23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (519)

86. mál, alþýðutryggingar

*Frsm. minni hl. (Garðar Þorsteinsson):

Ég veit, að það var sjálfsagt af hæstv, forseta að orða það svo úr forsetastóli, að hann hefði ekki ástæðu til að vefengja það, sem hv. 1. landsk. sagði, en hinsvegar vil ég benda hæstv. forseta og hv. 1. landsk. á það, að ég hefi tekið fram, að hv. 1. landsk. mundi ekki segja vísvitandi rangt, heldur af misskilningi, og ég get lýst því yfir, að hv. þm. Snæf. skýrði hæstv. atvmrh. frá því í gær, að hann mundi skrifa undir nál. um þetta mál með fyrirvara, og þó að hv. 1. landsk. tali lauslega við mann um málið án þess að kalla saman nefndarfund og skjóti sér svo undan þeirri skyldu sinni að semja nál. og láta skrifa undir það, þá getur hann ekki fullyrt neitt um þetta hér í hv. deild móti því, sem aðrir vita betur, og ég veit, að hv. þm. Snæf. mun staðfesta þetta, og þó að hv. 1. landsk. komist undan „subjektivri“ sök, með því að segja ekki vísvitandi rangt, þá kemst hann þó ekki undan því, að hann fer hér ekki með rétt mál.