23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í B-deild Alþingistíðinda. (505)

86. mál, alþýðutryggingar

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég er sammála hv. þm. Vestm. um það, að fólk það, sem hér kemur til greina, eigi að fá löglega meðferð mála sinna, en ég er ekki viss um, að sú aðferð, sem hann og fylgifiskar hans beita gagnvart máli þessu, að þæfa það og þæfa með málþófi, sé sú bezta, þar sem óumflýjanlegt er, að það fái lagalegt gildi fyrir 1. apríl. Í grein þeirri, sem hér ræðir um, eru þau ákvæði, að embættismenn eða barnakennarar, sem eru yngri en 40 ára og greitt hafa í lífeyrissjóð embættismanna, megi halda áfram að tryggja sér lífeyri úr þeim sjóði, eða að öðrum kosti að tryggja sig í lífeyrissjóði Íslands, og fá þá endurgreitt það, sem þeir hafa greitt í lífeyrissjóð embættismanna. Eins og ég hefi tekið fram áður hér á þessu þingi, þá verður lögð fyrir þingið breyting á alþýðutryggingalögunum, en það er óhugsandi með öllu, að þær breyt. geti orðið afgr. fyrir 1. n. m., og getur því ekki verið um annað heppilegra að ræða en að samþ. frv. og framlengja gildistöku hinna umræddu málsgr. í 62. gr. alþýðutryggingalaganna. Verði frv. aftur ekki samþ., þá er það óhjákvæmileg afleiðing þess, að starfsfólk það, sem hér á hlut að máli, verður harðara úti en annars. Það yrði að tryggja sig aftur í lífeyrissjóði Íslands og fengi með því minni lífeyri, þar sem tryggingartíminn yrði að miklum mun styttri, a. m. k. hjá öllum þorra þess.

Ég held því, að með skynsemi geti enginn mælt á móti þessu frv., þar sem fólkið fær stórum verri kjör, ef það verður ekki samþ. Ég vil því mjög eindregið skjóta því til andstæðinga frv., að láta niður falla andstöðu sína gegn því nú, því að það er engin skynsamleg ástæða, sem mælir gegn þessari umræddu frestun.