22.03.1937
Efri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (473)

37. mál, sala Sanda í Dýrafirði

*Þorsteinn Briem:

Ég vil aðeins beina einni fyrirspurn til hv. n. út af þessu máli. Það mun standa svo á um þessa jörð, að henni fylgir nokkurt afréttarland, svonefndur Sandadalur. Ég hygg, að það standi svo á, að a. m. k. næstu jarðir, ein eða fleiri, hafi notað þessa afrétt til upprekstrar- og slægna. Ég ætla því, að þessum jörðum sé fullkomin nauðsyn að halda þeim ítökum, sem þær hafa haft í þessari afrétt, og vildi ég spyrja. hv. n., hvort það muni hafa verið samið um þetta atriði.