástæðu til að tefja setu þingsins út af þessu máli, þó ég væri annars reiðubúinn til að tala allan daginn, ef það gæti hindrað, að málið næði fram að ganga. En það er ekki á mínu valdi, og get ég þess vegna látið þessi stuttu mótmæli nægja gegn þessu gerræði hæstv. forsrh.