23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
86. mál, alþýðutryggingar
Sigurður Kristjánsson:
Mér þykir ákaflega hart að fá ekki þessu máli frestað þangað til ég fæ tækifæri til þess að fá svarað mikilsverðum spurningum, sem ég þarf að gera ráðstafanir út af fyrir 3. umr.
Ég skal skýra frá því, að ég hafði hugsað mér, eftir því sem svör hæstv. atvmrh. fellu við ýmsum spurningum, að bera kannske fram brtt. við þetta frv. við 3. umr. Það getur verið, að hæstv. ráðh. hafi þær upplýsingar að gefa viðvíkjandi þessum sjóði, að það sé nauðsynlegt, að gerðar séu einhverjar breytingar við frv., ef það skyldi fá framgang. Ég held, að það geti ekki verið svo háskalegt, þó að það dragist til morguns þessi umr. og tel því ekki ósanngjarnt að fara fram á það.