23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (498)

86. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Samkv. tilmælum hæstv. atvmrh. tók ég málið á dagskrá í dag. Vonaði ég, að allshn. hefði haldið fund og að álit hennar næði þessum deildarfundi. Annars þykir mér það vorkunn, þótt hv. 8. landsk. beri þessa ósk fram.