22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (493)
86. mál, alþýðutryggingar
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Ég hefi ekki á móti því, að mál þetta fari í nefnd, en ég vildi óska, að hægt væri að komast að samkomulagi um, að málið kæmi aftur til umr. á morgun, því lögin þurfa að staðfestast fyrir 1. apríl. Ég skil ekki í, að frv. valdi neinum ágreiningi, því samskonar frv. lá fyrir báðum deildum á síðasta þingi og var þá samþ., og síðan hefir ekkert það komið fram, sem bendi til þess, að menn hafi skipt um skoðun. Ég hefi sem sagt ekkert á móti því, að það komi aftur til umr. á morgun, svo hægt sé að ljúka umr. fyrir páska og staðfesta lögin fyrir 1. apríl.