23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í B-deild Alþingistíðinda. (504)

86. mál, alþýðutryggingar

*Jóhann Jósefsson:

Það hefir farið fyrir mér eins og fleirum, að mér finnst mál þetta allundarlega rekið hér í þinginu, og því ætlaði ég í dag, þegar um það var rætt, hvort taka skyldi málið fyrir eða ekki, að taka undir með þeim, sem töldu meðferð allshn. á því óviðfelldna og óþinglega. En til þess kom ekki, að ég tæki til máls þá, því að hæstv. forseti tók þann kostinn að fresta því um stundarsakir, svo nál. minni hl. gæti a. m. k. komið fram. Frá meiri hl. n. hefir ekkert heyrzt annað en skilaboð þau, sem hv. 1. landsk. var með hér í dag. Ég verð nú að segja það, að mér finnst harla undarlegt, ef það á að líðast, að þm. geti sent skilaboð inn í þingið um, að þeir líti svona og svona á þessi og þessi mál, í stað þess að skila rökstuddum álitum, eins og nefndum ber að gera um mál þau, sem til þeirra er vísað.

Mál það, sem hér er deilt um, lítur þannig út, að nokkrum hluta þeirra manna, sem heyra undir ákvæði 62. gr. laga um alþýðutryggingar frá 1936, sé gerður óréttur. Og eftir því, sem nú er komið, kemur óréttlætið sérstaklega niður á símafólkinu, því að það hefir upplýstst undir þessum umr., að nokkur hluti þeirra starfsmanna, sem heyra undir hið umrædda ákvæði alþýðutryggingarlaganna frá 1936, hefir þegar fengið sinn hluta úr lífeyrissjóðnum greiddan út og hætt að greiða iðgjöld sín í lífeyrissjóð embættismanna, og greiðir í þess stað í lífeyrissjóð Íslands. Hér hefir því myndazt óvenjulegt ástand, þar sem með frestun á framkvæmd 2. og 3. málgr. 62. gr. laganna frá 1936 er haldið fyrir stórum hluta starfsfólksins, sem lög þessi snerta, miklum fjármunum, sem nokkur hluti þess hefir þó fengið greidda út. Það er því ekki óeðlilegt, þó að komið hafi upp óánægja meðal þess starfsfólks, sem fyrir ranglætinu hefir orðið, en eins og hv. minni hl. bendir á, þá er það sérstaklega starfsfólk landssímans í Reykjavík, Akureyri, Siglufirði og í Vestmannaeyjum, sem sent hefir ákveðin mótmæli gegn frv. þessu og óskar eindregið að hafa frítt val skv. 62. gr. tryggingarlaganna um það, hvort það kaupir sér lífeyri í lífeyrissjóði embættismanna eða lífeyrissjóði Íslands. Ég verð nú að segja það, að mér fannst hæstv. atvmrh. taka nokkuð djúpt í árinni í dag, þegar hann sagði, að það væri „ósvinna“ að fara fram á annað eins og það, að meiri hl. allshn. gengi þinglega frá máli þessu. Já „fullkomna ósvinnu“ kallaði hæstv. ráðh. slíkar kröfur. mér getur nú ekki annað fundizt en að það sé jafnvel meiri ósvinna að reka svo mjög á þingið með slíkt mál sem þetta, að vera með stóryrði og bægslagang úr ráðherrastóli, aðeins fyrir það eitt, að óskað er eftir, að málið fái þinglega afgreiðslu. Af því, sem ég nú hefi tekið fram, þá tel ég ekki rétt að samþ. frv. þetta eins og það liggur fyrir. A. m. k. þá ekki fyrr en fyrir lægju einhverjar upplýsingar um það frá hæstv. stjórn, að með þessum endurtekna fresti á framkvæmd laganna ætti ekki að stórskaða fólkið. Að það þurfi t. d. ekki að bíða lengur en til næsta árs til þess að geta orðið aðnjótandi þeirra hlunninda, sem lögin frá 1936 veita því í þessu efni. Um þetta væri meiri þörf að fá yfirlýsingu úr ráðherrastóli heldur en hitt, að málið mætti ekki fá þinglega afgreiðslu. Fáist því ekki skýr og ákveðin svör um þetta hjá hæstv. ráðh., er ekki annað fyrir hendi en fella frv.