23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í B-deild Alþingistíðinda. (511)

86. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Mér er kunnugt um það, að hæstv. atvmrh. er upptekinn og sakir þess fjarverandi í þetta sinn.

Nú vil ég vona, að það geti komið að sömu notum, þó að þessar fyrirspurnir verði bornar fram við 3. umr. Vil ég því í fullri vinsemd við hv. 6. þm. Reykv. spyrja hann, hvort hann geti ekki látið þær bíða til 3. umr. (SK: Ég er mótfallinn því, af því að ég þurfti að fá svar fyrir 3. umr.). Þess gerist ekki neinn kostur að fá svör hæstv. atvmrh. að þessu sinni, en ég vil mega vænta þess, að hv. þdm. leyfi málinu að fara til 3. umr.