30.03.1937
Neðri deild: 27. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (536)

86. mál, alþýðutryggingar

Sigurður Einarsson:

Ég hafði hugsað mér að leiða þessar umr. algerlega hjá mér, þangað til brtt. á þskj. 136 var komin fram. Þar er beinlínis gert ráð fyrir því, að tvær tegundir starfsmanna, póst- og símamenn, verði undanþegnir þeim fresti, sem frv. felur í sér, og ég hefi heyrt þessa till. rökstudda með því, að hér væri um að ræða láglaunamenn, sem ekki veitti af, ef þeir gætu breytt svo lífeyrisgreiðslum sínum, að þeim tækist að fá það, sem þeir ættu í lífeyrissjóðnum, og gætu tekið upp annað tryggingarlag. Aftan við þessa till. hefi ég hugsað mér að bera fram skriflega brtt., sem tekur til annarar starfsmannastéttar, sem ekki er eins fjölmenn að vísu. Þessir menn, sem mér er persónulega kunnugt um, að eru enn verr launaðir en starfsmenn pósts og síma, eru prestarnir í landinu. Ég legg til, að aftan við tillgr. á þskj. 136 bætist orðin: „svo og presta“. Ég er ekki viss um, hvað margir af prestunum koma til greina, því að mér hefir ekki gefizt tóm, sakir páskahelgarinnar, til að athuga það, en þeir eru ekki sérlega margir, og hvert einasta orð, sem sagt hefir verið til rökstuðnings því, að nauðsynlegt væri að rýmka til um þessi ákvæði fyrir starfsfólk pósts og síma, á einnig við að því er snertir prestana, því að þeirra hagur er sízt betri.

Annars kom mér það kynlega fyrir sjónir, þegar framsóknarmenn í þessari hv. d. virtust vera í vafa um, hvort þeir ættu að ljá frv. stuðning sinn eða ekki, þar sem þeim ætti að vera kunnugt um það öðrum fremur, að fé lífeyrissjóðsins er að miklu leyti bundið í jarðræktarbréfum og hefir yfir höfuð verið mjög varið til eflingar og stuðnings málefnum landbúnaðarins, þannig að embættismenn, sem greiða fé í lífeyrissjóðinn, hafa engan aðgang að því átt til sinna nota, nema barnakennarar, sem fengið hafa fasteignalán til bygginga sinna. Sjóðurinn hefir verið notaður til þrautar á þennan hátt, og ekki hvað sízt í tíð núv. stjórnar.

Mér er það ljóst af athugun þeirri, er ég gerði um það mál í fyrra, að það yrði þröngt fyrir hjá lífeyrissjóðnum, ef hann ætti að svara út jafnstórum fjárhæðum og hér yrði um að ræða, ef frv. yrði samþ.

Þó að ég beri brtt. þessa fram, er síður en svo, að ég telji, að frv. eigi að falla, en verði það úr, að það verði samþ. með brtt. á þskj. 136, þá tel ég rétt, að brtt. mín verði samþ., svo að þeir menn, sem hún ræðir um, fái aðstöðu til að njóta þeirra hlunninda, sem í 62. gr. alþýðutryggingalaganna felast.