30.03.1937
Neðri deild: 27. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (538)

86. mál, alþýðutryggingar

*Pétur Ottesen:

Ég ætla, að það hafi verið þegar verið var að ræða um og afgreiða lögin um alþýðutryggingar, að það þótti því aðeins fært að kveða svo á, að hlutaðeigandi starfsmenn skyldu greiða áfram í lífeyrissjóð embættismanna, að þeim væri jafnframt gefinn kostur á að velja á milli hans og lífeyrissjóðs Íslands. En nú ber svo til, að frv. það, sem hér liggur fyrir til umr., gengur út á það, að loka fyrir þessa leið, að starfsfólkið megi velja á milli sjóðanna. Ég verð því að segja það, að mér finnst ekki undarlegt, þó að þeir aðiljar, sem þetta kemur harðast niður á, hafi látið í ljós óánægju sína yfir þessu frv., og það því fremur, þegar þess er gætt, að meginþorri allra póstmanna landsins, a. m. k. hér í Reykjavík, hefir þegar fengið greiddar út þær upphæðir, sem þeir áttu í sjóðnum. Það verður því að teljast eðlilegt, þó að fram komi tillögur til þess að reyna að draga úr því misrétti, sem hér hefir skapazt. Ég mun því greiða atkv. með hverri þeirri till., sem gengur í þá átt að bæta úr því.